Bæjarstjórn Grindavíkur - 566. fundur
- 30.04.2024
- Fundargerð
- Kl. 10:00 - 12:25
- í Tollhúsi við Tryggvagötu
- Fundur nr. 566
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Farið yfir stöðu mála.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Guðjón og Hallfríður.
Farið yfir stöðu mála.2. Samþykkt um sorphirðu
Síðustu mánuði hefur verið unnið að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Grindavíkurbæ en bæjarstjórn hefur samþykkt hana tvisvar, 28.júní og 26.september 2023. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur yfirfarið samþykktina.
Til þess að hægt sé að fá hana staðfesta hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu svo hún taki gildi þarf Grindavíkurbær fyrst að draga sig úr gildandi samþykkt nr.426/2005 um meðhöndlun úrgangs á Suðurnesjum. Reykjanesbær hyggst gera það sama og hafa því bæjarfélögin tvö útbúið tillögu að breytingu á gildandi samþykkt sem ógildar þátttöku þeirra. Beðist er samþykki bæjarstjórnar til þess að klára málið.Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Gunnar Már, Hjálmar og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að draga sig út úr samþykkt nr. 426/2005 sem er samþykkt allra sveitarfélaga á Suðurnesjum og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að afgreiða málið.3. Reykjanesfólkvangur
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Guðjón, bæjarstjóri og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Umhverfisstofnun óskar eftir afstöðu þeirra sveitarfélaga sem standa að Reykjanesfólkvanginum til úrsagnar Reykjavíkurborgar, sveitarfélagsins Voga og Kópavogsbæjar og hafa tvö sveitarfélög til viðbótar, Seltjarnarnesbær og Reykjanesbær, tilkynnt stofnuninni að þau vilji einnig segja sig úr stjórninni.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að svara erindinu.4. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni
Erindi frá UMFG lagt fram.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið:
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Helga Dís, Hallfríður, Gunnar Már og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Lagt fram bréf frá UMFG þar sem Stjórn Ungmennafélags Grindavíkur óskar eftir fjárveitingu til þess að greiða fyrir íþróttaaðstöðu fyrir elstu flokka félagsins í knattspyrnu og körfuknattleik ásamt því að settur verði á stofn sjóður til þess að hægt sé að aðstoða yngri iðkendur félagsins sem þurfa aðstoð við að komast í starfsemi á vegum annarra félaga.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.5. Starfsmannamál
Lagt fyrir nú en með því að vinna málið áfram til næsta bæjarstjórnarfundar og þá verði ákvörðun tekin.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, launafulltrúi og Karl Björnsson.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund, Gunnar Már, Hallfríður, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, launafulltrúi, bæjarstjóri, Karl og Hjálmar.
Bæjarstjóra og sviðsstjórum er falið að vinna tillögur að breytingum í starfsmannahaldi og leggja fyrir næsta fund bæjarstjórnar til ákvörðunar.6. Frumvarp til laga um framkvæmdarnefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ
Frumvarpið verður að öllum líkindum tekið fyrir á ríkissjórnarfundi 30. apríl 2024
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hermann Sæmundsson, IRN, Aðalsteinn Þorsteinsson, IRN, Guðjón Bragason, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, launafulltrúi, Karl Björnsson og Jóhanna Lilja, yfirsálfræðingur skólaþjónustu.
Til máls tóku: Ásrún, Hermann, Aðalsteinn, Guðjón, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hallfríður, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, yfirsálfræðingur skólaþjónustu, Hjálmar, Birgitta Hrund, launafulltrúi, Helga Dís og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lögð fram kynning á frumvarpsdrögunum.7. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2024
Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 18. apríl 2024 lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún og Birgitta Hrund.
Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 18. apríl 2024 er lögð fram til kynningar.