Frístunda- og menningarnefnd - 21. fundur
- 02.05.2013
- Fundargerð
- Kl. 20:00 - 21:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 21
- Ritari: Kristinn Reimarsson
Nefndarmenn
- Helena Bjarndís Bjarnadóttirformaður
- Jóna Rut Jónsdóttiraðalmaður
- Helga Kristjánsdóttiraðalmaður
- Lovísa H Larsenaðalmaður
- Kristinn Jakob Reimarssonembættismaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
Gunnlaugur Hreinsson formaður UMFG sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi.
1. Málefni bókasafns
Á fundinn mætti Margrét R. Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins. Fór hún m.a. yfir skýrslu frá kynnisferð félags Bókasafnsfræðinga til Hollands frá því í apríl. Kynntar voru hugmyndir um innréttingar í nýtt safn og leist fundarmönnum vel á þær hugmyndir. Rætt var um að fela nemendum að koma að smíði innréttinga og munu Lovísa og Margrét ræða við skólastjóra um útfærslu á þeirri hugmynd. Farið var yfir drög að samningi á milli bókasafnsins og grunnskólans vegna sameiningar almenningsbókasafnsins og skólabókasafnsins. Rætt um hugsanlega nafngift á nýtt safn. Nefndin þakkar Margréti fyrir greinargóða skýrslu.
2. Göngu- og hjólabærinn Grindavík. Tillaga til umfjöllunar
Bæjarráð hefur falið Frístunda- og menningarnefnd að hefja vinnu við stefnumörkun um að gera Grindavík vænni fyrir hjólreiða-og göngufólk. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri kynnti hugmyndina að verkefninu. Nefndin tekur vel í þessa hugmynd og felur formanni og starfsmanni nefndarinnar að útfæra verkefnið og kynna nefndinni.
3. Samningar við UMFG - staða
Farið yfir endurbætta stefnu UMFG og niðurstöður frá vinnufundi um íþróttamál frá 8. apríl sl. Nefndin samþykkir framlagða stefnu UMFG og að gengið verði til samninga við UMFG um áframhaldandi samning um barna- og unglingastarf til næstu þriggja ára og felur formanni að ganga til samninga við UMFG.
4. Afrekssjóður Grindavíkur - styrkveiting vegna Íslands- og deildarmeistaratitils
Stjórn Afrekssjóðs Grindavíkur samþykkir að veita Körfuknattleiksdeild UMFG styrk að upphæð 600.000 kr. vegna Íslands- og deildarmeistaratitils. Upphæðin er í samræmi við vinnureglur sjóðsins. Stjórn Afrekssjóðs óskar körfuknattleiksmönnum innilega til hamingju með frábæran árangur á tímabilinu.
5. Umsókn í Afrekssjóð - Ingibjörg Sigurðardóttir
Körfuknattleiksdeild UMFG sækir um styrk í afrekssjóð vegna landsliðsferðar Ingibjargar Sigurðardóttur á Norðurlandamót ungmenna í Svíþjóð núna í maímánuði. Samþykkt að veita körfuknattleiksdeildinni styrk að upphæð 30.000 kr. í samræmi við vinnureglur sjóðsins.
6. Fundargerðir forvarnarteymis Grindavíkur
Fundargerð frá 3. apríl lögð fram.
7. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerð frá 15. apríl lögð fram.