Frístunda- og menningarnefnd - 66.. fundur
- 04.10.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 66.
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
1. Frístunda- og menningarsvið: Fjárhagsáætlun 2016-2019
Áætlun fyrir árið 2017 kynnt, fyrstu drög
Sagt frá vinnu vegna fjárhagsáætlunar.
2. Anna Eyjólfsdóttir: Þríeind 339
Áætlun fyrir þátttöku í verkefninu tilbúin og lögð fyrir í fjárhagsáætlun
Staða verkefnisins kynnt
3. Ungmennaráð: 2017
Kosning í Ungmennaráð og fulltrúar í Ungmennaráði
Kosið hefur verið í ráðið. Nefndarmenn lýsa ánægju með verkefnið og að ungmennin hafi áhuga á að taka þátt.
4. Skáknefnd UMFG: ósk um styrk 2017
Nefndin tekur vel í umsókn skáknefndar og vísar umsókninni til bæjarráðs. Nefndin leggur til að hugað verði að iðkunargjaldi þegar skáknefndin fær aðild að UMFG.
5. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2000
Samningurinn rennur út á næsta ári og huga þarf að nýjum samningi. Sviðsstjóra falið að hefja vinnu að endurnýjun. Ákveðið að halda málþing um íþróttaiðkun barna og unglinga, þjálfun og álag og að málþingið verði haldið á menningarvikunni 2018.
6. Fundargerðir: Kvikan 2017
Málinu er frestað þar til stjórn Kvikunnar hefur náð að funda
7. Fjölmenningarstefna: vinna verkefnishóps
Undirbúningur að skipan nefndar og vinnan framundan
Sagt frá verkefninu
8. Gjafir til Grindavíkurbæjar: munir sem boðnir eru til gjafar
Tilboð um að þiggja harmonium að gjöf
Nefndin þakkar sýndan hlýhug og þiggur gjöfina. Sviðsstjóra falið að finnastað fyrir gripinn.
9. Hestamannafélagið Brimfaxi: Barna- og unglingastarf
Staða samnings og framkvæmd
Sviðsstjóra falið að kalla eftir skýrslu frá Brimfaxa og ráðstöfun styrksins
10. Íþróttamannvirki: Niðurrif og jarðvinna
Nefndinni kynnt staða mála, útboðsgögn og áætlanir
Nefndin fagnar því að hafist sé handa við uppbyggingu á íþróttamannvirkinu en leggur áherslu á að gengið sé frá teikingum og áætlanum fyrir áfanga 3.
11. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Drög að Körfuknattleikshúsi og júdósal kynnt
Nefndin leggur áherslu á að lýsing í kringum íþróttamannvirki verði bætt og vel hugað að lýsingu mannvirkja í fyrirhuguðum framkvæmdum. Nefndin bendir á íbúar í Suðurhópi kvarti undan því að lýsing á fótboltavelli lýsi upp hýbýli þeirra. Þessum athugasemdum er vísað til umhverfis- og ferðamálanefndar.
13. Afrekssjóður: Knattspyrnudeild
Umsókn Knattspyrnudeildar í íþrótta- og afrekssjóð
Samþykkt að málið sé tekið fyrir með afbrigðum. Samþykkt með þeim fyrirvara að sótt sé um með réttum hætti og réttu eyðublaði skilað inn samkvæmt reglum sjóðsins í ljósi þess að yfirþjálfari er að sækja sér meiri menntun. Reglur verða yfirfarnar á næsta fundi nefndarinnar.