Frístunda- og menningarnefnd - 72.. fundur
- 04.04.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 72.
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
1. Sjómannagarður: útikennslusvæði.
Ástand og lagfæringar við garðinn
Nefndin leggur áherslu á að hafist verði handa við að laga það sem eyðilagðist í roki í haust og ganga vel frá garðinum þannig að hann verði tilbúinn fyrir hátíðarhöld á Sjómannadag og sumarið.
2. Golfklúbbur Grindavíkur: Ársskýrsla og ársreikningur 2017
Farið yfir ársskýrslu Golfklúbbsins.
3. Samningur: afnot og nýtingu á myndbrotum frá Viðari Oddgeirssyni
Afhending myndbanda frá Viðari Oddgeirssyni
Samningurinn kynntur
4. Sjóarinn síkáti 2018: verkefnisáætlun
Mynd er að koma á dagskrá Sjóarans síkáta 2018 og drög kynnt. Kynning hefst á næstu dögum
Sagt frá undirbúningi hátíðarinnar
5. Knattspyrnufélagið GG: ósk um styrk
Samningur lagður fram til samþykktar, upphæð hækkar í 260.000 kr. p. ár úr 200.000 kr
Samningurinn samþykktur og vísað til bæjarráðs. Óskað eftir viðauka uppá 60.000 samkvæmt hækkun á stuðningi árið 2018
6. Ungmennaráð: 2018
Fundargerðir kynntar. Athygli vekur að nemendur sem voru fulltrúar Grindavíkurbæjar á þingi UMFÍ, ungt fólk og lýðræði, hafi ekki fengið leyfi frá fjölbrautaskólanum og fengið fjarvist vegna þátttökunnar.
7. Menningarvika 2018: Frístunda- og menningarsvið
Farið yfir dagskrá hátíðarinnar. Nefndin lýsir ánægju með menningarvikuna
8. Vinnuskólinn; skipulag 2018
Umsóknarfrestur liðinn, viðtöl verða tekin 5. og 6. apríl og gengið frá ráðningum eftir viðtölin.
Sagt frá undirbúningi vinnuskólans næsta sumars. Gengið verður frá ráðningu flokksstjóra í næstu viku. Nefndin bendir á að verkefni Vinnuskóla eigi ekki að vera undir þessari nefnd.
9. Íþróttahús: starfsmannaþörf vegna stækkunar
Vinna er hafin við að greina þær þarfir sem verða með stækkun hússins í starfsmannamálum, verkefnum og stöðugildum. Nefndin bendir á að það sé öryggisatriði að fjöldi starfsmanna og verkefni endurspegli umfang starfseminnar. Nefndin bendir á að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem umræða um fjölda stöðugilda kemur upp en lítið virðist aðhafst eða brugðist við tillögum um breytingar.
10. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Ofþjálfun/ofurþjálfun samningur við HR / Svein Þorgeirsson
Nefndin leggur til að rætt verði við Svein og HR um rannsóknir á árangri þess markvissa starfs sem unnið er samkvæmt samningum UMFG og Grindavíkurbæjar. Lagt er til að stofnaður verði sjóður þar sem nemendur HR og aðrir sem rannsaka vilja verkefnið og árangur þess, geti sótt um styrk til ferða og rannsóknarvinnu.
11. Gesthús: ósk um flutning og eða nýtingu
Styrkur frá Minjastofnun, fundur með arkitekt og starfsmönnum framundan
Styrkur fékkst frá Minjastofnun til þess að hefja vinnu á athugun á ástandi hússins og mögulegri framtíðarstaðsetningu og hlutverki þess.
12. Gesthús: ósk um tímabundin afnot
Ósk frá Prjónasystrum um afnot af húsinu fyrir prjónakvöld
Nefndin tekur vel í þessa ósk Prjónasystra en leggur áherslu á að starfsemin snúist um prjónakvöld en sala prjónavara sé ekki leyfð í húsinu. Sviðsstjóra falið að útbúa samning við Prjónasystur um afnot af Gesthúsi.