Bæjarstjórn Grindavíkur - 555. fundur
- 13.02.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:10
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 555
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Farið yfir stöðu mála.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hjálmar, Helga Dís, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, Hallfríður, Guðjón Bragason, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið og Gunnar Már.
Farið yfir stöðu mála.2. Uppbygging varnargarða til varnar Grindavíkur
Þrjár tillögur að staðsetningu varnargarða við Nesveg lagðar fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Helga Dís, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Rán og Gunnar Már.
Skýrsla Verkís, "Varnir mikilvægra innviða - Samspil garða og Nesvegs", dags. 9. febrúar 2024 er lögð fram.3. Drög að lagafrumvarpi um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík
Í frumvarpinu er lagt til að einstaklingum standi til boða að selja félagi í eigu ríkisins íbúðarhúsnæði sitt í Grindavík.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Guðjón, Helga Dís, Birgitta Hrund, Hallfríður, Birgitta Rán, Gunnar Már, Hjálmar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Drög að lagafrumvarpi um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík eru lögð fram.4. AUGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.
Auglýsing 1217 frá 2023 gildir til 15. mars 2024. Heimildin fellur þó úr gildi fyrir 15. mars 2024 ef ríkisflögreglustjóri aflýsir almannavarnastigi í sveitarfélaginu fyrir þann tíma.
Fyrir liggur að það þarf að framlengja þessa heimild.Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að óska eftir framlengingu á auglýsingu 1217 frá 16. nóvember 2023 til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.5. Víðihlíð, íbúðir aldraðra - uppgjör leigusamninga
Tillaga um að endurgreiða íbúðarétt eða leigutryggingu allra íbúða í Víðihlíð.
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Lagt er til að endurgreiða leigjendum í íbúðum aldraðra í Víðihlíð íbúðarétt eða leigutryggingu.
Samþykkt samhljóða.6. Lánasjóður sveitarfélaga - framboð til stjórnar
Kjörnefnd Lánasjóðsins auglýsir eftir framboðum til stjórnarsetu.
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Lögð fram auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 30. janúar 2024.7. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 942. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 26.01.2024 lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 942. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, þann 26.01.2024, er lögð fram til kynningar.