Bæjarstjórn Grindavíkur - 559. fundur
- 12.03.2024
- Fundargerð
- Kl. 11:30 - 15:10
- í Tollhúsi við Tryggvagötu
- Fundur nr. 559
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Starfsmannamál
Lögð fram tillaga um aðgerðir.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Launafulltrúi, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Karl Björnsson og Hrannar Pétursson.
Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, Birgitta Hrund, Hallfríður, bæjarstjóri, Helga Dís, Guðjón, Birgitta Rán, Karl, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og launafulltrúi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fresta málinu til næsta fundar.2. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Farið yfir stöðu mála.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Helga Dís, Birgitta Hrund, Hjálmar, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, Guðjón og Birgitta Rán.
Lagt fram drög að aðgerðaryfirliti frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.3. Lög um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Már, Helga Dís, bæjarstjóri, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Guðjón og Karl.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Karl Björnsson. Einnig Óskar Jósefsson, Hermann Hermannsson og Guðrún Þorleifsdóttir stjórnarmenn í Fasteignafélaginu Þórkötlu og svöruðu þau fyrirspurnum.4. Áhleyping á köldu vatni - íbúasvæði
Tillaga að verklagi við áhleyping á köldu vatni á íbúðarsvæðum lögð fram til samþykktar og ákvörðunar bæjarstjórnar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og byggingafulltrúi.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, Hjálmar, Hallfríður og Helga Dís.
Lögð fram áætlun um áhleypingu á köldu vatni á íbúðarhverfi í Grindavík.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða áætlunina.5. Sandfok af plani við hópið-bótakrafa
Guðjón vék af fundi kl. 14:30
Kveðinn hefur verið upp dómur Landsréttar í máli Grindavíkurbæjar gegn Fanndals Lögnum ehf. og fleirum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Lagður fram dómur Landsréttar, dags. 8. mars sl. í máli 82/20236. Dagskrá í tilefni 50 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar
Grindavíkurbær mun fagna 50 ára kaupstaðarafmæli sínu þann 10. apríl nk. Óskað er eftir umrææðu um með hvaða hætti sveitarfélagið ætlar að fagna tímamótunum.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, bæjarstjóri, Hallfríður, Birgitta Hrund, Hjálmar, Birgitta Rán og Gunnar Már.
Grindavíkurbær mun fagna 50 ára kaupstaðarafmæli sínu þann 10. apríl nk.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.7. Starfsnámsskólar - verkmenntaaðstaða við FS
Lagður fram tölvupóstur frá Gylfa J Arnbjarnarsyni varðandi framhald verkefnisins og möguleika á að taka þetta inn í samning við innviðaráðherra.
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Lagður fram tölvupóstur frá mennta- og barnamálaráðuneyti, dags. 6.3.2024, vegna framvindu verkefnisins um stækkun FS.8. Brú lífeyrissjóður - Áfallnin lífeyrisskuldbinding vegna A-deildar
Lögð fram gögn frá Brú lífeyrissjóði vegna áfallinnar lífeyrisskuldbindingar í A-deild sjóðsins 31.12.2023 en þetta var kynnt á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.
Meðfylgjandi eru yfirlit vegna skuldbindingarinnar.Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri.
Lögð fram gögn frá Brú lífeyrissjóði vegna áfallinnar lífeyrisskuldbindingar í A-deild sjóðsins 31.12.2023.9. Áskorun til sveitarfélaga vegna yfirlýsingar um kjarasamninga
Borist hefur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og sambandsins vegna kjarasamninga 2024.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður, Birgitta Rán, Hjálmar, Helga Dís, Birgitta Hrund og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Lögð fram áskorun til sveitarfélaga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. mars sl. vegna yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024.10. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 42. fundar Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja haldinn 1. janúar 2024 lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún,
Fundargerð 42. fundar Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja haldinn 1. janúar 2024 er lögð fram til kynningar.