Frístunda- og menningarnefnd - 71.. fundur
- 07.03.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 71.
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Sigríður Berta Grétarsdóttir
1. Styrkbeiðni: Söngvaskáld á Suðurnesjum
Óskað eftir styrk fyrir verkefnið Söngvaskáld á Suðurnesjum, kynning á ríkum tónlistararfi Suðurnesjamanna. Tónleikraröð um söngvaskáldin Rúnna Júl, Magnús Kjartansson og Bjartmar Guðlaugsson.
Nefndin fagnar verkefninu en sér ekki fært um að styrkja verkefnið að þessu sinni.
2. Listafélag Nemendafélags FSS: ósk um styrk
Listafélag Nemendafélags FSS óskar eftir styrk vegna uppsetningar sýningar/leiksýningar
Nefndin leggur til að verkefnið verði styrkt um 50.000 kr og vísar málinu til bæjarráðs til ákvörðunar.
3. Kvennó: ósk frá Ungmennaráði Grindavíkurbæjar
Ungmennaráð óskar eftir að hafa aðsetur í Kvennó, tvö kvöld í mánuði fyrir félagsstarf ungmenna sem lokið hafa grunnskóla
Nefndin fagnar þessu frumkvæði Ungmennaráðs. Sviðsstjóra er falið að ganga frá samningi við Ungmennaráð og hafa eftirlit með framkvæmd.
4. Menningarvika 2018: Frístunda- og menningarsvið
Kynning á dagskrá Menningarviku 2018
Dagskráin kynnt
5. Gamlar vörður innan byggðar: fyrirspurn um áætlanir
Óskað er eftir upplýsingum um framtíðaráætlanir vegna gamalla varða sem komnar eru inní byggð
Frístunda- og menningarnefnd tekur undir með Minja- og sögufélaginu um mikilvægi þess að tryggt sé að vörður séu óhreyfðar. Minja- og sögufélagið er hvatt til þess að standa fyrir kynningu á mikilvægi og umgengni við vörður. Erindinu er vísað til skipulag skipulagsnefndar og umhverfis og ferðamálanefndar.
6. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2018: Tilnefningar
Farið fyrir tilnefningar og gengið frá kjöri
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir er útnefnd bæjarlistamaður Grindavíkur 2018
7. Beitingaskúrar við Vesturbraut: ósk um afturköllun leyfis til niðurrifs
Óskað er eftir að leyfi til niðurrifs sé afturkallað
Frístunda- og menningarnefnd er ekki leyfisveitandi og ber því að vísa þeim hluta erindisins til skipulagsnefndar. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við skipulagsnefnd að Minjastofnun verði fengin að málinu og skeri úr um varðveislugildi byggingarinnar.