Frístunda- og menningarnefnd - 73. fundur
- 07.05.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 73
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
1. Hjólakeppni: umsókn um leyfi
Umsókn um Íslandsmót í götuhjólreiðum
Óskað er aðstöðu að Gjánni og/eða íþróttamiðistöð og að keppendur fái ókeypis í sund. Nefndin felur sviðsstjóra að útfæra þetta nánar í samstarfi við Hjólreiðadeild UMFG og forstöðumann íþróttamannvirkja.
2. Sjóarinn síkáti 2018: verkefnisáætlun
Dagskrá kynnt og áætlun
Föstudagur er hefðbundinn að því frátöldu að Bryggjuball færist yfir á laugardagskvöld og dagskráin á laugardagskvöldi hefst kl. 20:00 og lýkur 22:30. Á föstudagskvöldi hefst dagskráqin á skrúðgöngu, hverfin fjölmenna á hátíðarsvæðið þar verður brekkusöngur og hverfin flytja sína atriði.
3. Ungmennafélag Íslands: Hreyfivika 2018
Hreyfivika er 28. maí - 03. júní 2018. Boðað var til fundar með helstu hagsmunaðilum mánudaginn 07.05.2018, Jóhann Árni Ólafsson er umsjónarmaður, þátttakendur senda inn viðburði sína og verkefni.
Kynningarfundur var í vikunni og nú hefst vinna við að safna viðburðum og kynna fyrir heimamömmun.
4. Vinnuskólinn: skipulag 2018
Umsóknarfrestur liðinn og viðtöl við umsækjendur fara fram í lok vikunnar fyrir störf í vinnuskóla - flokkstjóra, tjaldsvæði og Kvikunni
Nemendur hefja störf 4. júní og byrjar starfið á kynningarfundi. Flokkstjórar hefja störf uppúr miðjum maí og þeirra bíður mikið starf. Byrjað er að skipuleggja fyrstu dagana og nefndin leggur áherslu á að bærinn verði hreinn og snyrtilegur þegar bæjarhátíðin hefst. Huga þarf að umhverfi tjaldsvæðisins.
5. Víðavangshlaup 2018: 12. maí
Víðavangshlaup verður haldið 12. maí
Víðavangshlaupið verður laugardaginn 12. maí og undirbúningur er langt kominn. GG knattspyrnufélag aðstoðar við framkvæmdina og gæslu, og foreldar eru einnig í gæslu.
6. Ungmennaráð: Umferðaröryggi okkar mál
Ungmennaráð ætlar að halda ráðstefnu í haust þar sem hagsmunaaðilum, Vegagerð, ráðherrum, embættismönnum og lögreglu auk bæjarfulltrúa verður boðiði til samtals við ungt fólk á Suðurlandi og Suðurnesjum til að ræða um umferðaröryggi og áætlanir í umferðamálum. Sótt hefur verið um styrk í Erasmus + sem er forsenda þess að ráðstefnan verði haldin.
Áætlun hefur verið gerð og sótt um styrk til ERASMUS+. Styrkur frá ERASMUS+ er forsenda þess að hægt sé að halda ráðstefnuna.
7. Gesthús: ósk um tímabundin afnot
Umsækjendur ákváðu að draga umsóknina tilbaka.
8. Gesthús:umsókn til Minjastofnunar 2018
Minjastofnun hefur veitt styrk og vinna er hafin. Sagt frá næstu skrefum.
Styrkur fékkst frá Minjastofnun til ástandsskoðunar og áætlunargerðar.
9. Menningarminjar: Skráning og varðveisla minja og muna í eigu Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóra falið að kanna hver kostnaður er að aðild að Sarpi og hvernig skráningarmálum getur verið háttað í framtíðinni.
10. Kvikan - auðlinda og menningarhús
Umræða um Kvikuna og starfsemi sumarsins
Mikil dagsrká verður í Kvikunni í sumar, námskeið fyrir börn og íbúar velkomnir á viðburði sem verða.
11. Grindavíkurbær: Heilsueflandi samfélag
Mikilvægt er að göngustígar séu vel merktir og auglóst sé hvar hestamenn eiga rétt á að vera og hvar gangandi umferð sé. Nefndarmenn benda á að þeim hafi borist kvartanir um að hestamenn fari á malbikaða stíga og að hundaeigendur fari innfyrir hlið í Hópsnesi og sleppi hundum lausum. Ósk er beint til umhverfis- og skipulagssviðs að átak sé gert í merkingu stíga og að skilmerkilega sé gerður munur á þeim stígum sem er fyrir hestamenn og gangandi umferð.
12. Blúshátíð Grindavíkur: ósk um stuðning við Blúshátíð í Grindavík haustið 2018
Hugmyndir eru uppi um að stofna til Blúshátíðar í Grindavík að hausti og sótt um stuðning/styrk við verkefnið
Málinu er frestað