Bæjarstjórn Grindavíkur - 524. fundur
- 25.01.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 524
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Umsókn um byggingarleyfi - Félagsaðstaða eldri borgara við Víðihlíð
Sótt er um byggingarleyfi fyrir byggingu félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð. Teikningar arkitekts lagðar fram.
Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin fyrir félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð á fundi sínum þann 10. janúar 2022.
Skipulagsnefnd vísaði erindinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.Til máls tóku: Sigurður Óli, Hjálmar, Helga Dís, Hallfríður, Páll Valur og Birgitta.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir byggingu félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð. Teikningar arkitekts lagðar fram.
Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin fyrir félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð á fundi sínum þann 10. janúar 2022.
Skipulagsnefnd vísaði erindinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða byggingarleyfið.2. Eldvörp Aðgengi
Óskað er framkvæmdaleyfis fyrir framkvæmdum við Eldvörp. Verkefnið er unnið í samvinnu við Reykjanes Geopark. Umsögn Umhverfisstofnunar og samþykki Ríkiseigna og HS orku liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkti að veita framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti á fundi þann 10. janúar 2022.
Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur og Hjálmar.
Óskað er framkvæmdaleyfis fyrir framkvæmdum við Eldvörp. Verkefnið er unnið í samvinnu við Reykjanes Geopark. Umsögn Umhverfisstofnunar og samþykki Ríkiseigna og HS orku liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkti að veita framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti á fundi þann 10. janúar 2022.
Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkvæmdaleyfið.3. Endurskoðun á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga
Borist hefur erindi frá Landsneti þar sem því er m.a. lýst yfir að skipulagsbreyting Voga sé ekki í samræmi við Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2028.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur, Hjálmar og Hallfríður.
Lagt fram bréf frá Landsneti til Sveitarfélagsins Voga, dags. 8.12.2021, þar sem því er m.a. lýst yfir að skipulagsbreyting Voga sé ekki í samræmi við Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2028.
Grindavíkurbær hefur þegar samþykkt framkvæmdaleyfi vegna loftlínu í landi Grindavíkur.
Bókun fulltrúa S-lista.
Samkvæmt lögum þessa lands veita sveitarfélögin í landinu framkvæmdaleyfi af því tagi sem Suðurnesjalína 2 er og fara að auki með skipulagsvald í samræmi við ákvæði stjórnarskrá lýðveldisins. Með því lagafrumvarpi sem lagt var fram á alþingi þann 19. janúar síðastliðinn þar sem framsögumaður var 6. þingmaður Suðurkjördæmis Ásmundur Friðriksson er hreinlega verið að taka skipulagsvaldið af sveitarfélögunum sem í hlut eiga og Suðurnesjalína 2 liggur um.
Fulltrúi S-lista tekur heilshugar undir með Ágeiri Eiríkssyni bæjarstjóra sveitarfélagsins Voga sem m.a segir í pistli á heimasíðu bæjarins þann 21. janúar síðastliðinn.
„Það er mikill ábyrgðarhluti af hálfu Alþingis að svipta sveitarstjórn skipulagsvaldi. Ég hvet því flutningsmenn frumvarpsins sem og þingmenn alla til að staldra við og leita annarra lausna á viðfangsefninu en að þvinga fram ákvörðun í málinu með lagasetningu. Við slíkar aðgerðir sitja allir eftir með sárt enni og óbragð í munni. Traust sveitarstjórnarstigsins og löggjafavaldsins er í húfi“.
Að því sögðu þá vonar fulltrúi S-lista að þessu deilumáli ljúki sem fyrst og á farssælan hátt íbúum á Suðurnesjum sem og annarstaðar á landinu til heilla.
Páll Valur, fulltrúi S-lista.4. Óinnheimtanlegar kröfur
Hafnarstjórn hefur samþykkt að fella kröfur sem taldar eru fram á meðfylgjandi skjölum.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Hafnarstjórn hefur samþykkt að afskrifa kröfur sem taldar eru fram á meðfylgjandi skjölum, alls að fjárhæð 15.176.097 kr. þar sem þær eru fyrndar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að afskrifa kröfurnar.5. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2022
Fundargerð 905. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 14. janúar 2022 lögð fram.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur, Hjálmar, bæjarstjóri, Birgitta, Páll Valur og Helga Dís.
Fundargerð 905. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 14. janúar 2022 lögð fram til kynningar.6. Bæjarráð Grindavíkur - 1601
Til máls tóku: Sigurður Óli, Birgitta, Hjálmar, Helga Dís, Páll Valur, Guðmundur, Hallfríður og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.7. Skipulagsnefnd - 94
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Helga Dís, bæjarstjóri, Páll Valur, Hjálmar, Hallfríður og Bigitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.8. Frístunda- og menningarnefnd - 111
Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur, Guðmundur, Birgitta, Hjálmar, bæjarstjóri, Helga Dís og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.9. Hafnarstjórn Grindavíkur - 480
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, bæjarstjóri, Hallfríður og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.10. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 55
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Birgitta, Páll Valur, Hallfríður, Helga Dís og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.11. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 56
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Birgitta, Páll Valur, Hallfríður, Helga Dís og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.