Frístunda- og menningarnefnd - 32. fundur
- 02.05.2014
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 20:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 32
- Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Unnar Á Magnússonaðalmaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonaðalmaður
- Þorsteinn Gunnarssonembættismaður
1. Ný líkamsræktaraðstaða
Drög að auglýsingu frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs
Drög að auglýsingu um rekstur líkamsræktar í sundmiðstöð Grindavíkur frá sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs lögð fram. Nefndin leggur til orðalagsbreytingar en vísar málinu að öðru leiti til skipulags- og umhverfisnefndar.
2. Umsókn í Afrekssjóð - Atli Geir Júlíusson
Í samræmi við 4. grein vinnureglna íþrótta- og afrekssjóðs samþykkir nefndin umsóknina.
3. Umsókn í Afrekssjóð - Hilmir Kristjánsson
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
4. Umsókn í Afrekssjóð - Jón Axel Guðmundsson
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
5. Vinnuskóli 2014
Samþykkt hefur verið aukafjárframlag fyrir Vinnuskólann í sumar. Leitað var umsagnar ungmennaráðs um hvernig best væri að nýta fjármagnið. Nefndinni lýst vel á hugmyndirnar sem fela í sér meiri vinnu fyrir flest ungmenni í sumar.
6. Sjóarinn síkáti 2014
Fyrstu drög að dagskrá lögð fram. Nefndin hvetur Grindvíkinga til þess að taka virkan þátt í bæjarhátíðinni okkar.
7. 17. júní 2014
Engin umsókn barst að halda hátíðina og verður hún því í umsjá frístunda- og menningarsviðs. Fyrstu drög að dagskrá lögð fram.
8. Úttekt á frístundastarfi á vegum Grindavíkurbæjar
Eftirfarandi tilnefningar hafa borist í nefnd sem ætlar að móta framtíðarsýn í frístundastarfi Grindavíkurbæjar:
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri- frístunda- og menningarnefndar
Stefanía Jónsdóttir, frá Miðgarði
Petrína Baldursdóttir, frá grunnskólanum
Jóhann Árni Ólafsson, frá Þrumunni9. Stefnumótun Reykjanes jarðvangs
Nefndin samþykkir stefnunmótunina og bindur mikilar vonir við starfsemi Reykjanes jarðvangs.
10. Samráðsfundur UMFG og frístunda- og menningarnefndar
Samkvæmt samningi við UMFG á að halda samráðsfund FRÍ & MEN og aðalstjórnar vegna barna og unglingastarfs. Sjá samning í viðhengi.
Samþykkt að boða aðalstjórn UMFG á næsta reglulega fund nefndarinnar 4. júní nk.
11. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerðin lögð fram.
12. Fundargerðir Ungmennaráðs
Fundargerðin lögð fram.