Bæjarstjórn Grindavíkur - 562. fundur
- 04.04.2024
- Fundargerð
- Kl. 10:00 - 12:25
- í Tollhúsi við Tryggvagötu
- Fundur nr. 562
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Húsnæðisaðstæður Grindvíkinga
Farið yfir rýmingu íbúðakjarnans við Túngötu, núverandi aðstæður íbúanna og fleira er varðar húsnæðismál.
Nökkvi Már og Hlín mæta á fundinn.Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Guðjón Bragason og Ellen Calmon. Ellen, Guðjón og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fóru af fundi kl. 10:40. Launafulltrúi kom inn á fundinn kl. 10:45.
Til máls tóku: Ásrún, Ellen, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Birgitta Rán, Hallfríður, Birgitta Hrund, Helga Dís, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, launafulltrúi, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Már og Hjálmar.
Lagt fram minnisblað frá Ellen Calmon, dags. 4. apríl 2024, vegna húsnæðismála Grindvíkinga frá 10. nóvember 2023 til dagsins í dag.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að fundið verði hentugt húsnæði fyrir heimilisfólk sem bjó á Túngötu 15-17.2. Fræðslumál Grindavíkurbæjar - safnskólar
Niðurstöður fundar með ráðuneyti lagðar fram. Fulltrúar skólastjórnenda grunnskóla og skólaþjónustu sitja fundinn undir þessum lið.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Jóhanna Lilja yfirsálfræðingur skólaþjónustu, Eysteinn þór Kristinsson, skólastjóri grunnskóla, Kristjana Jónsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu, Ásdís Kjartansdóttir, deildarstjóri yngsta stigs og Rakel Pálmadóttir, deildarstjóri unglingastigs.
Til máls tóku: Ásrún, yfirsálfræðingur skólaþjónustu, Hallfríður, skólastjóri, deildarstjóri stoðþjónustu, deildarstjóri yngsta stigs, deildarstjóri unglingastigs, Helga Dís, Birgitta Hrund, Gunnar Már og Birgitta Rán.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að stofna stýrihóp um heildstæða stefnu og aðgerðaráætlun um málefni grindvískra barna. Í stýrihópnum verði fulltrúar skólaþjónustu og bæjarstjórnar með aðkomu fulltrúum frístunda- og menningarsviðs og stjórnenda í leik- og grunnskóla.
Niðurstöður skulu liggja fyrir fimmtudaginn 11. apríl nk.3. Frístundir barna- og ungmenna sumarið 2024
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fer yfir stöðu mála.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.4. Dagskrá í tilefni 50 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar
Rætt um dagskrá 10. apríl og heiðursviðurkenningar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hallfríður, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Gunnar Már og Hjálmar, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Rán og Helga Dís.
Næsti bæjarstjórnarfundur verður í Gjánni í Grindavík 10. apríl kl. 10:00 en þá er 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.Fundi er frestað til kl. 10:00 föstudaginn 5. apríl.
5. Aðgerðaáætlun fyrir Grindavíkurbæ
Fundi framhaldið kl. 10:00 þann 5. apríl 2024
Lagt fram til kynningar umræðuskjal atvinnuteymis Grindavíkurbæjar dags. 29. febrúar 2024 - Aðgerðaáætlun fyrir atvinnulíf í Grindavík. Umræðuskjalið snýr einkum að aðgerðum sem atvinnuteymi taldi mikilvægar til að gera fyrirtækjum sem það kjósa mögulegt að halda úti atvinnurekstri í Grindavík.
Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjóri atvinnumála og Guðjón Bragason lögfræðilegur ráðgjafi atvinnuteymis verða með kynningu á fundinum um helstu verkefni framundan í atvinnumálum. Þeir munu m.a. greina frá samskiptum við starfshóp fjögurra ráðuneyta um atvinnumál í Grindavík, greiningarvinnu Deloitte fyrir starfshópinn, stuðningsaðgerðum fyrir atvinnulíf sem þegar eru í gildi og ábendingum forsvarsmanna minni fyrirtækja um þörf fyrir frekari aðgerðir. Jafnframt munu þeir fara yfir hugmyndir atvinnuteymis að áherslum í atvinnumálum á næstu vikum.Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, Skarphéðinn B Steinarsson og sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs.
Til máls tóku: Ásrún, Skarphéðinn, Guðjón, Birgitta Hrund, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hallfríður, Birgitta Rán, Gunnar Már og bæjarstjóri.
Lögð fram drög að verkefnalista atvinnuteymis.6. Tjón á mannvirkjum vegna náttúruhamfara í Grindavik
Tillaga að almennri bókun vegna tjónamála lögð fram ásamt greinagerð.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón.
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkir samhljóða að heimila ekki endurbyggingu og viðgerðir á
húseignum í þéttbýli Grindavíkur þar sem tjón á húseign er þess eðlis að sækja þarf um
byggingarleyfi.
Ákvörðun bæjarstjórnar er gerð með vísun til 1. mgr. 15. gr. laga nr. 55/1992 um
Náttúruhamfaratryggingu Íslands í þeim tilgangi að fasteignaeigendur í Grindavík fái eins
skjóta úrlausn sinna mála og kostur er hjá NTÍ. Þar sem afstaða bæjarstjórnar byggir á
skipulagsástæðum eða öðrum aðstæðum sem tjónþoli ræður ekki við skal ekki beita
frádráttarreglu 2. málsliðar 2. mgr. 15. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Bæjarstjórn áréttar að á meðan óvissa ríkir um framhald náttúruhamfara í og við Grindavík eru
ekki forsendur til þess að gefa út byggingarleyfi fyrir endurbyggingu og viðgerðum á húsum
sem hafa orðið fyrir tjóni.. Grindavíkurbær mun þó í undantekningartilvikum leitast við að
bregðast við rökstuddum óskum frá fasteignaeigendum um byggingarleyfi þrátt fyrir
framangreinda tímabundnu afstöðu.
Afstaða bæjarstjórnar vegna þessa verður endurmetin þegar ástæða verður til m.t.t. þeirra
náttúruhamfara sem eru í gangi.7. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Farið yfir stöðu mála.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, Hjálmar, Birgitta Rán og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að undirbúa upplýsingafund fyrir íbúa Grindavíkur.
Jafnframt óskar bæjarstjórn eftir fundi með fulltrúum Veðurstofunnar og Fasteignafélagsins Þórkötlu.8. Starfsmannamál
Næstu skref?
Til máls tók: Ásrún.
Málinu er frestað.9. Krafa um gjaldþrotaskipti IAA ehf.
Stjórn Iceland Aviation Academy ehf. hefur krafist þess að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Til máls tóku Ásrún, Birgitta Hrund og bæjarstjóri.
Lögð fram til kynningar krafa stjórnar Iceland Aviation Academy ehf. um að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta.10. Fundargerðir 2024 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 44. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Málinu er frestað.11. Skipulagsnefnd - 130
Til máls tók: Ásrún.
Málinu er frestað.12. Fræðslunefnd - 137
Til máls tók: Ásrún.
Málinu er frestað.