Bæjarstjórn Grindavíkur - 523. fundur
- 21.12.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 523
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Breyting á sveitarstjórnarlögum til að bregðast við neyðarástandi
Vegna fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að ákveða að sveitarstjórnarmönnum sé heimilt að taka þátt í fundum sveitarstjórna eða nefnda og ráða á vegum sveitarfélaga, þrátt fyrir að um annað sé getið í samþykktum þeirra. Heimildin gildir til 31. janúar 2022.
Til máls tók: Hjálmar.
Vegna fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að ákveða að sveitarstjórnarmönnum sé heimilt að taka þátt í fundum sveitarstjórna, nefnda og ráða á vegum sveitarfélaga í gegnum fjarfundabúnað, þrátt fyrir að um annað sé getið í samþykktum þeirra. Heimildin gildir til 31. janúar 2022.
AUGLÝSING um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga, nr. 1273/2021, er lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlengingu til 31. janúar 2022.2. Breyting á barnaverndarlögum - Barnaverndarþjónusta
Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar um að hefja viðræður við sveitarfélögin á Suðurnesjum um samstarf um umdæmisráð barnaverndar. Jafnframt þá tillögu að sækja um undanþágu frá reglum um lágmarksíbúafjölda að baki barnaverndarþjónustu á grundvelli fagþekkingar.
Til máls tóku: Hjálmar og Páll Valur.
Lögð fram til staðfestingar samþykkt bæjarráðs á tillögu félagsmálanefndar um að hefja viðræður við sveitarfélögin á Suðurnesjum um samstarf um umdæmisráð barnaverndar. Jafnframt þá tillögu að sækja um undanþágu frá reglum um lágmarksíbúafjölda að baki barnaverndarþjónustu á grundvelli fagþekkingar.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.3. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Fyrir liggur að kjósa nýjan aðalmann og varamann í almannavarnanefnd Grindavíkur.
Til máls tók: Hjálmar.
Fyrir liggur að kjósa nýjan aðalmann í almannavarnanefnd Grindavíkur. Tillaga er um að Einar Sveinn Jónsson verði aðalmaður í nefndinni í stað Ásmundar Jónssonar.
Samþykkt samhljóða.4. Spóahlíð 1 - umsókn um lóð
A1 hús ehf. sækir um lóðina Spóahlíð 1 til byggingar fjölbýlishúss.
Þar sem fleiri en einn umsækjandi er um lóðina fer fram spiladráttur. A1 hús ehf. dró níu, Grindin ehf. dró áttu.
Lóð úthlutuð til A1 hús ehf. Fyrirvari er settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir.
Skipulagsnefnd vísaði úthlutuninni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu á fundi þann 16. desember 2021.Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til A1 húsa ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
A1 hús ehf. uppfylla ekki skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í gr. 3.2.2 í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni ekki til A1 húsa ehf.5. Spóahlíð 3 - Umsókn um lóð
Bragi Guðmundsson ehf. sækir um lóðina Spóahlíð 3 til byggingar fjölbýlishúss.
Þar sem fleiri en einn umsækjandi er um lóðina fer fram spiladráttur. Þar sem A1 hús ehf. hafði þegar fengið úthlutað lóð á fundinum er hann ekki með í þessum úrdrætti sbr. 4. gr. reglna um lóðarúthlutun í Grindavíkurbæ. Bragi Guðmundsson dró ás, HUG- verktakar ehf. dró fjarka, Grindin ehf. dró tíu.
Lóð úthlutuð til Bragi Guðmundsson ehf. Fyrirvari er settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir.
Skipulagsnefnd vísaði úthlutuninni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu á fundi þann 16. desember 2021.Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til Braga Guðmundssonar ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bragi Guðmundsson ehf. uppfyllir skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni Spóahlíð 3 til Braga Guðmundssonar. ehf.6. Spóahlíð 5 - Umsókn um lóð
Grindin ehf. sækir um lóðina Spóahlíð 5 til byggingar fjölbýlishúss.
Þar sem fleiri en einn umsækjandi er um lóðina fer fram spiladráttur. Þar sem A1 hús ehf. hafði þegar fengið úthlutað lóð á fundinum er hann ekki með í þessum úrdrætti sbr. 4. gr. reglna um lóðarúthlutun í Grindavíkurbæ. HUG- verktakar ehf. dró tvist, Grindin ehf. dró níu.
Lóð úthlutuð til Grindin ehf. Fyrirvari er settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir.
Skipulagsnefnd vísaði úthlutuninni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu á fundi þann 16. desember 2021.Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til Grindin ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Grindin ehf. uppfyllir skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samykkir samhljóða að úthluta lóðinni Spóahlíð 5 til Grindarinnar ehf.7. Spóahlíð 9 - Umsókn um lóð
Grindin ehf. sækir um lóðina Spóahlíð 9 til byggingar fjölbýlishúss.
Þar sem fleiri en einn umsækjandi er um lóðina fer fram spiladráttur. Þar sem allir umsækjendur hafa fengið úthlutað lóð á fundinum eru allir umsækjendur með í þessum úrdrætti sbr. 4. gr. reglna um lóðarúthlutun í Grindavíkurbæ. Bragi Guðmundsson ehf. dró þrist, A1 hús ehf. dró tíu, Grindin ehf. dró gosa.
Lóð úthlutuð til Grindin ehf. Fyrirvari er settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir.
Skipulagsnefnd vísaði úthlutuninni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu á fundi þann 16. desember 2021.Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til Grindin ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Grindin ehf. uppfyllir skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni Spóahlíð 9 til Grindarinnar ehf.8. Hlíðarhverfi - Úthlutun lóða 1. áfangi
Fundur afgreiðslunefndar byggingarmála fór fram 16. desember, þar sem einbýlis-, parhúsa- og raðhúsalóðum var úthlutað. Fjölbýlishúsalóðum var úthlutað á fundi skipulagsnefndar þann 16. desember.
Minnisblað byggingarfulltrúa um niðurstöðu úthlutunar lagt fram til upplýsinga. Alls bárust sveitarfélaginu 422 umsóknir í lóðir í fyrsta áfanga Hlíðarhverfis þar af voru 397 gildar umsóknir í lóðir einbýlis-, par- og raðhúsa. Fjöldi ógildra umsókna var 33.Til máls tók: Hjálmar.
Fundur afgreiðslunefndar byggingarmála fór fram 16. desember, þar sem einbýlis-, parhúsa- og raðhúsalóðum var úthlutað. Fjölbýlishúsalóðum var úthlutað á fundi skipulagsnefndar þann 16. desember.
Minnisblað byggingarfulltrúa um niðurstöðu úthlutunar einbýlis-, par- og raðhúsalóðum lagt fram til kynningar. Alls bárust sveitarfélaginu 422 umsóknir í lóðir í fyrsta áfanga Hlíðarhverfis.9. Umsókn um byggingarleyfi - Staðarhraun 19
Grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn frá Kristjáni Þór Ásmundssyni vegna stækkunar á bílskúr við Staðarhraun 19 er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti á fundi þann 16. desember 2021. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Erindinu er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.Til máls tók: Hjálmar.
Grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn frá Kristjáni Þór Ásmundssyni vegna stækkunar á bílskúr við Staðarhraun 19 er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti á fundi þann 16. desember 2021. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulaganefndar.10. Breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins við Eyjabakka
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Eyjabakka lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með eftirfarandi breytingum:
- Skilmálar verði settir um frágang, afskermun og ásýnd á geymslusvæði á landfyllingu við Eyjabakka.
- Byggingarreitir við Bakkalág 17 og Hólmasund 1 nái saman.
- Byggingarreitir verði settir um spennistöðvar.
- Lóðanúmer sett á nýjar lóðir.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna að breyttu deiliskipulagi með áorðnum breytingum á fundi þann 16. desember 2021. Sviðsstjóra er falið að auglýsa tillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.Til máls tók: Hjálmar.
Tillaga að breyttu deiliskipulag við Eyjabakka lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna á fundi nr. 93 þann 16. desember 2021 með eftirfarandi breytingum:
- Skilmálar verði settir um frágang, afskermun og ásýnd á geymslusvæði á landfyllingu við Eyjabakka.
- Byggingarreitir við Bakkalág 17 og Hólmasund 1 nái saman.
- Byggingarreitir verði settir um spennistöðvar.
- Lóðanúmer sett á nýjar lóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að senda tillögu að breyttu deiliskipulagi við Eyjabakka í auglýsingu í samræmi við 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.11. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Fundargerð 903. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. nóvember 2021 er lögð fram.
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Birgitta, Guðmundur, Helga Dís, Páll Valur, bæjarstjóri og Hallfríður.
Fundargerð 903. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. nóvember 2021 er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Fundargerð 904. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. desember 2021 lögð fram.
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Valur, Helga Dís og Hallfríður.
Fundargerð 904. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. desember 2021 er lögð fram til kynningar.13. Bæjarráð Grindavíkur - 1600
Til máls tóku: Hjálmar, Hallfríður, bæjarstjóri, Guðmundur, Páll Valur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Helga Dís, Birgitta og Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.14. Skipulagsnefnd - 93
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Valur, Guðmundur, Helga Dís, Hallfríður, Birgitta og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Fræðslunefnd - 115
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Guðmundur, Birgitta, Helga Dís, bæjarstjóri, Hallfríður og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Frístunda- og menningarnefnd - 110
Til máls tóku: Hjálmar, Helga Dís, Birgitta, Hallfríður og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 56
Til máls tóku: Hjálmar, Hallfríður, Guðmundur, bæjarstjóri, Birgitta, Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.