Bæjarstjórn Grindavíkur - 554. fundur
- 05.02.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:10
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 554
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sólberg Bjarnason og Víðir Reynisson frá Almannavörnum og Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hjálmar, Hallfríður, Helga Dís, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Rán og Birgitta Hrund.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sólberg Bjarnason og Víðir Reynisson frá Almannavörnum og Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum og svöruðu þeir fyrirspurnum.2. Fasteignagjöld 2024
Helga Dís vék af fundi kl. 15:45.
Taka þarf ákvörðun um hvernig skuli staðið að álagningu fasteignaskatts með tilliti til heimilda sem felast í breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.
Lögð fram tillaga um álagningu fasteignaskatts 2024Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, Hallfríður, Hjálmar og Birgitta Rán.
Alþingi samþykkt þann 31.01.2024, lög nr. 979/2024, um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (fasteignaskattur í Grindavíkurbæ).
Með vísan til þessara laga er hér lögð fram tillaga um að falla frá álagningu fasteignaskatts í Grindavík fyrir árið 2024 á eftirfarandi eignir:
Að fallið verði frá álagningu á eignir sem falla undir a- og c- lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og eru innan þéttbýlismarka Grindavíkur skv. aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032.
Auk þessa verði fallið frá álagningu fasteignaskatts á eignir sem eru innan hættusvæðis 3, skv. hættumatskorti Veðurstofu Íslands, útgefið 1. febrúar 2024 kl. 15:00.
Aðrar eignir en þarna koma fram munu fá álagðan fasteignaskatt á árinu 2024.
Samþykkt samhljóða.