Bæjarstjórn Grindavíkur - 584. fundur
- 29.04.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 584
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Sævar Þór Birgissonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar forseti eftir að taka inn 6 mál með afbrigðum en það eru fjórar fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga og tvær fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og eru nr. 7-12 í dagskránni.
Samþykkt samhljóða.
Birgitta Hrund og Sævar Þór sátu fundinn í gegnum Teams.
1. Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2025
Gert er ráð fyrir að eftirfarandi mæti á fundinn frá UMFG:
Klara Bjarnadóttir, formaður UMFG
Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar UMFG
Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar UMFG
Drög að samningi vegna stuðnings við Ungmennafélag Grindavíkur eru lögð fram.Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Klara Bjarnadóttir, formaður UMFG, Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar UMFG,
Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar UMFG og Tómas Þór Eiríksson.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstsjóri frístunda- og menningarsviðs, Ingibergur, Birgitta Rán, Gunnar Már, Haukur, Hjálmar, Hallfríður, Tómas, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund og Klara.
Drög að samningi vegna stuðnings við Ungmennafélag Grindavíkur og sameiginleg yfirlýsing Grindavíurbæjar og UMFG eru lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samning og yfirlýsing og felur forseta bæjarstjórnar að undirrita fyrir hönd bæjarins.2. Samningur um stuðning við Björgunarsveitina Þorbjörn 2025
Samningur við Björgunarsveitina Þorbjörn lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Samningur við Björgunarsveitina Þorbjörn lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.3. Aðgerðalisti forgangsröðun verkefna 2025 og næstu ára
Lögð fram drög að aðgerðalista fyrir árið 2025 og til næstu ára.
Guðjón, SRK, Jón Þ og SAK munu fínpússa drögin nk mánudagsmorgun sem taka því mögulega breytingum fyrir fundinn.Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, hafnarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Birgitta Rán, Hjálmar og Birgitta Hrund.
Lögð fram drög að aðgerðalista fyrir árið 2025 og til næstu ára.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að formlegt samtal eigi sér stað sem fyrst við Grindavíkurnefndina og forsætisráðuneytið til að ræða fjármögnun verkefna sem ráðast þarf í á þessu ári.4. Fasteignagjöld 2025
Lögð fram til samþykktar tillaga um fyrirkomulag á álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2025 þar með talið breytingu á gjalddagaskiptinu álagningar.
Tillaga
Alþingi samþykkt þann 31.01.2024, lög nr. 979/2024, um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (fasteignaskattur í Grindavíkurbæ) sem tóku til heimildar vegna ársins 2024. Þann 10. apríl 2025 samþykkti Alþingi lög um framlengingu á þessum heimildum fyrir árið 2025.
Með vísan til þessara laga er hér lögð fram tillaga um að falla frá álagningu fasteignaskatts í Grindavík fyrir árið 2025 á eftirfarandi eignir:
Að fallið verði frá álagningu á eignir sem falla undir a- og c- lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og eru innan þéttbýlismarka Grindavíkur skv. aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032.
Aðrar eignir en þarna falla undir munu fá álagðan fasteignaskatt á árinu 2025.
Auk þess er lagt til að ekki verði álagning eftirfarandi gjalda: Lóðarleiga, Vatnsgjald, fráveitugjald og sorpgjöld. Aukavatnskattur verður álagður skv. álestri vatnsmæla.
Jafnframt er lagt til að gjalddagaskipting fasteignagjalda verði breytt þannig að gjalddagar fasteignagjalda fyrir árið 2025 verði 8 í stað 10 og sá fyrsti verði 1. maí 2025 og sá síðasti 1. desember 2025.
Tillagan er sett fram í ljósi þess að enn eru takmarkanir á aðgengi og nýtingu fasteigna innan þéttbýlis í Grindavík en slíkt á ekki við um önnur svæði innan lögsögu Grindavíkurbæjar.
Þessi tillaga er í samræmi við það sem ákveðið var í fjárhagsáætlun 2025.Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Birgitta Rán, Hjálmar og Birgitta Hrund.
Tillaga
Alþingi samþykkti þann 31.01.2024, lög nr. 979/2024, um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (fasteignaskattur í Grindavíkurbæ) sem tóku til heimildar vegna ársins 2024. Þann 10. apríl 2025 samþykkti Alþingi lög um framlengingu á þessum heimildum fyrir árið 2025.
Með vísan til þessara laga er hér lögð fram tillaga um að falla frá álagningu fasteignaskatts í Grindavík fyrir árið 2025 á eftirfarandi eignir:
Að fallið verði frá álagningu á eignir sem falla undir a- og c- lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og eru innan þéttbýlismarka Grindavíkur skv. aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032.
Aðrar eignir en þarna falla undir munu fá álagðan fasteignaskatt á árinu 2025.
Auk þess er lagt til að ekki verði álagning eftirfarandi gjalda: Lóðarleiga, vatnsgjald, fráveitugjald og sorpgjöld. Aukavatnsskattur verður álagður skv. álestri vatnsmæla.
Jafnframt er lagt til að gjalddagaskipting fasteignagjalda verði breytt þannig að gjalddagar fasteignagjalda fyrir árið 2025 verði 8 í stað 10 og sá fyrsti verði 1. maí 2025 og sá síðasti 1. desember 2025.
Tillagan er sett fram í ljósi þess að enn eru takmarkanir á aðgengi og nýtingu fasteigna innan þéttbýlis í Grindavík en slíkt á ekki við um önnur svæði innan lögsögu Grindavíkurbæjar.
Þessi tillaga er í samræmi við það sem ákveðið var í fjárhagsáætlun 2025.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.5. Skýrsla um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ
Lögð fram lokaskýrsla KPMG til bæjarstjóra um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ vegna ársins 2024.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Guðjón, Birgitta Hrund og Hallfríður.
Lögð fram lokaskýrsla KPMG til bæjarstjóra um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ vegna ársins 2024.
Bæjarstjóra falið að gera þær úrbætur sem bent er á í skýrslunni.6. Efrahóp 18 - Tilboð til Grindavíkurbæjar um innlausn
Lagt fram tilboð Cato lögmanna fyrir hönd lóðarhafa að Efrahópi 18, um að Grindavíkurbær leysi til sín lóðina ásamt húsgrunni, gegn greiðslu að fjárhæð 16.300.000 kr.
Ekki er hægt að gera ráð fyrir að tekin verði afstaða til tilboðsins á fundinum en drög að bókun verður bætt við á mánudag.Sævar Þór víkur af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Rán, Gunnar Már og Birgitta Hrund.
Bæjarstjórn telur sér ekki fært að verða við erindinu.7. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Guðjón vék af fundi kl. 16:05
Fundargerð 973. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 14.03.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún og Sævar.
Fundargerð 973. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 14.03.2025 er lögð fram til kynningar.8. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 974. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 19.03.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 974. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 19.03.2025 er lögð fram til kynningar.9. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 975. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 20.03.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 975. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 20.03.2025 er lögð fram til kynningar.10. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 04.04.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 04.04.2025 er lögð fram til kynningar.11. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerð 810. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 12.03.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Birgitta Hrund.
Fundargerð 810. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 12.03.2025 er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerð 811. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 09.04.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.
Fundargerð 811. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 09.04.2025 er lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð
Fundargerð 566. fundar Kölku dags. 11.02.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, Birgitta Rán, Hjálmar, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Sævar.
Fundargerð 566. fundar Kölku dags. 11.02.2025 er lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð
Fundargerð 567. fundar Kölku dags. 11.03.2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún,
Fundargerð 567. fundar Kölku dags. 11.03.2025 er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1679
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1680
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Innviðanefnd - 6
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.