Bæjarstjórn Grindavíkur - 508. fundur
- 30.06.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 508
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir heimild til að setja eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum, sem 11. mál:
1912065 Húsnæðismál sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Samþykkt samhljóða.
1. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Endurskoðað aðalskipulag var tekið fyrir eftir auglýsingu skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga á síðasta fundi skipulagsnefndar. Þar fjallaði nefndin um innkomnar athugasemdir og umsagnir opinbera aðila og viðbrögð sveitarfélagsins við þeim.
Skipulagsnefnd samþykkti endurskoðað aðalskipulag með áorðnum breytingum eftir auglýsingu og vísar afgreiðslu þess til bæjarstjórnar í samræmi við 2.mgr. 32.gr. skipulagslaga.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Sigurður Óli, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Guðmundur og Páll Valur.
Bókun
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að aðalskipulagi eins og hún er hér lögð fram. Er skipulagsfulltrúa falið að senda aðalskipulagið til staðfestingar Skipulagsstofnunar í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá er skipulagsfulltrúa falið að senda þeim er gerðu athugasemd við aðalskipulagið umsögn bæjarstjórnar um þær.2. Suðurhóp 2 (Áfangi 2 við Hópskóla)- umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi við Suðurhóp 2. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir stækkun á Hópskóla.
á 74. fundi skipulagsnefndar samþykkti nefndin byggingaráformin fyrir sitt leyti og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.Til máls tóku: Sigurður Óli og Páll Valur.
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi við Suðurhóp 2. Í umsókninni er sótt um byggingarleyfi fyrir stækkun á Hópskóla.
á 74. fundi skipulagsnefndar samþykkti nefndin byggingaráformin fyrir sitt leyti og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bygginganefndar.3. Norðurhóp 66 Umsókn um byggingarleyfi
Endurnýjun á umsókn um byggingarleyfi á þegar samþykktum teikningum við Norðurhóp 66. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3.hæða fjölbýlishúsi.
Á 74.fundi skipulagsnefndar samþykkti nefndin byggingaráformin fyrir sitt leyti og vísaði til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.Til máls tók: Sigurður Óli.
Endurnýjun á umsókn um byggingarleyfi á þegar samþykktum teikningum við Norðurhóp 66. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir þriggja hæða fjölbýlishúsi.
Á 74.fundi skipulagsnefndar samþykkti nefndin byggingaráformin fyrir sitt leyti og vísaði til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.4. Innkaup- Rammasamningur Ríkiskaupa
Grindavíkurbær er aðili að rammasamningi ríkiskaupa. Þau markmið sem lagt er upp með í rammasamningi eru ekki að nást, þ.e. í rammasamningi eru ekki endilega hagstæðustu verð. Lagt er til að hætta aðild að rammasamningi og aðlaga innkaupareglur bæjarins að því. Bæjarráð lagði til á fundi þann 23.júní sl. til við bæjarstjórn að Grindavíkurbær hætti í rammasamningi ríkiskaupa og að innkaupareglur bæjarins verði lög um opinber innkaup.
Til máls tóku: Sigurður Óli og Hallfríður.
Grindavíkurbær er aðili að rammasamningi ríkiskaupa. Þau markmið sem lagt er upp með í rammasamningi eru ekki að nást, þ.e. í rammasamningi eru ekki endilega hagstæðustu verð. Lagt er til að hætta aðild að rammasamningi og aðlaga innkaupareglur bæjarins að því.
Bæjarráð lagði til á fundi þann 23.júní sl. til við bæjarstjórn að Grindavíkurbær hætti í rammasamningi ríkiskaupa og að innkaupareglur bæjarins verði lög um opinber innkaup.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.5. Bjarg íbúðafélag - Um húsnæðissjálfseignastofnun
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun óskar eftir staðfestingu bæjarfélagsins vegna veitingar 12% stofnframlags til byggingar á 12 íbúðum að Víkurhópi 57 á vegum Bjargs íbúðafélags. Áætlaður heildarkostnaður er 326.861.326 kr. og hlutur Grindavíkurbæjar 39.223.359 kr. að meðtöldum gatnagerðargjöldum, tengigjöldum og byggingarleyfisgjöldum sem sem teljast hluti af stofnframlagi bæjarfélagsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta stofnframlag Grindavíkurbæjar.Til mál tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Páll Valur og Guðmundur.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun óskar eftir staðfestingu bæjarfélagsins vegna veitingar 12% stofnframlags til byggingar á 12 íbúðum að Víkurhópi 57 á vegum Bjargs íbúðafélags. Áætlaður heildarkostnaður er 326.861.326 kr. og hlutur Grindavíkurbæjar 39.223.359 kr. að meðtöldum gatnagerðargjöldum, tengigjöldum og byggingarleyfisgjöldum sem teljast hluti af stofnframlagi bæjarfélagsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta stofnframlag Grindavíkurbæjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.6. Félagsaðstaða eldri borgara
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eftirfarandi aðilar verði skipaðir í starfshóp um byggingu félagsheimilis fyrir aldraða: Stefanía S Jónsdóttir og Hjálmar Hallgrímsson. Öldungaráð skipi þriðja fulltrúann.
Í fundargerð nr. 7 hjá öldungaráði er Ágústa Gísladóttir tilnefnd í starfshópinn, sbr. 12. mál á dagskrá.
Bæjarráð leggur til að greitt verði fyrir setu í starfshópnum.
Ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun og því þarf að samþykkja viðauka fyrir árið 2020.
Áætlun er um að hver fundur hópsins muni verða um 150.000 kr. með launatengdum gjöldum. 4 fundir munu því kosta um 600.000.Til máls tóku: Sigurður Óli og Hjálmar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eftirfarandi aðilar verði skipaðir í starfshóp um byggingu félagsheimilis fyrir aldraða: Stefanía S Jónsdóttir og Hjálmar Hallgrímsson. Frá öldungaráði er tilnefnd Ágústa Gísladóttir.
Bæjarstjórn samþykkir tilnefninguna.
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn viðauka við fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 600.000 kr. vegna nefndarlauna starfshópsins og að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.7. Ósk um aðstöðu fyrir Pílufélag Grindavíkur
Samningur við Pílufélag Grindavíkur lagður fram til staðfestingar. Frístunda- og menningarnefnd og bæjarráð hafa samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Samningur við Pílufélag Grindavíkur lagður fram til staðfestingar. Frístunda- og menningarnefnd og bæjarráð hafa samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.8. Túngata 15-17 - ósk um viðauka
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2020 á launalykla hjá sambýlinu við Túngötu að fjárhæð 2.932.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.Til máls tók: Sigurður Óli.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2020 á launalykla hjá sambýlinu við Túngötu að fjárhæð 2.932.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.9. Greiðslur fyrir farsíma
Lögð fram tillaga að reglum um þátttöku Grindavíkurbæjar í farsímakostnaði starfsmanna vegna nota í þágu bæjarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.Til máls tóku: Sigurður Óli, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Hallfríður.
Lögð fram tillaga að reglum um þátttöku Grindavíkurbæjar í farsímakostnaði starfsmanna vegna nota í þágu bæjarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglurnar.10. Óskipt land Þórkötlustaða
Á 1552. fundi bæjarráðs voru lögð fram gögn vegna kaupa á smæstu hlutum í hinu óskipta landi. Kaupverð eignarhlutanna yrði á grundvelli útreikninga sem fram voru lagðir á fundinum. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram. Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárfestingaáætlun 2020 að fjárhæð 9.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Á 1552. fundi bæjarráðs voru lögð fram gögn vegna kaupa á smæstu hlutum í hinu óskipta landi. Kaupverð eignarhlutanna yrði á grundvelli útreikninga sem fram voru lagðir á fundinum. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárfestingaáætlun 2020 að fjárhæð 9.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða kaup eignarhlutana og samþykkir jafnframt samhljóða viðaukann.12. Heimild til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi bæjarstjórnar
Með vísan til 8. gr. samþykkta um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar leggur forseti til að fundir bæjarstjórnar verði felldir niður júlí í sumarleyfi bæjarstjórnar og bæjarráð hafi þann tíma þær heimildir til afgreiðslu mála sem lög leyfa.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Tillaga
Með vísan til 8. gr. samþykkta um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar leggur forseti til að fundir bæjarstjórnar verði felldir niður júlí í sumarleyfi bæjarstjórnar og bæjarráð hafi þann tíma þær heimildir til afgreiðslu mála sem lög leyfa.
Samþykkt samhljóða.13. Fundargerðir - Öldungaráð Grindavíkurbæjar 2020
Fundargerð 7. fundar öldungaráðs Grindavíkurbæjar, dags. 15. júní 2020.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hjálmar, Guðmundur, Hallfríður, Helga Dís og Birgitta.
Fundargerð 7. fundar öldungaráðs Grindavíkurbæjar, dags. 15. júní 2020 lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2020
Fundargerð 884. fundar dags. 20. maí 2020 lögð fram.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerð 884. fundar, dags. 20. maí 2020 lögð fram til kynningar.15. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2020
Fundargerð 885. fundar dags. 12. júní 2020 lögð fram.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Helga Dís, Birgitta, Guðmundur, Hjálmar, Páll Valur og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð 885. fundar, dags. 12. júní 2020 lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1549
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Helga Dís, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Bæjarráð Grindavíkur - 1550
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta, Helga Dís, Guðmundur og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Bæjarráð Grindavíkur - 1551
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Guðmundur, Hjálmar, Birgitta, Hallfríður og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1552
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Helga Dís, Hjálmar, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Skipulagsnefnd - 73
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Skipulagsnefnd - 74
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Helga Dís, Hallfríður og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.22. Frístunda- og menningarnefnd - 96
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.23. Fræðslunefnd - 98
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur, Hjálmar, Páll Valur, Helga Dís, Birgitta og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.24. Hafnarstjórn Grindavíkur - 472
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Hallfríður, Guðmundur, Birgitta og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.25. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 45
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Hjálmar, Hallfríður, Guðmundur og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.26. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 45
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.