Frístunda- og menningarnefnd - 28. fundur
- 08.01.2014
- Fundargerð
- Kl. 20:00 -
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 28
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Unnar Á Magnússonaðalmaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonaðalmaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Málefni bókasafns
Tillaga að vinnufyrirkomulagi á nýju bókasafni lögð fram. Nefndin samþykkir tillöguna og leggur áherslu á að sjálfsafgreiðsluvél verði frá fyrsta opnunardegi á nýju sameiginlegu bókasafni. Jafnframt verði skoðaðir möguleikar á aðgangi námsmanna utan afgreiðslutíma með aðgangskorti.
2. Menningarvika 2014
Nefndin samþykkir að Menningarvikan 2014 verði 15. - 22. mars.
3. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2014
Nefndin samþykkir að auglýsa eftir tilnefningum frá bæjarbúum. Lögð verður fram reglugerð um Bæjarlistamann Grindavíkur á næsta fundi nefndarinnar.
4. 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Drög lögð fram að dagskrá. Í tilefni afmælisins Grindavíkurbæjar verður haldinn íbúafundur þar sem farið verður yfir helstu viðburði bæjarins á afmælisárinu. Bæjarbúar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í umræðum og leggja fram sínar hugmyndir. Fundurinn verður mánudaginn 20. janúar kl. 18 í Hópsskóla.
5. Þrettándagleði 2014
Nefndin er ánægð með hvernig til tókst í ár.
6. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Formaður UMFG upplýsti að vinnan sé í fullum gangi.
7. Samningur við UMFG um eflingu íþróttastarfs barna og ungmenna.
Formaður UMFG greindi frá að vinna við íþróttanámskrá sé á lokasprettinum. Nefndin óskar eftir því að vinnu við námskrána verði lokið 1. febrúar nk.
8. Endurskoðun samnings GG og Grindavíkurbæjar vegna barna- og unglingastarfs GG fyrir árið 2013.
Skriflegt svar formanns GG lagt fram.
9. Aðsókn í sundlaugina 2013
Gögnin lögð fram.