Frístunda- og menningarnefnd - 61. fundur
- 09.03.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 61
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Sigríður Berta Grétarsdóttirvaramaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja
Fyrri samningur kynntur og ósk Knattspyrnudeildar um hækkun mánaðarlegra framlaga í 500.000 kr. p mánuð. Nefndin mælist til að, í ljósi þess að fyrirsjáanlegt er að starfsemi á fótboltavelli aukist í sumar, þessi ósk sé samþykkt og að gerður sé samningur til eins árs. Lið karla og kvenna í meistaraflokki spila bæði í Pepsídeild og viðbúið að umfang starfseminnar aukist.
2. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2015-2018
Gildandi samningur við UMFG til kynningar
Skilagreina félaga samþykktar. Áhersla lögð á að samræmi sé á milli félaga við gerð skilagreina og að UMFG hafi umsjón með gerð skilagreina og sendi útfyllt skjal til sviðsstjóra eftir þeim reglum sem fram koma í samningi.
3. Frístunda- og menningarsvið: Menningarvika 2017
Dagskrá Menningarviku 2017 til kynningar
Dagskrá kynnt. Fjölbreytt dagskrá í boði fyrir Grindvíkinga. Nefndarmenn ánægðir með fjölbreytta dagskrá.
4. Þríþrautarfélag UMFN: Ósk um leyfi fyrir hjólreiðamót innan lögsögu Grindavíkur
Umsókn vegna reiðhjólamóts
Samþykkt að verða við ósk UMFN og fulltrúa UMFG, hjólreiðanefnd Bjarna Má, falið að vera í samráði við UMFN.
5. Frístunda- og menningarsvið: Fjárhagsáætlun 2016-2019
Fjármál frístunda- og menningarsvið: staða fjármála til kynning
Björg segir lauslega frá stöðunni.
6. Samsuð: Fundargerðir
SAMSUÐ fundargerðir í janúar og febrúar
Farið yfir fundargerðir SAMSUÐ
7. Forvarnarteymi: Fundargerðir
Fundargerðir Forvarnarteymis
Farið yfir fundargerðir Forvarnarteymis
8. Íþróttamiðstöðin: Starfsmannamál
Fundur með Dale Carnegie kynntur og hugmyndir um áframhaldandi vinnu í að efla og styrkja starfsmenn