Bæjarstjórn Grindavíkur - 496. fundur
- 28.05.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:55
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 496
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Kosning í bæjarráð, sbr. 27. gr. og A lið 47. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar
Forseti bæjarstjórnar leggur til að eftirfarandi verði kjörin í bæjarráð næsta árið:
Hjálmar Hallgrímsson formaður (D)
Sigurður Óli Þórleifsson varaformaður (B)
Páll Valur Björnsson (S)
Áheyrnarfulltrúar með málfrelsi og tillögurétt:
Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir (M)
Helga Dís Jakobsdóttir (U)
Varamenn taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn og áheyrnarfulltrúar forfallast.Til máls tók: Sigurður Óli.
Forseti bæjarstjórnar leggur til að eftirfarandi verði kjörin í bæjarráð næsta árið:
Hjálmar Hallgrímsson formaður (D)
Sigurður Óli Þórleifsson varaformaður (B)
Páll Valur Björnsson (S)
Áheyrnarfulltrúar með málfrelsi og tillögurétt:
Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir (M)
Helga Dís Jakobsdóttir (U)
Varamenn taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn og áheyrnarfulltrúar forfallast.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.2. Heimild til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi bæjarstjórnar
Tillaga um að fella niður reglulega fundi í júní og júlí og fela bæjarráði afgreiðslu mála.
Til máls tók: Sigurður Óli
Forseti leggur fram tillögu um að fella niður reglulega fundi í júní og júlí og fela bæjarráði afgreiðslu mála.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.3. Ársuppgjör 2018 - Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2018 lagður fram til síðari umræðu.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur og Páll Valur.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2018 er tekinn til síðari umræðu. Vísað er til yfirferðar endurskoðenda við fyrri umræðu þann 30. apríl síðastliðinn. Engar breytingar hafa orðið á ársreikningnum frá fyrri umræðu.
Endurskoðandi Grindavíkurbæjar mun árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun.
Bæjarstjórn staðfestir ársreikninginn samhljóða með undirritun sinni.4. Innkaupareglur Grindavíkurbæjar
Bæjarráð vísar reglunum til samþykktar í bæjarstjórn.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.5. Eyjabakki Deiliskipulag
Fyrir skipulagsnefnd er sett fram skipulags- og matslýsing fyrir deiliskipulag á iðnaðar- og hafnarsvæði á Hópsnesi í Grindavík. Lýsingin er unnin í samræmi við 1.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr. 5.2.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Svæðið sem lýsingin nær til er iðnaðarsvæði i3 og svæði undir hafnsækna starfsemi við Eyjabakka.
Bókun skipulagsnefndar:
Tekin fyrir skipulags- og matslýsing, deiliskipulag fyrir Eyjabakka II í Grindavík. Dags. 7.12.2018. Breytingin gerir ráð fyrir nýju deiliskipulagi á eystri hluta hafnarsvæðisins. Gildandi deiliskipulag fyrir Eyjabakka verður fellt úr gildi við gildistöku nýs skipulags. Talið er heppilegra að hafa eitt skipulag fyrir allt svæðið við Eyjabakka. Skipulagsnefnd samþykkir skipulags- og matslýsinguna og vísar erindinu til bæjarstjórnar.Til máls tóku: Sigurður Óli og Guðmundur.
Lögð fram skipulags- og matslýsing, deiliskipulags fyrir Eyjabakka II í Grindavík. Dags. 7.12.2018. Breytingin gerir ráð fyrir nýju deiliskipulagi á eystri hluta hafnarsvæðisins. Gildandi deiliskipulag fyrir Eyjabakka verður fellt úr gildi við gildistöku nýs skipulags. Talið er heppilegra að hafa eitt skipulag fyrir allt svæðið við Eyjabakka.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulags- og matslýsinguna og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.6. Grágrýti- fyrirspurn
Á fundi með Sigurði Ólafssyni, 26. apríl s.l. voru gerð drög að samkomulagi á milli Grindavíkurbæjar annars vegar og verkefnisstjórnar nýbyggingar Alþingis hins vegar um skipti á grágrýti í eigu Grindavíkurbæjar fyrir Reykjavíkurgrágrýti úr grunni meðferðarkjarna NLSH
við Hringbraut í Reykjavík. Fyrirhugað er að nýta Grindavíkurgrágrýtið sem hráefni til vinnslu steinklæðningar fyrir nýbyggingu Alþingis, en verkið er nú í undirbúningi. Vinnsluhæfir steinar hafa þegar verið
valdir á staðnum og merktir fyrir flutning.
Hér með er leitað eftir formlegri staðfestingu bæjarstjórnar Grindavíkur á samkomulaginu, sem
felur í sér að Grindavíkurbær fái afhent 120m3 eða um 360 tonn af sérvöldu grágrýti til notkunar
í brimvarnargarða, gegn 75m3 eða um 220 tonnum af grágrýti því sem nú er í eigu bæjarins.Til máls tóku: Sigurður Óli og Hjálmar.
Lögð fram beiðni frá Margréti Harðardóttur, arkitekt um staðfestingu bæjarstjórnar á drögum að samkomulagi á milli Grindavíkurbæjar annars vegar og verkefnisstjórnar nýbyggingar Alþingis hins vegar um skipti á grágrýti í eigu Grindavíkurbæjar fyrir Reykjavíkurgrágrýti úr grunni meðferðarkjarna NLSH við Hringbraut í Reykjavík. Fyrirhugað er að nýta Grindavíkurgrágrýtið sem hráefni til vinnslu steinklæðningar fyrir nýbyggingu Alþingis, en verkið er nú í undirbúningi. Vinnsluhæfir steinar hafa þegar verið valdir á staðnum og merktir fyrir flutning.
Um er að ræða að Grindavíkurbær fái afhent 120m2 eða um 360 tonn af sérvöldu grágrýti til notkunar í brimvarnargarða, gegn 75m2 eða um 220 tonnum af grágrýti því sem nú er í eigu bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkir beiðnina samhljóða.7. Gjafir til starfsmanna Grindavíkurbæjar
Bæjarráð samþykkir að gefa starfsmönnum sumargjöf í formi gjafabréfs að fjárhæð 10.000 kr. og fyrirkomulagið verði með sama sniði og jólagjöf til starfsmanna hefur verið undanfarin ár.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2.400.000 kr. á lykilinn 21611-4926 sem fjármagnaður verði með lækkun liðar 09521-4349 um sömu fjárhæð.Til máls tók: Sigurður Óli.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gefa starfsmönnum sumargjöf í formi gjafabréfs að fjárhæð 10.000 kr. og fyrirkomulagið verði með sama sniði og jólagjöf til starfsmanna hefur verið undanfarin ár.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2.400.000 kr. á lykilinn 21611-4926 sem fjármagnaður verði með lækkun liðar 09521-4349 um sömu fjárhæð.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.8. Samstarfssamningur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju
Drög að samstarfssamningi við Grindavíkurkirkju lögð fram. Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Drög að samstarfssamningi við Grindavíkurkirkju lögð fram. Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.9. Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Grindavík 2020-2021
Drög að samstarfssamningi við Félag eldri borgara í Grindavík lögð fram. Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Drög að samstarfssamningi við Félag eldri borgara í Grindavík lögð fram. Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.10. Fundargerðir - Reykjanesfólkvangur
Fundargerð dags. 27. mars sl. til kynningar.
Til máls tóku: Sigðurður Óli, Páll Valur, Guðmundur, Helga Dís, Hallfríður, Birgitta og Hjálmar.
Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs, dags. 27.03.2019, er lögð fram til kynningar.11. Bæjarráð Grindavíkur - 1514
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, bæjarstjóri, Birgitta, Hjálmar, Hallfríður og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.12. Bæjarráð Grindavíkur - 1515
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Helga Dís, Hjálmar, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Birgitta, Páll Valur og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.13. Bæjarráð Grindavíkur - 1516
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, bæjarstjóri, Birgitta, Guðmundur, Hallfríður, Páll Valur, Hjálmar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.14. Skipulagsnefnd - 56
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Hjálmar og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Skipulagsnefnd - 57
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Hjálmar og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Skipulagsnefnd - 58
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta, Helga Dís og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 37
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Frístunda- og menningarnefnd - 83
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, bæjarstjóri, Páll Valur, Helga Dís, Hjámar, Hallfríður og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Fræðslunefnd - 87
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Hallfríður, Birgitta, Guðmundur, Hjálmar, Páll Valur og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Félagsmálanefnd - 101
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Helga Dís, Birgitta og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.