Bæjarstjórn Grindavíkur - 593. fundur
- 26.02.2026
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 593
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Birgitta Hrund, bæjarfulltrúi og Fannar Jónasson, bæjarstjóri sátu fundinn í gegnum Teams.
1. Skólahald í Grindavík - Haust 2026
Taka þarf ákvörðun í málinu.
Tillaga:
Bæjarstjórn samþykkir að hefja skólahald í leikskóla haustið 2026. Jafnframt verði kannað frekar hvort forsendur séu fyrir því að hefja skólahald í yngri bekkjum grunnskóla á næsta skólaári.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að auglýsa stöðu skólastjóra við samrekinn leik- og grunnskóla lausa til umsóknar.Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Hrund, Inga Fanney og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Eitt mikilvægasta verkefni Grindavíkurbæjar er að skapa börnum og fjölskyldum stöðugleika, öryggi og fyrirsjáanleika. Brýnasta skrefið í þeirri vinnu er að byggja upp öflugt og traust skólastarf í heimabyggð.
Enn ríkir ákveðin óvissa um framvindu enduruppbyggingar bæjarins. Tímasetning og fyrirkomulag á endursölu eigna í eigu Fasteignafélagsins Þórkötlu, hafa mikil áhrif á ákvarðanir íbúa um búsetu og framtíðarskipan. Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur mun skila sínum tillögum um endurreisn bæjarins fyrir lok mars.
Næstu sveitarstjórnar bíða margþætt og krefjandi verkefni, en þeir bæjarfulltrúar sem nú sitja hafa lagt áherslu á að skila góðu búi þannig að sveitarfélagið hafi forsendur til að leiða endurreisnina með stuðningi annarra stjórnvalda sem koma að verkefninu með okkur Grindvíkingum. Um það hefur ríkt full samstaða í bæjarstjórn.
Við allar ákvarðanir um endurreisn skólastarfs verður farsæld, velferð og öryggi barna höfð í fyrirrúmi.
Með hliðsjón af framangreindu er lögð fram eftirfarandi tillaga:
Bæjarstjórn samþykkir að hefja skólahald í leikskóla haustið 2026. Jafnframt verði kannað frekar hvort forsendur séu fyrir því að hefja skólahald í yngri bekkjum grunnskóla á næsta skólaári.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að auglýsa stöðu skólastjóra við samrekinn leik- og grunnskóla lausa til umsóknar.
Tillagan er samþykkt með 6 atkvæðum, Birgitta Hrund situr hjá.
Bókun
Niðurstöður könnunar um eftirspurn gefa til kynna skráningu 14 nemenda í grunnskóla og 3 barna sem uppfylla skilyrði samkvæmt viðmiðum Grindavíkurbæjar um inntöku í leikskóla fyrir haustið 2026.
Undirrituð telur ógerlegt að meta hvort forsendur séu fyrir hendi til að hefja undirbúning skólastarfs, og vísar til fyrri bókunar sinnar á 592. fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar 2026.
Í framhaldi af framangreindu tel ég mikilvægt að sveitarfélagið styðji við starfsemi dagforeldra og kanni möguleika á að útvega eða leigja hentugt húsnæði til slíkrar starfsemi. Með því væri unnt að mæta þörfum barnafjölskyldna með börn á leikskólaaldri með sveigjanlegum og ábyrgum hætti, án þess að ráðast að svo stöddu í umfangsmikinn undirbúning skólastarfs.
Áréttað er að ákvarðanataka bæjarfulltrúa er krefjandi við þær aðstæður sem nú ríkja, þar sem veigamiklar forsendur eru utan beins áhrifasviðs sveitarfélagsins og veruleg óvissa áfram fyrir hendi.
Birgitta H. Ramsay Káradóttir
Fundarhlé tekið kl. 16:25 - 16:40
Bókun 6 bæjarfulltrúa
Þau hóflegu skref sem hér eru lögð til af meirihluta bæjarstjórnar eru vel innan þeirra marka sem ákveðin voru við samþykkt fjárhagsáætlunar 2026. Það er von okkar að með því getum við mætt væntingum Grindvíkinga um þjónustu við fjölskyldur sem vilja flytja heim til Grindavíkur. Jafnframt styður ákvörðun um skólahald við annað framboð þjónustu í bænum, svo sem opnun matvöruverslunar, veitingastaða, tannlæknaþjónustu auk þeirra fyrirtækja sem hafa starfað í Grindavík frá rýmingu. Við óskum eindregið eftir stuðningi allra sem málið varðar til þess að stíga með þessu móti markviss skref í átt að endurreisn bæjarins.
Meirihluti bæjarstjórnar.2. Aðalskipulagsbreyting vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi
Unnið hefur verið úr umsögnum um óverulega breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar varðandi breytta veglínu Norðurljósavegar og tengingu vegarins við Grindavíkurveg, með það að markmiði að bæta umferðaröryggi. Tillagan hefur verið uppfærð með tilliti til ábendinga í umsögnum ásamt því að vera afgreidd úr innviðanefnd sem vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Til máls tók: Ásrún.
Innviðanefnd tók fyrir og afgreiddi óverulega aðalskipulagsbreytingu vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi. Unnið hefur verið úr umsögnum um skipulagstillöguna varðandi breytta veglínu Norðurljósavegar og tengingu vegarins við Grindavíkurveg, með það að markmiði að bæta umferðaröryggi.
Innviðanefnd gerði ekki athugasemd við tillöguna vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða aðalskipulagstillöguna og að málsmeðferð hennar sé í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.3. Orkuvinnsla í Eldvörpum - Umsókn um skipulagsbreytingar
HS orka leggur fram beiðni til Grindavíkurbæjar um að hefja skipulagsvinnu í tengslum við jarðhitanýtingu í Eldvörpum. Um er að ræða matsskylda framkvæmd samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og krefst aðalskipulagsbreytingar og gerð nýs deiliskipulags.
Beiðni HS orku var tekinn fyrir á 13. fundi innviðanefndar þann 19.1.2025 þar sem skipulagsfulltrúa var falið að koma á framfæri athugasemdum í samræmi við umræður á fundinum en að öðru leyti var skipulagslýsingingin samþykkt af nenfndinni. Skipulagsfulltrúa var falið að leita umsagna um skipulagslýsinguna hjá Skipulagsstofunun og umsagnaraðilum og kynna hana almenningi í samræmi við 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagslýsing verkefnisins hefur verið uppfærð til samræmis við ábendingar skipulagsfulltrúa.
Bókun innviðanefndar er lögð fram til afgreiðslu bæjarstjórnar.Til máls tók: Ásrún.
HS orka leggur fram beiðni til Grindavíkurbæjar um að hefja skipulagsvinnu í tengslum við jarðhitanýtingu í Eldvörpum. Um er að ræða matsskylda framkvæmd samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og krefst aðalskipulagsbreytingar og gerð nýs deiliskipulags.
Beiðni HS orku var tekinn fyrir á 13. fundi innviðanefndar þann 19.1.2025 þar sem skipulagsfulltrúa var falið að koma á framfæri athugasemdum í samræmi við umræður á fundinum en að öðru leyti var skipulagslýsingingin samþykkt af nenfndinni. Skipulagsfulltrúa var falið að leita umsagna um skipulagslýsinguna hjá Skipulagsstofunun og umsagnaraðilum og kynna hana almenningi í samræmi við 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsing verkefnisins hefur verið uppfærð til samræmis við ábendingar skipulagsfulltrúa.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skipulagslýsinguna og að leitað verði umsagnar um hana hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum ásamt því að kynna hana fyrir almenningi í samræmi við 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bókun innviðanefndar frá 19.01.2026.4. Fasteignagjöld 2026 - Staðarsund 12, beiðni um niðurfellingu
Lögð fram beiðni um undanþágu frá fasteignagjöldum ásamt fylgigögnum.
Til máls tóku: Ásrún,
Lögð fram beiðni um undanþágu frá fasteignagjöldum ásamt fylgigögnum.
Tillaga
Iðnaðarhúsnæðið að Staðarsundi 12 er að hluta afgirt og er það án rafmagns. Jafnframt liggur fyrir að húsnæðið er ekki aðgengilegt til afnota fyrir atvinnustarfsemi án stórfelldra viðgerða.
Telur bæjarstjórn því rétt að fallast á erindi eiganda húsnæðisins um niðurfellingu fasteignagjalda á árinu 2026.
Samþykkt samhljóða.5. Skýrsla um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ
Lögð fram lokaskýrsla KPMG til bæjarstjóra um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ vegna ársins 2025.
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram lokaskýrsla KPMG til bæjarstjóra um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ vegna ársins 2025.6. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga og framboð til stjórnar 2026
Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags 12. febrúar 2026 þar sem tilnefningarnefnd Lánasjóðsins auglýsir eftir framboðum til stjórnarsetu.
Til máls tók: Ásrún.
Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags 12. febrúar 2026 þar sem tilnefningarnefnd Lánasjóðsins auglýsir eftir framboðum til stjórnarsetu.Fannar Jonasson, bæjarstjóri vék af fundi kl. 16:00
7. Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundarhlé tekið kl. 16:55 - 17:00
Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 23.01.2026 er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún,
Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 23.01.2026 er lögð fram til kynningar.8. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerð 50. aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 09.12.2025 lögð fram til kynningar
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 50. aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 09.12.2025 er lögð fram til kynningar.9. Fundargerðir 2025 - Samtök orkusveitarfélaga
Fundargerð 88. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 17. október 2025 er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún
Fundargerð 88. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 17. október 2025 er lögð fram til kynningar.10. Fundargerðir 2026 - Samtök orkusveitarfélaga
Fundargerð 89. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 09. janúar 2026 er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 89. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 09. janúar 2026 er lögð fram til kynningar.11. Fundargerðir 2026 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerð frá 820. fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 11. febrúar 2026 er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 820. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 11. febrúar 2026 er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026
Fundargerð 322. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 04.02.2026 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Birgitta Hrund.
Fundargerð 322. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 04.02.2026 er lögð fram til kynningar.13. Bæjarráð Grindavíkur - 1701
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
il máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Hjálmar og Gunnar Már.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.14. Bæjarráð Grindavíkur - 1702
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1703
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Almannavarnanefnd Grindavíkur - 81
Fundargerðin er lögð fram til kynnignar.
Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 94
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríðaur og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.