Frístunda- og menningarnefnd - 75. fundur
- 05.09.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 21:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 75
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Ungmennaráð: Umferðaröryggi okkar mál
Ungmennaráð: umferðaröryggi okkar mál, ráðstefna sem haldin verður í nóvember um uferðaröryggi. Sótt var um styrk í Erasmus+ og var hann veittur.
Ráðstefna verður 8.-9. nóvember um ungt fólk og umferðaröryggi. Styrkur fékst frá Erasmus . Nefndn hrósar ungmennaráði fyrir frumkvæðið en bendir á skamman tíma til undirbúnings
2. Ósk um styrk til kaupa á búnaði fyrir yngri flokka
Ósk frá Knattspyrnudeild UMFG um styrk vegna kaupa á búnaði
Rætt um styrkveitingar til deilda innan UMFG. Nefndin hafnar erindinu
Fylgiskjöl
3. Lengd viðvera Grunnskóla í Íþróttahúsinu
Til kynningar: Lengd viðvera Grunnskóla í Íþróttahús
Sviðsstjóri fór yfir málavexti. Málið var rætt á fundi bæjarráðs nr.1490 og var vísað til sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs. Nefndin bendir á að til er Íþróttastefnu Grindavíkurbæjar 2015-2020 en þar segir í 1. kafla um Barna- og unglingastarf: "Íþróttafélög, frístundaaðilar og skólar vinni markvisst í því að samræma stunda- og æfingatöflur fyrir
nemendur til þess að forðast árekstra og hafa samfelldan skóladag eins og kostur er". Nefndin leggur áherslu á að í lok skólaárs eigi samtal sér stað þar sem farið er yfir komandi skólaár og að þessu samtali komi forstöðumaður íþróttamannvirkja, fulltrúi UMFG og Grunnskóla Grindavíkur.Fylgiskjöl
4. Frístundahandbók 2018-2019
Vinna við Frístundahandbók að hefjast og frístundafulltrúi heldur utanum gerð hennar
Frístundahandbók er í undirbúningi og verður birt í lok september. Bæklingurinn verður settur á heimasíðuna og dreift í gegnum íþróttafélögin, skóla og á samfélagsmiðlum. Áhersla lögð á að handbókin verði vel sýnileg á heimasíðu Grindavíkurbæjar.
5. Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands 2018
Lýðheilsugöngur UMFÍ 2018: Dagskrá í Grindavík
Farið yfir dagskrá í Grindavík og Grindvíkingar hvattir til þess að nýta sér göngurnar og taka þátt í heilsueflandi samfélagi.
6. SÍM - Residency, gestavinnustofur í Gesthúsi
Til kynningar: SÍM, samband ísl. myndlistarmanna óskar eftir samstarfi við rekstur gestavinnustofu fyrir erlenda listamenn í Gestshúsi
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð hafnaði erindi SÍM á fundi nr. 1490
Fylgiskjöl
7. Umsókn um launalaust leyfi
Til kynningar: Beiðni frá Jóhanni Árna Ólafssyni um launalust leyfi til náms frá sept 2018-sept 2019
Jóhann Árni fer í leyfi og Sigríður Etna tekur við starfi frístundaleiðvbeinanda í Þrumunni. Málið hefur þegar farið fyrir bæjarráð og verið samþykkt
8. Afrekssjóður 2018
9. Afreksjóður 2018: Elísabeth Ýr Ægisdóttir
Afrekssjóður umsókn vegna landsliðsferðar
Umsókn samþykkt
Fylgiskjöl
10. Afrekssjóður: Umsókn um ferðastyrk vegna landsliðsferða 2018
Afrekssjóður umsókn um styrk vegna landsliðsferðar
Umsókn samþykkt
Fylgiskjöl
11. Afrekssjóður: Umsókn um ferðastyrk vegna landsliðsferða 2018
Afrekssjóður umsókn um styrk vegna landsliðsferðar
Umsókn samþykkt
Fylgiskjöl
12. Afrekssjóður: Umsókn um ferðastyrk vegna landsliðsferða 2018
Afrekssjóðour umsókn um styrk vegna landsliðsferðar
Umsókn samþykkt
Fylgiskjöl
13. Afrekssjóður 2018: Milan Stefán Jankovic
Afrekssjóðour umsókn um styrk vegna námskeiðs þjálfara
Umsókn hafnað á grundvelli reglna um Afrekssjóð og áherslur á styrkingu unglingastarfs
Fylgiskjöl
14. Sjóarinn síkáti 2018: verkefnisáætlun
Umræða um framtíð Sjóarans Síkáta
Sjóarinn fór langt fram úr fjárheimildir. Bryggjutónleikar voru nýlunda og breyttu ásýnd hátíðarinnar en ákveða þarf um framhaldið. Nefndin leggur til að framtíð hátíðarinnar fari til umræðu hjá bæjarráði. Nefndin leggur til að skipaður verði af bæjarráði, vinnuhópur sem leggi fram tillögur að fyrirkomulagi hátíðarinnar og framtíð hátíðarinnar.
Fylgiskjöl
15. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Tilnefna þarf fulltrúa frá Fríst. - og menningarnefnd vegna endurnýjunar samninga. Samantekt um lausa samninga lögð fram
Samningurinn rennur út um áramótin 2018/2019. Lagt er til að samningurinn verði framlengdur fram að áramótum 2019/2020, upphæðir hækkaðar í samræmi við vísitölu og unnið að nýjum samningi á næsta ári. Sviðsstjóra falið að ræða við UMFG og skila inn uppkasti að framlengdum samningi á næsta fundi.
16. Vinnuskólinn: skipulag 2018
Farið yfir sumarið hjá Vinnuskólanum
Breyting var gerð á vinnufyrirkomulagi og 8. og 9. bekkur unnu ekki samtímis. Nefndarmenn vilja auka vinnu nemenda er gera ráð fyrir 7. bekk í vinnu. Ýmsar hugmyndir um fyrirkomulag ræddar. Nefndin bendir á að auka þurfi fjármagn til Vinnuskólans og óskar eftir auknu fjármagni, vinna nemenda verði aukin auk þess sem yngri árgangi verði bætt við. Málinu vísað til bæjarráðs og óskað eftir að tekin verði afstaða til þess innan hvaða sviðs Vinnuskólinn eigi að vera. Frístunda- og menningarnefnd álítur að Vinnuskóli eigi betur heima innan annars sviðs.
17. Hátíðarhöld: 17. júní 2018
Skipulag hátíðarhalda 17. júní 2018
Farið yfir hátíðarhöldin, hátíðarhödlin fóru fram við Íþróttahús og gekk vel.
18. Ósk um aðstöðu fyrir Pílufélag Grindavíkur
Pílufélagið óskað eftir æfingaaðstöðu
Nefndin getur ekki orðið við beiðninni en felur sviðsstjóra að ræða við félagið um samnýtingu á rými
Fylgiskjöl
19. Leikjanámskeið 2018
Farið yfir leikjanámskeið sumarsins
Aðsókn að leikjanámskeiðinu var dræm í lokin og ástæða til þess að athuga með að bjóða þeim nemendum sem eru að ljúka skólavist í leikskóla og hefja skólavist í Grunnskóla að hausti, þátttöku á leikjanámskeiðinu. Aðgangur að skráningu á námskeiðin þarf að vera opnaður strax í upphafi árs og nefndin leggur til að hærra gjald sé á skráningar sem gerðar eru nálægt upphafi leikjanámskeiðs. Nefndin leggur ennfremur áherslu á að Leikjanámskeið fái aðstöðu í Hópsskóla fyrir starfsemi sína.
20. Hjólabrettaaðstað: tillögur um breytingar á stökkpalli við Hópsskóla
Rampar sem fara áttu upp við Hópsskóla voru settir upp við Ásabraut
Nýjir stökkpallar voru settir upp á Ásabraut. Sviðsstjóra falið að ræða við notendur um framhaldið.
21. Hestamannafélagið Brimfaxi: Uppbygging reiðvegakerfis
Skilgreining leiða, reiðleiða og annarra leiða er í afgreiðslu hjá skipulags- og umhverfissviði
Fylgiskjöl
22. Ærslabelgur
Tillaga frá frístunda- og menningarnefnd um að setja upp ærslabelg í Grindavík
Nefndin er jákvæð fyrir uppsetningu ærslabelgs. Sviðsstjóra falið að setja ærslabelg á fjárhagsáætlun og koma með hugmyndir að staðsetningu útfrá öðrum hugmyndum um uppbyggingu útileiksvæða/íþróttaaðstöðu
23. Uppsetning Hreystigarðs í Grindavík: Kostnaðaráætlun og staðsetning
Sviðsstjóra hefur verið falið að vinna málið. Málið tekið fyrir með afbrigðum á 75. fundi frístunda- og menningarnefndar
Málinu frestað til næsta fundar nefndarinnar og sviðsstjóra falið að afla upplýsinga og gagna um kostnað við framkvæmd.