Frístunda- og menningarnefnd - 33. fundur
- 02.06.2014
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 20:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 33
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaramaður
- Páll Þorbjörnssonvaramaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Ársskýrsla UMFG 2013
Samkvæmt samningi UMFG og Grindavíkurbæjar skal halda einn samráðsfund á ári. Fulltrúar UMFG mættu á fundinn til að fara yfir barna- og unglingastarf. Fram kom að uppgangur er í flestum deildum UMFG en helst að það vanti sjálfboðaliða til stjórnarstarfa. Aðilar sammála um að reyna að hafa æfingatöflur í haust fyrr tilbúnar sem er hagræði fyrir alla hlutaðeigandi. Nefndin er ánægð með gróskumikið barna- og unglingastarf innan UMFG.
2. Sjóarinn síkáti 2014
Hátíðin gekk vel þrátt fyrir óhagstætt veður alla helgina. Nefndin þakkar skipuleggjendum fyrir vel unnin störf og bæjarbúum fyrir góða þátttöku.
3. Málefni bókasafns
Minnisblað forstöðumanns bókasafns lagt fram. Sviðsstjóra falið að fara yfir opnunartíma safnsins vegna flutninganna.
4. 17. júní 2014
Drög að dagskrá lögð fram.
5. Umsókn í Afrekssjóð - Ingvi Þór Guðmundsson
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
6. Umsókn í afrekssjóð - Guðjón Sveinsson og Björk Lúkas Haraldsson
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
7. Umsóknir í afrekssjóð - Jens Valgeir Óskarsson
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
8. Rannsókn og Greining, niðurstöður kannanna 2014
Kynntar voru áhugaverðar niðurstöður frá Rannsókn og greiningu um líðan og hagi ungmenna í Grindavík. Ánægjulegt er að sjá að börnum í Grunnskóla Grindavíkur virðist líða almennt vel í skólanum. Niðurstöðurnar verða kynntar fyrir forvarnarteyminu, foreldrum og starfsfólki Grunnskóla Grindavíkur.