Bæjarstjórn Grindavíkur - 585. fundur
- 20.05.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 14:55
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 585
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Kristín Ragnheiður Eiríksdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Ársuppgjör 2024 - Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur lagður fram eins og hann stendur núna.
Fyrri umræða um ársreikninginn.
Vísa þarf ársreikningi til síðari umræðu í bæjarstjórn.Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hjálmar, bæjarstjóri, Hallfríður og Gunnar Már.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2024 er lagður fram til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.2. Skólastarf í Grindavík skólaárið 2025-2026
Borist hefur erindi frá framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa við Grindavík um að sami háttur verði hafður á varðandi leik- og grunnskólahald í Grindavík skólaárið 2025-2026 eins og verið hefur á yfirstandandi skólaári.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Rán, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusvið, Hjálmar, Gunnar Már og Birgitta Hrund.
Lagt fram bréf frá Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, dags. 13. maí 2025 um ákvörðun nefndarinnar um að ekki verði skólastarf í Grindavík skólaárið 2025-2026.
Bæjarstjórn vekur athygli á að viðgerðir skólamannvirkja eru í fullum gangi og bindur vonir við að hægt verði að hefja skólastarf í Grindavík þegar aðstæður leyfa.3. Endurnýjun á ærslabelg
Samþykkja þarf viðauka við fjárhagsáætlun 2025 vegna ærslabelgsins.
Áætlaður kostnaður við ærslabelg er 5.000.000 kr. og lagt til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á verkefninu Þakdúkur tónlistarskóla og bókasafns.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund og Hjálmar.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2025 að fjárhæð 5.000.000 kr. vegna kostnaðar við nýjan ærslabelg. Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á verkefninu Þakdúkur tónlistarskóla og bókasafn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.4. Sævar Þór Birgisson - Beiðni um lausn frá störfum sem bæjarfulltrúi
Sævar Þór Birgisson óskar lausnar frá störfum sem bæjarfulltrúi vegna persónulegra ástæðna.
Til máls tók: Ásrún.
Sævar Þór Birgisson, fulltrúi Raddar unga fólksins, óskar eftir lausn frá störfum sem bæjarfulltrúi. Inga Fanney Rúnarsdóttir mun taka sæti sem aðalmaður í bæjarstjórn og Ragnheiður Eiríksdóttir verður varamaður.
Bæjarstjórn samþykkir erindið samhljóða.5. Kjör forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta
Kjósa þarf 3 aðalmenn í bæjarráð og 3 varamenn. Kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð eru aðalfulltrúar í bæjarstjórn.
Einnig þarf að kjósa formann og varaformann.Til máls tók: Ásrún.
Forseti leggur til að eftirtalin verði kjörin út kjörtímabilið
Forseti bæjarstjórnar: Ásrún Helga Kristinsdóttir 1. varaforseti: Inga Fanney Rúnarsdóttir og 2. varaforseti: Hallfríður Hólmgrímsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.6. Kosning í bæjarráð, sbr. 28. gr. og A lið 48. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar
Kjósa þarf 3 aðalmenn í bæjarráð og 3 varamenn. Kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð eru aðalfulltrúar í bæjarstjórn.
Einnig þarf að kjósa formann og varaformann.Til máls tók: Ásrún.
Forseti leggur til að eftirtalin verði kjörin í bæjarráð út kjörtímabilið
Aðalmenn: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, varaformaður, og Hallfríður Hólmgrímsdóttir.
Áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt: Inga Fanney Rúnarsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.7. Fundargerðir 2025 - Þekkingarsetur Suðurnesja
Fundargerð 55. fundar Þekkingarseturs Suðurnesja lögð fram og kynnt.
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Fundargerð 55. fundar Þekkingarseturs Suðurnesja, dags. 20. febrúar 2025, er lögð fram til kynningar.8. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2025
Fundargerð 317. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 08.04.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Gunnar Már.
Fundargerð 317. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, dags. 8. apríl 2025, er lögð fram til kynningar.9. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 11.04.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 11. apríl 2025, er lögð fram til kynningar.10. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 30.04.2025 er lögð fram til kynningar
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. apríl 2025, er lögð fram til kynningar.11. Bæjarráð Grindavíkur - 1681
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.12. Bæjarráð Grindavíkur - 1682
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Rán og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.13. Samfélagsnefnd - 7
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Rán, Gunnar Már og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.