Frístunda- og menningarnefnd - 20. fundur
- 10.04.2013
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 20
- Ritari: Kristinn Reimarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Unnar Á Magnússonaðalmaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Helga Kristjánsdóttiraðalmaður
- Kristinn Jakob Reimarssonembættismaður
- Sigurður Enokssonáheyrnarfulltrúi
Formaður óskar eftir að taka mál nr. 1304016 - Beiðni um styrk til malbikunar og frágangs á bílastæði við Húsatóftavöll og klæðingar golfskála - inn á dagskrá fundarins með afbrigðum. Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar frístunda- og menningarnefndar. Samþykkt.
1. Ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði
Ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Egilsstöðum 20.-22. mars lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd árettar mikilvægi þess að ungmennalýðræði sé virkt í sveitarfélaginu og hvetur ungmenni til virkrar þátttöku og láti rödd sína heyrast sérstaklega í málefnum sem tengjast börnum og ungmennum. Nefndin þakkar þeim Margréti Rut Reynisdóttur og Kötlu Marín Þormarsdóttur fyrir þátttökuna fyrir hönd Grindavíkurbæjar.
2. Samningar við UMFG - staða
Lögð fram stefna UMFG sem samþykkt var á aðalfundi félagsins í síðustu viku með ósk um formlegar viðræður um endurskoðun samnings um eflingu íþróttastarfs. Samkvæmt viðauka við samning Grindavíkurbæjar og UMFG um eflingu íþróttastarfs er kveðið á um að stefnumótun sem UMFG ber að skila sé forsenda fyrir áframhaldandi sambærilegum stuðningi Grindavíkurbæjar við UMFG. Frístunda- og menningarnefnd þakkar UMFG fyrir innsenda stefnu en telur hana ekki fullnægjandi og hvetur nefndin stjórn UMFG til að ljúka vinnu við stefnumótun í þeim anda sem farið var yfir á sameiginlegum vinnufundi bæjaryfirvalda og UMFG sl. mánudag.
3. Umsóknir í Afrekssjóð. Jón Axel, Ingvi, Hilmir og Jóhanna Rún.
Samþykkt að veita Körfuknattleiksdeild UMFG styrk vegna þessa unga landsliðsfólks samkvæmt reglum Afrekssjóðs.
4. Vegna vinnuskóla í Grindavík 2013
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur óskar eftir því að unglingar sem eru að æfa körfubolta og eru í vinnuskólanum fái að mæta á æfingar í vinnutíma sínum. Nefndin hafnar því að unglingar geti æft og þegið laun fyrir en leggur til að vinnutíma verði hagrætt í samvinnu við verkstjóra vinnuskólans til að geta skilað þeim tímum sem þau hafa kost á.
5. Umsókn um styrk
Heiðar Örn Sverrisson sækir um styrk vegna æfinga dóttur sinnar sem leggur stund á mótorcross æfingar og er kostnaður um 20.000 kr. pr. mánuð. Nefndin getur ekki orðið við erindinu.
6. Menningarvika 2013
Nefndin óskar Grindvíkingum til hamingju með frábæra menningarviku og þakkar Kristni Reimarssyni sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs fyrir góða skipulagningu og Grindvíkingum fyrir góða þátttöku.
7. Vinnuskóli Grindavíkur 2013
Farið yfir tillögu sviðsstjóra um vinnufyrirkomlag Vinnuskóla Grindavíkur sumarið 2013. Nefndin samþykkir framkomnar tillögur.
8. 17. júní 2013
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir að auglýsa eftir framkvæmdaraðila.
9. Sjóarinn síkáti 2013
Framkvæmd hátíðarhaldanna rædd. Undirbúningur er hafinn og eru Grindvíkingar hvattir til að taka virkan þátt í hátíðinni. Ábendingar um dagskrárliði er hægt að senda á sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs á netfangið kreim@grindavik.is Frestur til að skila inn upplýsinga sem fara í prentaða dagskrá er til 15. maí.
10. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerðin lögð fram.
11. Beiðni um styrk til malbikunar og frágangs á bílastæði við Húsatóftavöll og klæðningar golfskála
Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið um malbikun bílastæðis og felur bæjarráði að koma þessu inn á fjárhagsáætlun komandi ára. Er varðar beiðni um styrk vegna klæðningar á golfskálanum þá vísar nefndin til fyrri afgreiðslu vegna þessa erindis á 14. fundi frístunda- og menningarnefndar þann 17. október 2012.