Bæjarstjórn Grindavíkur - 515. fundur
- 23.02.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 515
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Beiðni um umsögn - Lýsing á Svæðisskipulagi Suðurnesja
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja óskar eftir umsögn við verk- og matslýsingu vegna endurskoðunar á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008 - 2024.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við verk- og matslýsinguna á fundi sínum þann 15. febrúar sl. Afgreiðslu skipulagsnefndar vísað til bæjarstjórnar.Til máls tók: Sigurður Óli.
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja óskar eftir umsögn við verk- og matslýsingu vegna endurskoðunar á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008 - 2024.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við verk- og matslýsinguna á fundi sínum þann 15. febrúar sl. Afgreiðslu skipulagsnefndar vísað til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.2. Umsókn um framkvæmdarleyfi - Sjóvarnir í Grindavík
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við sjóvarnir í Grindavík. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkur.
Skiplagsnefnd samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar sl. veitingu framkvæmdarleyfisins og vísaði málinu til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.Til máls tók: Sigurður Óli.
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við sjóvarnir í Grindavík. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkur.
Skiplagsnefnd samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar sl. veitingu framkvæmdarleyfisins og vísaði málinu til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða veitingu framkvæmdaleyfisins.3. Stækkun eldisstöðvar að Stað í Grindavík-umsagnarbeiðni
Lögð er fram tillaga að matáætlun vegna stækkunar eldisstöðvar að Stað í Grindavík. Umsagnafrestur er til 1. mars n.k.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna á fundi sínum þann 15. febrúar sl. með þeim fyrirvara að gerð verði grein fyrir valkostum á frárennsli í frummatsskýrslunni.
Afgreiðslu skipulagsnefndar var vísað til bæjarstjórnar.Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur og Guðmundur.
Lögð er fram tillaga að matáætlun vegna stækkunar eldisstöðvar að Stað í Grindavík. Umsagnafrestur er til 1. mars n.k.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna á fundi sínum þann 15. febrúar sl. með þeim fyrirvara að gerð verði grein fyrir valkostum á frárennsli í frummatsskýrslunni.
Afgreiðslu skipulagsnefndar var vísað til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.4. Hafnargata 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um byggingarleyfi vegna Hafnargötu 4. Sótt er um að breyta báðum eignarhlutum 01-0101 og 02-010 í geymslur. Einnig er sótt um að skipta eignum með brunavegg fyrir nýtt fastanúmer.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Umsókn um byggingarleyfi vegna Hafnargötu 4. Sótt er um að breyta báðum eignarhlutum 01-0101 og 02-010 í geymslur. Einnig er sótt um að skipta eignum með brunavegg fyrir nýtt fastanúmer.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða veitingu leyfisins.5. Gatnalýsing: Uppfærð stefna Grindavíkurbæjar
Lögð er fram til samþykktar tillaga að breytingu á stefnu Grindavíkurbæjar varðandi gatnalýsingu. Bæjarráð samþykkir framlagða stefnu og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Lögð er fram til samþykktar tillaga að breytingu á stefnu Grindavíkurbæjar varðandi gatnalýsingu. Bæjarráð samþykkti framlagða stefnu og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða uppfærða stefnu um gatnalýsingu.6. Geymslusvæði gáma. Nýtt svæði, gjaldskrá og reglur.
Lögð fram tillaga að breyttri gjaldskrá og reglum á nýju geymslusvæði Grindavíkurbæjar ofan við iðnaðarhverfi við Eyjabakka.
Bæjarráð samþykkir að stofngjald lóðar verði 40.000 kr. og miðast við 50 fermetra. Gjaldtaka umfram það verði 1.000 kr. á hvern fermetra. Bæjarráð vísaði gjaldskránni til staðfestingar í bæjarstjórn á fundi sínum þann 16. febrúar sl.Til máls tóku: Sigurður Óli og Hjálmar.
Lögð fram tillaga að breyttri gjaldskrá og reglum á nýju geymslusvæði Grindavíkurbæjar ofan við iðnaðarhverfi við Eyjabakka.
Bæjarráð samþykkti að stofngjald lóðar verði 40.000 kr. og miðast við 50 fermetra. Gjaldtaka umfram það verði 1.000 kr. á hvern fermetra. Bæjarráð vísaði gjaldskránni til staðfestingar í bæjarstjórn og reglum um gámasvæðið.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrána og reglurnar.7. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti 16. febrúar sl.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur og Páll Valur.
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti 16. febrúar sl.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.8. Sérstakt skólaúrræði
Lögð fram viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 18.400.000 kr. á rekstrareininguna 04221 Sérskólar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja beiðnina og að hún verði fjármögnuð með lækkun á handbæru fé.Til máls tók: Sigurður Óli.
Lögð fram viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 18.400.000 kr. á rekstrareininguna 04221 Sérskólar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja beiðnina og að hún verði fjármögnuð með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.9. Vefsíða Grindavíkurbæjar
Tilboð frá Sjá ehf. í undirbúnings- og greiningarvinnu fyrir nýjan vef bæjarins lagt fram. Bæjarráð samþykkir að semja við Sjá ehf. vegna undirbúnings og greiningarvinnu við nýja heimasíðu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 1.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.Til máls tóku: Sigurður Óli, Hjálmar og Páll Valur.
Tilboð frá Sjá ehf. í undirbúnings- og greiningarvinnu fyrir nýjan vef bæjarins lagt fram. Bæjarráð samþykkir að semja við Sjá ehf. vegna undirbúnings og greiningarvinnu við nýja heimasíðu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 1.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.10. Golfklúbbur Grindavíkur - viðaukabeiðni vegna búnaðar
Í fjárfestingaáætlun 2021 eru 6.500.000 kr. sem gert var ráð fyrir til kaupa á brautarsláttuvél fyrir Golfklúbbinn. Vélin kostar 8.640.816 kr. og því er óskað eftir viðauka að fjárhæð 2.141.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verið fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.Til máls tók: Sigurður Óli.
Í fjárfestingaáætlun 2021 eru 6.500.000 kr. sem gert var ráð fyrir til kaupa á brautarsláttuvél fyrir Golfklúbbinn. Vélin kostar 8.640.816 kr. og því er óskað eftir viðauka að fjárhæð 2.141.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verið fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.11. Tækjakaup Þjónustumiðstöð 2021
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 2.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með sölu á BobCat skotbómulyftara að fjárhæð 2.000.000 kr.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 2.000.000 kr. til tækjakaupa þjónustumiðstöðvar sem fjármagnaður verði með sölu á BobCat skotbómulyftara að fjárhæð 2.000.000 kr.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann.12. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga og framboð til stjórnar
Aðalfundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, 26. mars 2021. Allir sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að sækja aðalfundinn. Kjörnefnd kallar eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar.
Til máls tóku: Sigurður Óli og bæjarstjóri.
Aðalfundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, 26. mars 2021. Allir sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að sækja aðalfundinn. Kjörnefnd kallar eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar.13. Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða
Atvinnuveganefnd Alþingis hefur til meðferðar frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.), 418. mál.
Til máls tóku: Sigurður Óli og Hallfríður.
Atvinnuveganefnd Alþingis hefur til meðferðar frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.), 418. mál.
Tillaga að bókun
Í frumvarpinu er bráðabirgðaákvæði XXII sem bætist við lögin. Þar er lagt til að ráðstafa bótum til handhafa skel- og rækjubóta með úthlutun aflahlutdeildar að jafngildi 1482 þorskígildistonnum. Þessar bætur verði gerðar upp með varanlegum hætti með því að skerða aflahlutdeild handhafa í króka- og aflamarkskerfinu. Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar mótmælir því að tilteknum bótaþegum verði afhent aflahlutdeild með því að skerða á móti aflahlutdeild annarra aðila í sjávarútvegi. Í þessu sambandi má benda á að samkvæmt frumvarpsdrögum sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda í september 2020, var ekki gert ráð fyrir úthlutun aflahlutdeildar til skel- og rækjubótaþega. Þar var þvert á móti gert ráð fyrir afnámi rækju- og skelbóta í hóflegum skrefum á tveggja ára tímabili án þess að annars konar bætur kæmu fyrir. Í fyrirliggjandi frumvarpi er því um kúvendingu að ræða hvað varðar uppgjör á skel- og rækjubótum. Sé það vilji ríkisins að gera upp skel- og rækjubætur þarf það að gerast innan 5,3% veiðiheimildanna en ekki með skerðingu á aflahlutdeild núverandi handhafa aflahlutdeilda.
Í frumvarpinu er því haldið fram að sú skerðing sem hlutdeildarhafar í afla- og krókaaflamarkskerfinu sæti sé svo léttvæg að ekki varði skaðabótum. Að mati bæjarstjórnar Grindavíkur eru hins vegar líkur á því að með skerðingu á aflahlutdeild núverandi handhafa gæti ríkið skapað sér bótaábyrgð með ærnum kostnaði. Að auki gætu þær athafnir skapað varhugaverð fordæmi um frekari íhlutanir og skerðingar.
Það er niðurstaða bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar að leggjast gegn frumvarpinu eins og það liggur fyrir og er vísað til framangreindra athugasemda í því sambandi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða bókunina og felur bæjarstjóra að senda hana inn í samráðsgáttina.14. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Fundargerð 894. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 29. janúar 2021 er lögð fram.
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Helga Dís, Birgitta, Hallfríður, Guðmundur, Páll Valur og Hjálmar.
Fundargerð 894. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 29. janúar sl. er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1570
Til máls tóku: Sigurður Óli, Birgitta, Hjálmar, Páll Valur, Hallfríður, Guðmundur, Helga Dís, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1571
Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur, Hallfríður, Guðmundur, Birgitta, bæjarstjóri, Hjálmar og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Bæjarráð Grindavíkur - 1572
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Hallfríður, bæjarstjóri, Birgitta, Hjálmar og Guðmundur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Skipulagsnefnd - 83
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur, bæjarstjóri, Páll Valur, Hjálmar, Helga Dís og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Fræðslunefnd - 106
Til máls tóku: Sigurður Óli, Birgitta, Guðmundur, Hallfríður, Helga Dís, Páll Valur og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 51
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Birgitta, Hallfríður, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Hafnarstjórn Grindavíkur - 476
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Páll Valur, Hjálmar, Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.22. Sjúkraflutningar í Grindavík
Mál tekið á dagskrá bæjarstjórnar í kjölfar umfjöllunar málsins í fundargerð bæjarráðs nr. 1570.
Tillaga um að málið verði tekið á dagskrá bæjarstjórnar í kjölfar umfjöllunar málsins í fundargerð bæjarráðs nr. 1570 og verði síðasta mál á dagskrá.
Samþykkt samhljóða
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur og Hjálmar.
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkur ítrekar beiðni bæjarráðs um að fá að sjá samning sem snýr að sjúkraflutningum í Grindavík á milli Brunavarna Suðurnesja og Sjúkratrygginga Íslands.