Bæjarstjórn Grindavíkur - 545. fundur
- 17.11.2023
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:45
- sem fjarfundur í Teams
- Fundur nr. 545
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar lagði forseti fram tillögu um að hafa fundinn lokaðar.
Samþykkt samhljóða.
1. Jarðskjálftar og landris í Grindavík 2023
Álykta þarf um ósk til innviðaráðherra um að virkja undanþáguheimild í 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkur.
Fylgigögn:
Tillaga að bréfi til innviðaráðherra
Drög að auglýsingu innviðaráðherra (Valgerður Rún lögfræðingur sambandsins var búinn að ráðfæra sig við ráðuneytið og þetta verður væntanlega auglýsingin)
Auk þessa verður ansi markt rætt undir þessum lið. Nýtt skjal er frá mennta- og barnamálaráðherra.
Geri líka ráð fyrir að málefni Skóla ehf verði rædd, þ.e. þjónustusamningur vegna Króks.Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund, Helga Dís, Hjálmar, Gunnar Már, Hallfríður, bæjarstjóri og Birgitta Rán.
Lagt fram bréf frá mennta- og barnamálaráðherra varðandi aðstoð ráðuneytis til að tryggja skólagöngu barna
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom inn á fundinn kl. 14:05 þegar málefni Skóla ehf. voru til umræðu. Gerði hann grein fyrir málinu.
Guðmundur Pétursson kom inn á fundinn 14:30 og gerði grein fyrir sínum sjónarmiðum.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund bæjarstjórnar.
Kl. 15:15 viku Nökkvi og Guðmundur af fundi.