Bæjarstjórn Grindavíkur - 516. fundur
- 30.03.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:15
- í Kvikunni
- Fundur nr. 516
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaramaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Breyting á deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi
HS Orka óskar eftir að breyta deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi. Tilgangur breytingar er að gera ráð fyrir nýjum sjótökuholum. HS Orka vinnur jafnframt að matsskyldufyrirspurn til Skipulagsstofnunar vegna þessara framkvæmda. Tillagan var auglýst. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulagstillöguna á 84. fundi sínum þann 22. mars sl. og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.Til máls tók: Sigurður Óli.
HS Orka óskar eftir að breyta deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi. Tilgangur breytingar er að gera ráð fyrir nýjum sjótökuholum. HS Orka vinnur jafnframt að matsskyldufyrirspurn til Skipulagsstofnunar vegna þessara framkvæmda. Tillagan var auglýst. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulagstillöguna á 84. fundi sínum þann 22. mars sl. og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.2. Suðurnesjalína 2 - umsókn um framkvæmdarleyfi
Útgefið framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 hefur verið kært. Annmarkar voru á afgreiðslu.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að afturkalla útgefið framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 vegna smávægilegra formgalla í málsmeðferð. Afturköllunin er gerð í samráði við umsækjanda.3. Suðurnesjalína 2 - umsókn um framkvæmdarleyfi
Landsnet sækir að nýju um framkvæmdaleyfi fyrir því að byggja 220 kV raflínu, Suðurnesjalínu 2, milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavík. Sótt er um framkvæmdaleyfi á grundvelli 13. og 14. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi, nr. 772/2012. Suðurnesjalína 2, er alls um 33,9 km og er hluti hennar innan Grindavíkur 0,79 km. Miðað er við að hefja framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 árið 2021 og að spennusetning línunnar verði í lok árs 2022.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur, Hjálmar og Hallfríður.
Umsókn Landsnets, sem lögð var fram 11. desember 2020, um framkvæmdaleyfi fyrir því að byggja 220 kV raflínu, Suðurnesjalínu 2, milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavík er tekin til afgreiðslu að nýju. Fyrri afgreiðsla var haldin formannmörkum, sem bætt hefur verið úr. Sótt er um framkvæmdaleyfi á grundvelli 13. og 14. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi, nr. 772/2012. Suðurnesjalína 2, alls um 33,9 km og er hluti hennar innan Grindavíkur 0,79 km. Miðað er við að hefja framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 árið 2021 og að spennusetning línunnar verði í lok árs 2022. Greinargerð sbr. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdaleyfið með 6 atkvæðum, Páll Valur situr hjá.4. Staðarsund 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynningu á byggingarleyfi TGraf við Staðarsund 7 er lokið, ein athugasemd barst.
Skipulagsnefnd hefur tekið til skoðunar athugasemd sem barst eftir grenndarkynningu. Tekinn var til greina hluti athugasemdarinnar. Rýmisnúmer annarra eignarhluta en umsækjanda munu verða óbreytt. Eignarhaldstafla leiðréttist í samræmi við það. Eftir breytinguna verða eignarhlutar 6 talsins með sameign. Athugasemd varðandi stærð botnflatar byggist á misskilning. Athugsemdaraðili fær nánari útskýringar.
Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin á 84. fundi sínum þann 22. mars sl. og vísaði afgreiðslunni til bæjarstjórnar.Til máls tók: Sigurður Óli.
Grenndarkynningu á byggingarleyfi TGraf við Staðarsund 7 er lokið, ein athugasemd barst.
Skipulagsnefnd hefur tekið til skoðunar athugasemd sem barst eftir grenndarkynningu. Tekinn var til greina hluti athugasemdarinnar. Rýmisnúmer annarra eignarhluta en umsækjanda munu verða óbreytt. Eignarhaldstafla leiðréttist í samræmi við það. Eftir breytinguna verða eignarhlutar 6 talsins með sameign. Athugasemd varðandi stærð botnflatar byggist á misskilningi. Athugsemdaraðili fær nánari útskýringar.
Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin á 84. fundi sínum þann 22. mars sl. og vísaði afgreiðslunni til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.5. Kynning á breytingum á auglýsing um verndarsvæði á Reykjanesskaga - háhiti Brennisteinsfjallasvæðis í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlun
Kynning á breytingum á auglýsingu um verndarsvæði á Reykjanesskaga - háhiti Brennisteinsfjallasvæðis í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlun - er lögð fram til umsagnar eða athugasemda.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við auglýsinguna á 84. fundi sínum þann 22. mars sl. og vísað afgreiðslunni til bæjarstjórnar.Til máls tók: Sigurður Óli.
Kynning á breytingum á auglýsingu um verndarsvæði á Reykjanesskaga - háhiti Brennisteinsfjallasvæðis í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlun - er lögð fram til umsagnar eða athugasemda.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við auglýsinguna á 84. fundi sínum þann 22. mars sl. og vísað afgreiðslunni til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.6. Starfsmannastefna - breyting vegna jafnlaunastefnu
Breyting á jafnlaunastefnu, tilvísanir í lög breytt vegna nýrra laga. Lög 150/2020 koma í stað laga 10/2008.
Bæjarráð vísar stefnunni til samþykktar í bæjarstjórn.Til máls tók: Sigurður Óli.
Breyting á jafnlaunastefnu, tilvísanir í lög breytt vegna nýrra laga. Lög 150/2020 koma í stað laga 10/2008.
Bæjarráð vísar stefnunni til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða breytinguna.7. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Kjósa þarf nýjan fulltrúa í almannavarnanefnd Grindavíkur.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Gerð er tillaga um að fulltrúi Rauða krossins í almannavarnarnefnd Grindavíkur verði Guðjón Örn Sigtryggsson. Kemur hann í stað Tryggva Hjartar Oddssonar.
Samþykkt samhljóða.8. Jarðskjálftar og landris við Grindavík
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka fyrir árið 2021 á rekstrareininguna "07451 - Náttúruvá - jarðskjálftar og eldgos" að fjárhæð 10.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tóku: Sigurður Óli og Páll Valur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka fyrir árið 2021 á rekstrareininguna "07451 - Náttúruvá - jarðskjálftar og eldgos" að fjárhæð 10.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.9. Beiðni um styrk vegna breytinga á búningsklefa við knattspyrnuvöll
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 737.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 737.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.10. Víkurbraut 62, 3 hæð - Starfsaðstæður
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2021 á rekstrareininguna 04011 Skólaskrifstofa kr. 2.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2021 á rekstrareininguna 04011 Skólaskrifstofa kr. 2.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.11. Félag eldri borgara - Beiðni um styrk vegna fasteignagjalda
Bæjarráð samþykkir styrk á móti fasteignagjöldum ársins 2021.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 155.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.Til máls tók: Sigurður Óli.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 155.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.12. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Fundargerð 895. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. febrúar 2021 er lögð fram.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerð 895. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. febrúar 2021 er lögð fram til kynningar.13. Bæjarráð Grindavíkur - 1573
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, bæjarstjóri, Birgitta, Hjálmar, Páll Valur og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.14. Bæjarráð Grindavíkur - 1574
Til máls tóku: Sigurður Óli,
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1575
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Páll Valur, bæjarstjóri, Helga Dís og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1576
Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur, bæjarstjóri, Helga Dís, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hjálmar, Birgitta og Irmý.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Skipulagsnefnd - 84
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, bæjarstjóri, Páll Valur, Irmý, Birgitta og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Fræðslunefnd - 107
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 52
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Helga Dís, Hallfríður, Birgitta, Páll Valur og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Frístunda- og menningarnefnd - 102
Til máls tóku: Sigurður Óli, Irmý, Páll Valur, Hallfríður, Birgitta og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 49
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.