Frístunda- og menningarnefnd - 76.. fundur
- 03.10.2018
- Fundargerð
- Kl. 19:00 - 21:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 76.
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Pétur Rúðrik Guðmundssonvaramaður
Starfsmenn
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings
Samningur við GG rennur út um áramót. Uppkast að nýjum samningi lagt fyrir
Farið yfir nýjan samning, nefndin setur sínar tillögur og athugasemdir við breytingar frá fyrra ári til yfirlestrar hjá GG. Frestað til næsta fundar
Fylgiskjöl
2. Menningarminjar: Skráning og varðveisla minja og muna í eigu Grindavíkurbæjar
Minnisblað frá sviðsstjóra varðandi skráningu og varðveislu muna í eigu Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri leggur til að aðgangur að Sarpi verði keyptur og skráning unnin í samstarfi við t.d. minja- og sögufélagið. Nefndin leggur til að skuldbindandi og sér samningur verði gerður um skráningu muna í eigu Grindavíkurbæjar við Minja- og sögufélagið um að Grindavíkurbær greiði árgjald, Minja- og sögufélagið sjái um skráningu á munum Grindavíkurbæjar og félagsins án nokkurs auka kostnaðar.
Fylgiskjöl
3. Mennta- og menningarmálaráðuneytið: Aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni í íþrótta- og æskulýðsstarfi
Tillögur starfshóps mennta- og menningarmálaráðherra um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni í íþrótta- og æskulýðsstarfi kynntar
Skýrsla lögð fram til kynningar. Nefndin leggur áherslu á að við gerð nýrra samninga við UMFG verði skýrslan og tillögur hennar hafðar að leiðarljósi. Sviðsstjóra falið að bæta áherslum að í nýjum samningi. Sviðsstjóri sendir skýrsluna til UMFG.
Fylgiskjöl
4. Minja- og sögufélag Grindavíkur: endurnýjun samninga
Samningur við Minja- og sögufélagið rennur út um áramót. Óskir Minja- og sögufélagsins í nýjum samningi kynntar
Nefndin fór yfir tillögur Minja- og sögufélagsins að nýjum samningi, athugasemdir voru gerðar og uppkastið verður sent félaginu til umfjöllunar. Sviðsstjóra falið að senda samninginn.
Fylgiskjöl
5. Heilsueflandi samfélag fyrir yngstu og elstu íbúa Grindavíkur
Málinu vísað til nefndarinnar frá bæjarráði
Nefndin getur ekki orðið við erindinu. Hugmyndin er áhugaverð og full ástæða til þess að áfram sé haldið með að þróa hana. Nefndin leggur til að umsækjandi í samstarfi við sviðsstjóra sæki um styrki til að framkvæma þetta verkefni t.d. sem fyrirmyndarsveitarfélag þar sem áhersla er lögð á líkamlega og andlega heilsu íbúa.
6. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Samningur Grindavíkurbæjar og UMFG er laus um áramót.
Nefndin samþykkir leiðréttingar frá UMFG við sendar tillögur frá Grindavíkurbæ. Samningurinn er til eins árs. Samningur sendur til samþykktar hjá bæjarráði og bæjarstjórn. Nefndin skipar tvo fulltrúa auk sviðsstjóra í samninganefnd fyrir nýjan samning sem tekur gildi árið 2020. Fulltrúar frístunda- og menningarnefndar í samninganefnd eru Jóna Rut og Bjarni auk sviðsstjóra.
Fylgiskjöl
7. Uppsetning Hreystigarðs í Grindavík: Kostnaðaráætlun og staðsetning
Sviðsstjóra hefur verið falið að vinna málið. Málið tekið fyrir með afbrigðum á 75. fundi frístunda- og menningarnefndar
Nefndin fer yfir samantekt sviðsstjóra. Nefndin er sammála um að staðsetning hreystigarðs sé óheppileg í Kúadal. Hreystigarður myndi nýtast betur nær íþróttasvæðinu. Nefndin fagnar hugmyndinni um hreystigarð sem er aðgengilegur öllum en sú útfærsla sem nefnd er í tillögunni er kostnaðarsöm og nefndin setur spurningarmerki við hvort tækin henti börnum jafnt sem fullorðnum.
Fylgiskjöl
8. Kútter Fríða RE13 - Viljayfirlýsing
Óskað eftir að málið yrði tekið fyrir með afbrigðum. Samþykkt samhljóða
Erindinu vísað til bæjarráðs. Nefndin samþykkir að skrifað sé undir viljayfirlýsingu. Viljayfirlýsingin snýr að hýsingu á líkaninu og stingur nefndin uppá að líkanið gæti verið í opnu rými t.d. á bókasafninu eða á annarri hæð á Víkurbraut 62 fyrir framan afgreiðslu bæjarskrifstofu.