Frístunda- og menningarnefnd - 24. fundur
- 04.09.2013
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 24
- Ritari: Kristinn Reimarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Helga Kristjánsdóttiraðalmaður
- Kristinn Jakob Reimarssonembættismaður
- Gunnlaugur Jón Hreinssonáheyrnarfulltrúi UMFG
- Kristín María Birgisdóttirvaramaður
1. Siðareglur bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar
Tillaga að siðareglum til umsagnar.
Bæjarráð vísar tillögu að siðreglum til umfjöllunar í nefndum bæjarins. Frístunda- og menningarnefnd fagnar framkomnum siðareglum og hefur engar athugasemdir.
2. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Bæjarstjórn óskar eftir umsögn nefnda.$line$Nefndarfólk er hvatt til að skoða sérstaklega VI. KAFLI um fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en byggðarráð, en auðvitað geta komið fram ábendingar um aðra kafla og einstök ákvæði.$line$Auk draganna er fyrirliggjandi fyrirmynd ráðuneytisins.
Nefndin gerir eftirfarandi athugasemdir við kaflann um frístunda- og menningarsvið:
1) Bæta þarf við upptalningu á lögum sem nefndin vinnur eftir sbr. æskulýðslög nr. 70/2007
2) Varðandi ungmennaráð þá leggur nefndin til eftirfarandi texta: Frístunda- og menningarnefnd sér til þess að ungmennaráð sé starfandi samkvæmt samþykktum þar af lútandi.3. Menningarstefna Grindavíkurbæjar
Vinna við gerð stefnunnar kynnt.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti stöðu mála á vinnu við gerð menningarstefnu. Boðað verður til opins fundar um menningarmál þriðjudaginn 10. september kl. 17:00. Verður fundurinn haldinn í Hópsskóla. Nefndin hvetur alla áhugasama aðila um menningarmál að fjölmenna á fundinn.
4. Vinnuskóli Grindavíkur 2013
Skýrsla sviðsstjóra og umsjónarmanns opinna svæða, um starfsemi Vinnuskólans sumarið 2013, lögð fram.
Nefndin þakkar sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og umsjónarmanni opinna svæða greinargóða skýrslu.
5. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2014-2017
Tímarammi fjárhagsáætlunar lögð fram til kynningar og umræðu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fór yfir tímaramma fjárhagsáætlunar og hvatti nefndarmenn til að huga vel að nýjum og ferskum hugmyndum fyrir komandi ár. Nefndin vekur athygli á því að Grindavíkurbær á 40 ára kaupstaðarafmæli á næsta ári og leggur til að sett verði fjármagn í sérstaka afmælishátíð.
6. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Framhald frá síðasta fundi. Borist hafa gögn frá knattspyrnu- og körfuknattleiksdeild. Bíðum eftir frekari gögnum frá öðrum deildum.
Framhald umræðu frá síðasta fundi. Nefndin felur formanni nefndarinnar, formanni UMFG og sviðsstjóra að afla gagna út frá umræðu á fundinum. Til skoðunar er afreksstarf íþróttahreyfingarinnar, kostnaður við 16 - 18 ára starf og frekari vinna við stefnumótun um íþróttamál í Grindavík.
7. Æfingatöflur íþróttamannvirkja 2013 - 2014.
Lagðar fram til kynningar.
Æfingatöflur íþróttamannvirkja lagðar fram til kynningar.
8. Göngum á Þorbjörn
Hugmynd að heilsueflingarverkefni til kynningar.
Kynnt var hugmynd að heilsueflingarverkefni sem felur í sér laugardagsgöngur upp á Þorbjörn. Nefndin hvetur UMFG til að grípa boltann á lofti og setja sig í samband við Kristján Bjarnason hugmyndasmið og hrinda þessu í framkvæmd sem fyrst.