Frístunda- og menningarnefnd - 65.. fundur
- 14.09.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 65.
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
1. Heilsu- og forvarnarvika:2.-8. október 2017
Verkefnið kynnt. Unnið verður saman á Suðurnesjum að þessu verkefni í anda Safnahelgarinnar.
2. Hjólabrettaaðstað: tillögur um breytingar á stökkpalli við Hópsskóla
Ósk frá iðkendum hjólabretta/hlaupahjóla um bætta aðtstöðu við Hópsskóla
Sagt frá heimsókn félaganna Einars, Arnþórs, Arnórs og Jóns. Björg og Ármann hittu þá félaga og ræddu við þá um hvað hægt væri að gera. Hugmyndir verða tilbúnar fyrir fjárhagsáætlun.
3. Fjölmenningarstefna: vinna verkefnishóps
Verkefnahópur skipaður að nýju og haldið áfram með fjölmenningarstefnu. Verkefni haustsins kynnt og helstu áherslur þar til verkefnahópurinn hefur hafið störf.
Verið er að mynda vinnuhóp um vinnu fjölmenningarstefnu.
4. Fjölmenning: Samstarfsverkefni leikskóla og listamanna
Kynning: Samstarfsverkefni milli leikskóla og listamanna unnið undir merkjum fjölmenningar
Sagt frá verkefni sem verið er að undirbúa með leikskólunum þar sem unnið verður með listamönnum og fjölbreytileikinn skoðaður.
5. Leikjanámskeið 2017
Farið yfir gang mála á leikjanámskeiði 2017
Nefndin leggur áherslu á að upplýsingar um framboð námskeiða sé vel auglýst og aðgengilegt. Auðvelt sé að komast inn af heimasíðu, leiðin stutt og greinileg. Rekstur leikjanámskeiðs varð dýrari en áætlað var. Bent á að hægt sé að nota Nora við skráningu á námskeið. Lagt er til að skpulag sé endurskoðað og undirbúningur byrji fyrr.
6. Hátíðarhöld: 17. júní
Kynning: þjónustuaðilar útileiktækja á viðburðum eins og Sjóaranum síkáta og 17. júní og úrlausnarefni sem komið hafa upp.
Fenginn var nýr þónustuaðili til að sjá um leiktæki á 17. júní. Erfiðleikar komu upp í samstarfi við þann þjónustuaðila sem unnið hefur verið með þjónustuna undanfarin ár. Viðbúið er að kostnaður getur orðið meiri. Nefndin felur sviðsstjóra að gera úttekt á kostnaði við leigu og kostnaði við að eiga hoppukastala. Umferð og stöðvun aksturs á viðburðum þarf að vera trygg. Sviðsstjóra falið að vinna áætlun og ganga frá samkomulagi við hlutaðeigandi aðila.
7. Sjómannagarður: útikennslusvæði.
Almennar umræður um Sjómannagarðinn og útikennslusvæðið
Umsjónarmanni opinna svæða er hrósað fyrir liðlegt viðmót og skjót viðbrögð. Bæta þarf aðstöðuna og setja fráleggsborð/hillur á útikennslusvæði. Nefndin hrósar þeim framkvæmdum og lagfæringum sem verið er að vinna að í Sjómannagarðinum.
8. Tónlistarhús 2017: tónlistarmiðstöð fyrir alla aldurshópa í Grindavík
Kynning á hugmynd um tónlistarhús, tónlistarmiðstöð þar sem aðstaða, æfingaraðstaða fyrir börn og unglinga er byggð upp
Nefndin fagnar hugmyndinni og leggur til að hugmyndin sé þróuð áfram og mótuð. Sviðsstjóra falið að vera tengiliður við hópinn og honum innan handar.
9. Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands 2017
Kynning á afmælishátíð Ferðafélags Íslans, Lýðheilsugöngu 2017
Sagt frá verkefninu og þeim göngum sem búið er að fara og þeim sem eftir er. Gengið er á miðvikudögum kl. 18 frá Kvikunni.
10. Grindavíkurbær: Heilsueflandi samfélag
Vinna við fjárhagsáætlun og verkefnaáætlun að hefjast. Starfsmaður ráðinn, viðauki fékst til að ráð tímabundið í 50% starfs.
Starfsmaður hefur verið ráðinn tímabundið í gerð verkefnaáætlunar og fjárhagsáætlunar. Áætlanir verða lagðar fram í fjáhagsáætlunargerð og í kjölfarið sótt um aðild.
11. Tjaldsvæði: 2017
Sviðsstjóri frístunda- og menningarnefndar segir frá starfsemi á tjaldsvæði það sem af er árs 2017
Sagt frá áætlunum um lengda opnun tjaldsvæðis.
12. Fundargerðir: Kvikan 2017
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs segir frá starfinu í Kvikunnu það sem af er ári 2017
Sagt frá sumarinu, tölur eru ekki komnar. Verða kynntar þegar þær berast.
13. Félagsmiðstöðin Þruman: Verkefnisáætlun 2017
Ósk um viðauka vegna aukinnar aðsóknar
Staðan kynnt, sótt verður um viðauka vegna aukinnar viðveru starfsmanna. Mikil aukning hefur orðið á sókn unglinga í Þrumuna. Starfið gengur vel og ánægja er með starfsemi Þrumunnar.
14. Afrekssjóður: Alex Máni vegna EM í pílukasti
umsókn í íþrótta- og afrekssjóð
Samþykkt
15. Afrekssjóður: Alexander Veigar vegna EM í pílukasti
umsókn í íþrótta- og afrekssjóð
Samþykkt
16. Afrekssjóður: umsókn frá Körfuknattleiksdeild vegna þátttöku Andreu Bjarkar Gunnarsdóttur í NM U16 í Finnlandi
umsókn í íþrótta- og afrekssjóð
Samþykkt
17. Íþrótta- og afrekssjóður Grindavíkur: umsókn frá Körfuknattleiksdeild vegna þátttöku Ingunn Embla Kristínardóttir
umsókn í íþrótta- og afrekssjóð
Samþykkt
18. Afrekssjóður: Ingvi þór Guðmundsson vegna U20
umsókn í íþrótta- og afrekssjóð
Samþykkt
19. Afrekssjóður: Nökkvi Már Nökkvason
umsókn í íþrótta- og afrekssjóð
Samþykkt
20. Afrekssjóður: Andra Björk Gunnarsdóttir
Umsókn í íþrótta- og afrekssjóð
Samþykkt
21. Menningarvika 2018: Frístunda- og menningarsvið
Dagsetning Menningarviku 2018 ákveðin og helstu áherslur
Menningarvika verður haldin dagana 10.-18. mars 2018. Undirbúningur er hafinn.
22. Ungmennaráð: 2017
Fundargerðir frá ungmennaráði 2017
Farið yfir fundargerðir ungmennaráðs. Engar athugasemdir gerðar.