Bæjarstjórn Grindavíkur - 514. fundur
- 26.01.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 514
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Páll Valur Björnsson var í fjarsambandi í gegnum Teams.
1. Deiliskipulag iðnaðarsvæðis I7 - Beiðni um heimild til að vinna deiliskipulagsbreytingu
Samherji Fiskeldi óskar eftir heimild til að vinna breytingu á gildandi deiliskipulagi á iðnaðarsvæði I7 í Grindavík á kostnað fyrirtækisins.
Samkvæmt 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur framkvæmdaraðili óskað eftir því við sveitarstjórn að fá að vinna að gerð breytingar á deiliskipulagi á sinn kostnað.
Skipulagsnefnd samþykkti á 82. fundi sínum þann 19. janúar sl. að heimila Samherja Fiskeldi að vinna að deiliskipulagsbreytingu fyrir iðnaðarsvæði i7 í Grindavík á kostnað fyrirtækisins. Deiliskipulagsbreytingin skal vera í samræmi við drög að matslýsingu sem fylgir erindinu. Málsmeðferð verður í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2020.Til máls tóku: Sigurður Óli og Páll Valur.
Samherji Fiskeldi óskar eftir heimild til að vinna breytingu á gildandi deiliskipulagi á iðnaðarsvæði I7 í Grindavík á kostnað fyrirtækisins.
Skipulagsnefnd samþykkti á 82. fundi sínum þann 18. janúar sl. að heimila Samherja Fiskeldi að vinna að deiliskipulagsbreytingu fyrir iðnaðarsvæði i7 í Grindavík á kostnað fyrirtækisins. Deiliskipulagsbreytingin skal vera í samræmi við drög að matslýsingu sem fylgir erindinu. Málsmeðferð verður í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2020.
Bæjarstjórn samþykkir erindið samhljóða.2. NJARÐVÍKURHÖFN - SUÐURSVÆÐI. Skipulags- og matslýsing, ósk um umsögn
Reykjanesbær óskar umsagnar við verkefnislýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi, gerð deiliskipulags og umhverfismats áætlana vegna Njarðvíkurhafnar - Suðursvæði.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við lýsinguna á 82. fundi sínum þann 19. janúar sl.Til máls tók: Sigurður Óli.
Reykjanesbær óskar umsagnar við verkefnislýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi, gerð deiliskipulags og umhverfismats áætlana vegna Njarðvíkurhafnar - Suðursvæði.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við lýsinguna á 82. fundi sínum þann 18. janúar sl.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.3. Víkurbraut 34 - umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir Víkurbraut 34 vegna breyttrar notkunar/skráningar. Húsið er notað sem íbúðarhús sem endurspeglar ekki skráningu þess í fasteignaskrá. Víkurbraut 34 er í íbúðarbyggð (ÍB1) samkvæmt aðalskipulagi Grindvíkur 2018-2032.
Í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá telur skipulagsnefnd ekki þörf á grenndarkynningu þar sem umsóknin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna á 82. fundi sínum þann 19. janúar sl.Til máls tóku: Sigurður Óli og Guðmundur.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir Víkurbraut 34 vegna breyttrar notkunar/skráningar. Húsið er notað sem íbúðarhús sem endurspeglar ekki skráningu þess í fasteignaskrá. Víkurbraut 34 er í íbúðarbyggð (ÍB1) samkvæmt aðalskipulagi Grindvíkur 2018-2032.
Í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá telur skipulagsnefnd ekki þörf á grenndarkynningu þar sem umsóknin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna á 82. fundi sínum þann 18. janúar sl.
Bæjarstjórn samþykkir breytinguna samhljóða.4. Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir námuvinnslu í Rauðamel
Íslenskir aðalverktakar hf. óska eftir að fá framkvæmdaleyfi fyrir námuvinnslu í Rauðamel. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032.
Skipulagsnefnd samþykkti framkvæmdarleyfið á 82. fundi sínum þann 18. janúar sl. Í bókun nefndarinnar er vakin athygli umsækjanda á þeim skilyrðum sem sett eru fram í framkvæmdarleyfinu. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.Til máls tók: Sigurður Óli.
Íslenskir aðalverktakar hf. óska eftir að fá framkvæmdaleyfi fyrir námuvinnslu í Rauðamel. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032.
Skipulagsnefnd samþykkti framkvæmdarleyfið á 82. fundi sínum þann 18. janúar sl. Í bókun nefndarinnar er vakin athygli umsækjanda á þeim skilyrðum sem sett eru fram í framkvæmdarleyfinu. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir erindið samhljóða.5. Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir námuvinnslu í Stapafelli og Súlum
Íslenskir aðalverktakar hf. óska eftir að fá framkvæmdarleyfi fyrir námuvinnslu í Stapafelli og Súlum. Framkvæmdinn er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032.
Skipulagsnefnd samþykkti framkvæmdarleyfið á 82. fundi sínum þann 18. janúar sl. Í bókun nefndarinnar er vakin athygli umsækjanda á þeim skilyrðum sem sett eru fram í framkvæmdarleyfinu. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.Til máls tók: Sigurður Óli.
Íslenskir aðalverktakar hf. óska eftir að fá framkvæmdarleyfi fyrir námuvinnslu í Stapafelli og Súlum. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032.
Skipulagsnefnd samþykkti framkvæmdarleyfið á 82. fundi sínum þann 18. janúar sl. Í bókun nefndarinnar er vakin athygli umsækjanda á þeim skilyrðum sem sett eru fram í framkvæmdarleyfinu. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir erindið samhljóða.6. Gerðavellir 17 Húsasótt
Lögð fram beiðni um viðauka að upphæð 14.580.000 kr. vegna Gerðavalla 17 í samræmi við aðgerðaráætlun sem samþykkt var í bæjarráði þann 5. janúar sl.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann. Fjármögnun viðaukans verði með lækkun á handbæru fé.Til máls tók: Sigurður Óli.
Lögð fram beiðni um viðauka að upphæð 14.580.000 kr. vegna Gerðavalla 17 í samræmi við aðgerðaráætlun sem samþykkt var í bæjarráði þann 5. janúar sl.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða og að fjármögnun viðaukans verði með lækkun á handbæru fé.7. Bæjarráð Grindavíkur - 1568
Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur, Helga Dís, Birgitta, Hallfríður, Guðmundur, bæjarstjóri, Hjálmar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.8. Bæjarráð Grindavíkur - 1569
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur, Birgitta, bæjarstjóri, Helga Dís, Hjálmar og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.9. Skipulagsnefnd - 82
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri, Birgitta, Hjálmar og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.10. Fræðslunefnd - 105
Til máls tóku: Sigurður Óli, Helga Dís, Páll Valur, Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri, Hallfríður, Birgitta og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.11. Frístunda- og menningarnefnd - 101
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Birgitta, Helga Dís, bæjarstjóri, Páll Valur og Guðmundur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.12. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 50
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.