Bæjarstjórn Grindavíkur - 557. fundur
- 27.02.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:45
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 557
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Samningur við innviðaráðuneyti - fjármál og rekstur Grindavíkurbæjar
Fulltrúar frá innviðaráðuneytinu mæta á fundinn.
Gestir undir þessum dagskrárlið: Frá Innviðaráðuneyti: Hermann Sæmundsson, Aðalsteinn Þorsteinsson, Sigtryggur Magnason og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
Einnig sátu sviðsstjórar Grindavíkurbæjar og Guðjón Bragason fundinn.
Til máls tóku: Ásrún, innviðaráðherra og Gunnar Már.
Samkomulag milli innviðaráðherra og Grindavíkurbæjar um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag lagður fram og undirritaður af innviðaráðherra og bæjarstjóra.2. Starfsmannamál
Launafulltrúi, Karl Björnsson, Guðjón Bragason og Anton B. Markússon mæta á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundinum verður lagt fram minnisblað frá launafulltrúa og Antoni B Markússyni.Launafulltrúi, Karl Björnsson, Guðjón Bragason, Anton B. Markússon og sviðsstjórar Grindavíkurbæjar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, Karl Björnsson, Hallfríður, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund, Hjálmar, launafulltrúi, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Hallfríður, Helga Dís, Gunnar Már, Anton og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Lögð fram rekstraryfirlit fyrir árið 2024 út frá mismunandi tekjuforsendum.3. Fræðslumál Grindavíkurbæjar - safnskólar
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og yfirsálfræðinguar skólaþjónustu og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, yfirsálfræðingur skólaþjónustu, Birgitta Hrund, Helga Dís, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Rán, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Már og Guðjón.
Umræða um tímalínu vegna samskipta við Skóla ehf. og stjórnenda Heilsuleikskólans Króks.
Bæjarstjórn felur skólaþjónustu Grindavíkurbæjar að afla álits sérfræðinga í málefnum barna sem hafi það hlutverk að meta kosti og galla þess að bjóða upp á safnskóla fyrir börn með lögheimili í Grindavík frá og með næsta skólaári með farsæld barna að leiðarljósi.4. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Farið yfir stöðu mála.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Rán, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hjálmar, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Már, Hallfríður og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn Grindavíkur óskar eftir það að gámaplan Kölku við Austurveg verði opið á virkum dögum frá 16:00 til 19:00 og 13:00 til 17:00 um helgar.5. Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir Keflavíkurborgir
Lögð er fram bókun skipulagsnefndar á 129. fundi, dags. 21. febrúar 2024:
"Lögð var fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar og nýs deiliskipulags fyrir íbúðarbyggð í Keflavíkurborgum í Reykjanesbæ, dags. 10.11.2023. Fyrirhugað er að stækka núverandi íbúðarsvæði um 24 ha og verði það alls 29 ha.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar."Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tók: Ásrún.
Lögð er fram bókun skipulagsnefndar á 129. fundi, dags. 21. febrúar 2024:
Lögð var fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar og nýs deiliskipulags fyrir íbúðarbyggð í Keflavíkurborgum í Reykjanesbæ, dags. 10.11.2023. Fyrirhugað er að stækka núverandi íbúðarsvæði um 24 ha og verði það alls 29 ha.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.6. Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir miðsvæði Vatnsnes
Lögð er fram bókun skipulagsnefndar á 129. fundi, dags.21.feb. 2024:
"Lögð var fram lýsing á aðalskipulagsbreytingu á miðsvæði Vatnsness í Reykjanesbæ. Núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 600 íbúðum á svæðinu sem er um 18,5 ha. Við breytinguna fjölgar íbúðum í 1250 og heildar byggingarmagn eykst í það sem nemur fjölda íbúða ásamt annarri þjónustu á svæðinu.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. Málinu er vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu."Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tók: Ásrún.
Lögð er fram bókun skipulagsnefndar á 129. fundi, dags.21.feb. 2024:
Lögð var fram lýsing á aðalskipulagsbreytingu á miðsvæði Vatnsness í Reykjanesbæ. Núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 600 íbúðum á svæðinu sem er um 18,5 ha. Við breytinguna fjölgar íbúðum í 1250 og heildar byggingarmagn eykst í það sem nemur fjölda íbúða ásamt annarri þjónustu á svæðinu.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. Málinu er vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.7. Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir frístundabyggð í landi Hvamms og íbúðarbyggð í landi Seljavogar 2a
Lögð er fram bókun skipulagsnefndar á 129. fundi, dags. 21. febrúar 2024:
"Lögð var fram skipulagslýsing á aðalskipulagsbreytingu fyrir tvö mál í Höfnum. Annars vegar að taka 0,34 ha af skilgreindu opnu svæði og 0,06 ha af svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Hvamms (samtals 0,4 ha) og breyta í frístundabyggð. Hins vegar að 0,8 ha af opnu svæði í landi Seljavogs 2a verði breytt í íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar."Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tók: Ásrún.
Lögð er fram bókun skipulagsnefndar á 129. fundi, dags. 21. febrúar 2024:
Lögð var fram skipulagslýsing á aðalskipulagsbreytingu fyrir tvö mál í Höfnum. Annars vegar að taka 0,34 ha af skilgreindu opnu svæði og 0,06 ha af svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Hvamms (samtals 0,4 ha) og breyta í frístundabyggð. Hins vegar að 0,8 ha af opnu svæði í landi Seljavogs 2a verði breytt í íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.8. Tjón á mannvirkjum vegna náttúruhamfara í Grindavik
Tölvupóstur frá Náttúruhamfartryggingu Íslands (NTÍ) og uppfærður listi frá þeim yfir tjónuð hús lagður fram. NTÍ óskar eftir formlegri afstöðu sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar til þess hvort viðgerð og/eða endurbygging þeirra eigna sem tilgreind eru á listanum verði heimiluð.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Tölvupóstur frá Náttúruhamfartryggingu Íslands (NTÍ) og uppfærður listi frá þeim yfir tjónuð hús lagður fram. NTÍ óskar eftir formlegri afstöðu sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar til þess hvort viðgerð og/eða endurbygging þeirra eigna sem tilgreind eru á listanum verði heimiluð.
Bæjarstjórn frestar málinu til næsta fundar.9. Niðurrif húsa undir hrauni
Niðurrif húsa sem liggja undir hrauni að hluta til umræðu. Minnisblað frá byggingarfulltrúa lagt fram.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi nr. 129 þann 21. febrúar sl. þar sem útfærsla byggingarfulltrúa var samþykkt. Var erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Birgitta Hrund, Hallfríður og Hjálmar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða það verklag sem sviðsstjóri skipulags- og umhverfisviðs lagði til á fundinum.10. Ósk um endurgreiðslu árskorta í líkamsrækt
Óskað er eftir umræðu um hvort endurgreiða eigi árskort hjá Gym heilsu.
Sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, yfirsálfræðingur skólaþjónustu og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Birgitta Hrund,
Gym Heilsa hefur lagt til að endurgreiða árskort.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að endurgreiða árskortin, hlutfallslega miðað við gildistíma, og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.11. Frístundir barna- og ungmenna sumarið 2024
Óskað er eftir umræðu um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í sumar, s.s. námskeið, íþróttaæfingar og vinnuskóla.
Sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, yfirsálfræðingur skólaþjónustu og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, yfirsálfræðingur, sviðsstjóri félagsmála- og fræðslusviðs, Birgitta Hrund, Helga Dís, Hjálmar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Farið yfir stöðu mála.12. Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2023
Fundargerð 555. stjórnarfundur Kölku, haldinn þann 13. febrúar 16:30 lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 555. stjórnarfundur Kölku, haldinn þann 13. febrúar 2024 er lögð fram til kynningar.