Bæjarstjórn Grindavíkur - 576. fundur
- 27.08.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 576
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Samþykktir og stjórnsýsla Grindavíkurbæjar - Tillögur vinnuhóps
Lögð fram til lokaumræðu bæjarstjórnar tillaga vinnuhóps bæjarfulltrúa um tímabundna breytingu á samþykkt um stjórn Grindavíkurbæjar. Breytingartillaga sem heimilar bæjarstjórn að fela framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ að taka að sér verkefni á sviði fræðslumála fyrir hönd bæjarins.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Frá Grindavíkurnefnd í Teams: Guðný Sverrisdóttir, Gunnar Einarsson, Árni Þór Sigurðsson og Pétur U Tómasson. Jóhanna Lilja Birgisdóttir í Teams, Guðjón Bragason, í Teams og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Árni, Hallfríður, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Hjálmar.
Lögð fram til lokaumræðu bæjarstjórnar tillaga vinnuhóps bæjarfulltrúa um tímabundna breytingu á samþykkt um stjórn Grindavíkurbæjar, nr. 530/2022, með síðari breytingum. Um er að ræða þriðju umræðu um málið. Tillagan um framsal verkefna til framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavík, sem rædd var á fundi bæjarstjórnar 20. ágúst sl., hefur tekið nokkrum breytingum. Í minnisblaði bæjarstjóra, dags. 26. ágúst, er gerð grein fyrir álitaefnum er varða útfærslu tillögunnar og var eftirfarandi bókað:
Tillaga um breytingar á samþykkt er samþykkt samhljóða. Bæjarstjóra er falið að eiga samtal við framkvæmdanefnd um nánari afmörkun verkefna á sviði fræðslumála sem færast til nefndarinnar, með hliðsjón af umræðu á fundinum um útgjöld sem Grindavíkurbær mun þurfa að standa straum af. Vísar bæjarstjórn að öðru leyti til ákvæða 4. og 5. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík um umgjörð verkefnatilfærslu og réttindi og skyldur sem af henni leiðir.
Tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar, nr. 530/2022, með síðari breytingum nr. 267/2023 og 51/2024.
Við samþykktina bætast fjögur ný bráðabirgðaákvæði sem falla úr gildi 15 dögum eftir almennar sveitarstjórnarkosningar 2026, og hljóða svo:
a. Bæjarstjórn, fastanefndir og starfslið Grindavíkurbæjar skulu kappkosta að eiga skilvirkt samstarf við framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, sem starfar á grundvelli laga nr. 40/2024.
b. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 8. gr. er bæjarstjórn heimilt að funda utan Grindavíkur.
c. Þrátt fyrir ákvæði 48. gr. kýs bæjarstjórn eftirtaldar fastanefndir:
a. Samfélagsnefnd, sem fer með verkefni frístunda- og menningarnefndar, fræðslunefndar og félagsmálanefndar, að því leyti sem þau eru ekki falin öðrum. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
b. Innviðanefnd, sem fer með verkefni skipulagsnefndar og hafnarstjórnar, að því leyti sem þau eru ekki falin öðrum. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
d. Með vísan til 4. gr. laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, felur bæjarstjórn framkvæmdanefndinni ábyrgð og framkvæmd lögbundinna verkefna sveitarfélagsins á grundvelli laga um grunnskóla nr. 91/2008, laga um leikskóla nr. 90/2008 og laga nr. 86/2021, um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ofangreinda breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.2. Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Lagður fram samningur um skólavist grunnskólabarna með lögheimili í Grindavík.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Frá Grindavíkurnefnd í Teams: Guðný Sverrisdóttir, Gunnar Einarsson, Árni Þór Sigurðsson og Pétur U Tómasson. Jóhanna Lilja Birgisdóttir í Teams, Guðjón Bragason, í Teams og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Gunnar Einarsson, Hallfríður, Helga Dís, bæjarstjóri, Hjálmar og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lagður fram samningur um skólavist grunnskólabarna með lögheimili og búsetu í Grindavík.3. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni
Drög að samningi við Kópavogsbæ og Breiðablik lögð fram.
Til máls tók: Ásrún.
Málinu er frestað til næsta bæjarráðsfundar.4. Skólabílar Grindavíkurbæjar
Erindi frá yfirmanni þjónustumiðstöðvar um skólabíla sem Grindavíkurbær á lagt fram til umræðu og ákvörðunar.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Helga Dís, Hjálmar, bæjarstjóri, Gunnar Már og Unnar.
Lagt fram minnisblað frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar, dags 22.08.2024.
Bæjarstjórn samþykkir erindið.
Jafnframt felur bæjarstjórn sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að fara yfir lausafé Grindavíkur með tilliti til mögulegrar sölu.5. Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur sent sveitarfélögunum á Suðurnesjum drög að nýrri samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss. Þess er farið á leit við sveitarstjórnir að þær taki afstöðu til málsins.
Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, Gunnar Már, Hallfríður, Unnar, bæjarstjóri, Helga Dís og Birgitta Hrund.
Lögð fram drög að nýrri samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlögð drög.