Frístunda- og menningarnefnd - 30. fundur
- 05.03.2014
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 30
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Unnar Á Magnússonaðalmaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonaðalmaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
- Helgi Þór Guðmundsson2. varamaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Fundargerðir Ungmennaráðs
Nökkvi Harðarson mætti fyrir hönd nýstofnaðs ungmennaráð og fór yfir málefni ungs fólks. Nefndin fagnar því að ungmennaráð skuli vera komið aftur á laggirnar og óskar þeim velfarnaðar.
2. Málefni bókasafns
Margrét R. Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins fór yfir málefni nýbyggingar sameiginlegs bókasafns við grunnskólann. Nefndin leggur áherslu á að leitað verði til faglegs ráðgjafa varðandi litaval og innanstokkshönnun í samráði við forstöðumann.
3. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2014
Nefndin samþykkir að Halldór Lárusson verði útnefndur Bæjarlistamaður Grindavíkur 2014. Verðlaunin verða afhent við setningu Menningarviku 15. mars.
4. Menningarvika 2014
Dagskrá menningarvikunnar lögð fram. Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með fjölbreytta dagskrá á 40 ára kaupstaðarafmæli bæjarins.
5. Skotdeild UMFG - Umsókn um styrk
Nefndin getur ekki orðið við erindinu.
6. Landsmót UMFÍ 2016 - 50
Nefndin hvetur UMFG til þess að sækja um að halda Landsmóti 50+ í Grindavík sumarið 2016 með stuðningi Grindavíkurbæjar. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
7. Umsókn til íþrótta- og afrekssjóðs vegna bikarmeistaratitils karla 2014
Nefndin samþykkir 350.000 kr. samkvæmt reglum íþrótta- og afrekssjóðs. Nefndin óskar Grindvíkingum og nýkrýndum bikarmeisturum meistaraflokks karla í körfubolta til hamingju.
8. Samningur við UMFG um eflingu íþróttastarfs barna og ungmenna.
Nefndin samþykkir að aðalstjórn UMFG fái frest til næsta fundar, miðvikudaginn 2. apríl, til þess að skila inn námskrám eins og kveðið er á um í samningi bæjarins og UMFG. Berist námskrárnar ekki fyrir þann tíma eða að þær uppfylli ekki kröfur nefndarinnar, verður fenginn ráðgjafi til þess að klára vinnu við íþróttanámskrána fyrir UMFG og komi kostnaður við þá vinnu til frádráttar á sérsamningi bæjarins og aðalstjórnar UMFG. Jafnframt er sviðsstjóra falið að vinna að tillögum með aðalstjórn UMFG um útfærslu á áður samþykktri aukafjárveitingu vegna stefnumótunarvinnu um íþróttamál í Grindavík.
9. Félag eldri borgara í Grindavík óskar eftir aðstöðu fyrir púttvöll innanhúss
Nefndin samþykkir að Félag eldri borgara fá aðstöðu í einni útistofunni við grunnskólann fyrir púttvöll og billardborð.
10. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerðin lögð fram.
11. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerðin lögð fram.
12. Endurskoðun jafnréttisáætlunar Grindavíkurbæjar
Nefndin óskar eftir því að frestur til umsagnar verði framlengdur svo hún geti lagt fram umsögn á næsta fundi sínum þann 2. apríl þar sem erindið barst nefndinni með skömmum fyrirvara.