Bæjarstjórn Grindavíkur - 497. fundur
- 27.08.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 497
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Íbúi Grindavíkur nr.3500
Á dögunum urðu Grindavíkingar 3500. Íbúa númer 3500 verður veitt viðurkenning og blóm í tilefni áfangans.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Í byrjun ágúst urðu íbúar í Grindvík 3.500. Þorleifur Freyr Steinsson er íbúi númer 3.500 og er honum veitt viðurkenning í tilefni þess.2. Tillaga að friðlýsingu svæðis í verndarflokki rammáætlunar til kynningar (Brennisteinsfjöll)
Lögð er fram til kynningar tillaga að friðlýsingu svæðis í verndarflokki rammaáætlunar. Um er að ræða háhitasvæði Brennisteinsfjalla.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að friðlýsingu háhitasvæðis Brennisteinsfjalla að stærð 123,1 km2.Til máls tóku: Sigurður Óli og Guðmundur
Lögð er fram til kynningar tillaga að friðlýsingu svæðis í verndarflokki rammaáætlunar. Um er að ræða háhitasvæði Brennisteinsfjalla. Athugasemdafrestur er til 30. október 2019.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að friðlýsingu háhitasvæðis Brennisteinsfjalla að stærð 123,1 km2.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við tillöguna.3. Ósk um umsögn um tillögu að breytingum á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja óskar umsagnar á tillögu að breytingu á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008 - 2024 ásamt umhverfisskýrslu, sem samþykkt hefur verið til auglýsingar í samræmi við 27.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytingu á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024.Til máls tók: Sigurður Óli.
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja óskar umsagnar á tillögu að breytingu á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008 - 2024 ásamt umhverfisskýrslu, sem samþykkt hefur verið til auglýsingar í samræmi við 27.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytingu á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við tillöguna.4. Vegagerðin - samningur vegna gatnalýsingar
Vegagerðin og Grindavíkurbær eiga saman fimm stýriskápa vegna gatnalýsingar. Lagður er fram samningur um endurnýjun og rekstur þessara stýriskápa.
Óskað er eftir heimild til að ganga til samninga við Vegagerðina.Til máls tóku: Sigurður Óli og bæjarstjóri.
Vegagerðin og Grindavíkurbær eiga saman fimm stýriskápa vegna gatnalýsingar. Lagður er fram samningur um endurnýjun og rekstur þessara stýriskápa.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.5. Umferðaröryggisnefnd
Skipulagsnefnd skorar á bæjarstjórn að skipa umferðaröryggisnefnd.
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Guðmundur og Hjálmar.
Skipulagsnefnd skorar á bæjarstjórn að skipa umferðaröryggisnefnd.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka málið upp í haust.6. Samstarfssamningur við Knattspyrnufélagið GG 2020-2021
Lagður fram samstarfssamningur við Knattspyrnufélagið G.G. 2020-2021.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Lagður fram samstarfssamningur við Knattspyrnufélagið G.G. 2020-2021.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða og felur bæjarstjóra að undirrita hann.7. Samstarfssamningur við Unglingadeildina Hafbjörgu 2020-2021
Lagður fram samstarfssamningur við Unglingadeildina Hafbjörgu 2020-2021.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Lagður fram samstarfssamningur við Unglingadeildina Hafbjörgu 2020-2021.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða og felur bæjarstjóra að undirrita hann.8. Umsókn um styrk
Lagður fram samstarfssamningur við Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness 2020-2021.
Til máls tóku: Sigurður Óli og Hjálmar.
Lagður fram samstarfssamningur við Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness 2020-2021.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða og felur bæjarstjóra að undirrita hann.9. Áheyrnafulltrúi í umhverfis- og ferðamálanefnd
Ferðamálasamtök Grindavíkur, Grindavik Experience tilnefna Kára Guðmundsson sem fulltrúa til setu í umhverfis- og ferðamálanefnd. Hann hefur málfrelsi og tillögurétt. Þormar Ómarsson er hans varamaður.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Ferðamálasamtök Grindavíkur, Grindavik Experience tilnefna Kára Guðmundsson sem fulltrúa til setu í umhverfis- og ferðamálanefnd. Hann hefur málfrelsi og tillögurétt. Þormar Ómarsson er hans varamaður.
Bæjarstjórn samþykkir tilnefninguna samhljóða.10. Breyting á formanni í umhverfis- og ferðamálanefnd
Eftir sveitarstjórnarkosningar vorið 2018 var það samkomulag að B-list fengi formann umhverfis- og ferðamálanefndar fyrsta árið. U-list fengí síðan næstu 3 ár þar á eftir.
Til máls tóku: Sigurður Óli og Helga Dís,
Eftir sveitarstjórnarkosningar vorið 2018 var það samkomulag að B-listi fengi formann umhverfis- og ferðamálanefndar fyrsta árið. U-listi fengi síðan næstu 3 ár þar á eftir.
Tillaga um að Sigríður Etna Marinósdóttir verði formaður nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða.11. Kosning í nefndir samkvæmt C-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Fyrir liggur að kjósa nýjan aðalmann og varamann í Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja.
Til máls tóku: Sigurður Óli og bæjarstjóri.
Fyrir liggur að kjósa nýjan aðalmann og varamann í Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja.
Tillaga er um að Lilja Sigmarsdóttir verði aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson verði varamaður.
Samþykkt samhljóða.12. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Fyrir liggur að kjósa nýjan aðalmann í félagsmálanefnd.
Til máls tóku: Sigurður Óli og Páll Valur
Fyrir liggur að kjósa nýjan aðalmann í félagsmálanefnd.
Tillaga um að Páll Valur Björnsson verði aðalmaður í stað Mörtu Sigurðardóttur.
Samþykkt samhljóða.13. Bæjarráð Grindavíkur - 1517
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, bæjarstjóri, Guðmundur, Páll Valur og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.14. Bæjarráð Grindavíkur - 1518
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hjálmar, Páll Valur, Guðmundur, Hallfríður, Birgitta, bæjarstjóri og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1519
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, bæjarstjóri, Hjálmar, Birgitta, Helga Dís, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Páll Valur og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1520
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Helga Dís, Birgitta, Hallfríður, Guðmundur, Páll Valur og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Bæjarráð Grindavíkur - 1521
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Bæjarráð Grindavíkur - 1522
Til máls tóku: Sigurður Óli, Birgitta, Guðmundur, Páll Valur, Hjálmar, Helga Dís, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1523
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Hallfríður, Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Páll Valur, Birgitta og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Skipulagsnefnd - 60
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Páll Valur, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Skipulagsnefnd - 61
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Birgitta, Páll Valur, Hjálmar, Hallfríður, bæjarstjóri og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.22. Frístunda- og menningarnefnd - 85
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Páll Valur, Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta, bæjarstjóri, Hallfríður og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.23. Fræðslunefnd - 88
Til máls tóku: Sigurður Óli, Birgitta, Helga Dís, Páll Valur, Guðmundur, Hallfríður, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.24. Fræðslunefnd - 89
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Birgitta og Guðmundur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.25. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 38
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hjálmar, Hallfríður og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.