Bæjarstjórn Grindavíkur - 568. fundur
- 21.05.2024
- Fundargerð
- Kl. 10:15 - 11:00
- í Tollhúsi við Tryggvagötu
- Fundur nr. 568
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Starfsmannamál
Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að hefja uppsagnir og niðurlagningu starfa hluta starfsmanna bæjarins sem koma til framkvæmda 31. maí 2024.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Anton Björn Markússon, ráðgjafi, launafulltrúi og sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Anton, Birgitta Hrund, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Hallfríður, launafulltrúi,
Tillaga
Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að hefja uppsagnir og niðurlagningu starfa hluta starfsmanna bæjarins sem koma til framkvæmda 31. maí 2024.
Rökstuðningur
Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað á fundi sínum hinn 7. maí sl. að fela bæjarstjóra að hefja undirbúning og samráð við hagaðila vegna fyrirhugaðra áforma sveitarfélagsins um hópuppsagnir í skilningi laga nr. 63/2000, um hópuppsagnir.
Sem rök fyrir aðgerðunum var tekið fram að launagreiðslur væru langstærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins eða u.þ.b. 50% af tekjum bæjarins. Í ljósi gerbreyttra aðstæðna væri bæjarstjórn nauðugur sá einn kostur að gera grundvallarbreytingar á sínum rekstri, lækka kostnað og laga starfsmannahald að nýjum veruleika.
Ráðgert var að hinar fyrirhuguðu uppsagnir tækju til allt að 149 starfsmanna. Formlegt samráðsferli hófst á því að trúnaðarmönnum og fulltrúum starfsmanna voru veittar allar upplýsingar sem máli skipta um hinar fyrirhuguðu uppsagnir, s.s. ástæður, fjöldi starfsmanna sem til stendur að segja upp, hvaða störfum þeir gegna og á hvaða tímabili hinar fyrirhuguðu uppsagnir eiga að koma til framkvæmda. Þá var Vinnumálastofnun sent bréf þar sem stofnuninni var tilkynnt um hinar fyrirhuguðu uppsagnir auk þess sem fulltrúar þeirra stéttarfélagana sem hlut eiga að máli voru boðaðir á samráðsfund sem haldinn var 8. maí sl. Síðari samráðsfundurinn með sömu aðilum var haldinn þriðjudaginn 14. maí sl. Að auki voru tveir samráðsfundir haldnir til viðbótar með fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, þar sem farið var yfir málefni félagsmanna þess. Formlegu samráði lauk 21. maí 2024.
Það lögbundna samráðsferli sem átt hefur sér stað á undanförnum dögum hefur hvorki gefið tilefni til endurskoðunar né breytinga á þeim áformum sem til stendur að ráðast í á þessu stigi máls og varðar fækkun á allt að 149 stöðugildum hjá sveitarfélaginu. Gerir tillagan ráð fyrir að bæjarstjóra verði falið að hefja uppsagnir allt að 149 starfsmanna hjá sveitarfélaginu sem komi til framkvæmda 31. maí nk.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.2. Farsældarráð barna
Þreifingar um hvort sveitarfélögin á Suðurnesjum séu tilbúin að veita yfirlýsingu um að fara saman í stofnun farsældarráðs barna með stuðningi í gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja/SSS.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og bæjarstjóri.
Lögð fram drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna á Suðurnesjum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að veita SSS umboð til að gera viðaukasamning við ráðuneytið vegna stofnunar farsældarráðs barna.3. Suðurhlíð - Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Stofnsamþykkt ásamt fylgigögnum lögö fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
Lögð fram drög að stofnsamþykkt fyrir Suðurhlíð - Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra undirritun samþykktarinnar.4. Fasteignagjöld 2024
Lögð fram beiðni yfirfasteignamatsnefndar um umsögn vegna kæru vegna fasteignagjalda 2024 frá Bjarna Aðalgeirssyni lögmanni fyrir hönd Flatabrims ehf., kt. 620118-1090 vegna Norðurljósavegar 1 í Grindavík, fnr. 209-2590.
Jafnframt eru lögð fram drög að umsögn til nefndarinnar.Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður og Birgitta Hrund.
Lögð fram beiðni yfirfasteignamatsnefndar um umsögn vegna kæru vegna fasteignagjalda 2024 frá Bjarna Aðalgeirssyni lögmanni fyrir hönd Flatabrims ehf., kt. 620118-1090 vegna Norðurljósavegar 1 í Grindavík, fnr. 209-2590.
Einnig eru lögð fram drög Guðjóns Bragasonar, ráðgjafa, að umsögn til yfirfasteignamatsnefndar.
Bæjarstjórn felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda umsögnina til yfirfasteignamatsnefndar vegna málsins.5. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Farið yfir stöðu mála.
Málinu er frestað til næsta fundar.
6. Þjónustumiðstöðin Tollhúsinu - opnunartími
Fyrir liggur tillaga að húsaleigusamningi vegna þjónustumiðstöðvarinnar í Tollhúsinu.
Málinu er frestað til næsta fundar.
7. Aukinn kostnaður grunnskóla í kjölfar náttúruhamfara í Grindavík
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fól HLH Ráðgjöf að framkvæma greiningu á auknum kostnaði í grunnskólum sveitarfélaga sem fólst í að tryggja að grunnskólabörn sem eiga lögheimili í Grindavíkurbæ fái notið skólagöngu á yfirstandandi skólaári,
Málinu er frestað til næsta fundar.
8. Kosning í bæjarráð, sbr. 28. gr. og A lið 48. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar
Um setu í bæjarráði er kosið til eins árs í senn.
Málinu er frestað til næsta fundar.
9. Kjör forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta
Um embætti forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta er kosið til eins árs í senn.
Málinu er frestað til næsta fundar.