Bæjarstjórn Grindavíkur - 574. fundur
- 23.07.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 574
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Vilhjálmur Ragnar Kristjánssonvaramaður
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttir1. varaforseti
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Beiðni um viðauka - Aðgerðaráætlun vegna innviðaframkvæmda
Aðgerðaáætlun um innviðaframkvæmdir frá framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ (Grindavíkurnefnd) lögð fram. Heildarkostnaður vegna viðgerða á innviðum innan þéttbýlis í Grindavík er áætlaður um 470 m.kr. og að framkvæmdatími forgangsröðunar 1-4 gæti orðið 6-9 mánuðir. Gert er ráð fyrir að skipting heildarkostnaðar milli ríkisins og sveitarfélagsins verði þannig að ríkið greiði um 440 m.kr. og Grindavíkurbær 30 m.kr.
Samþykkja þarf viðauka að fjárhæð 30 m.kr. fyrir framlagi Grindavíkurbæjar sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Árni Þór Sigurðsson, Gunnar Einarsson og Guðný Sverrisdóttir frá Grindavíkurnefnd og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Til máls tóku: Helga Dís, Árni Þór, Hallfríður, bæjarstjóri, Gunnar Már, Gunnar Einarsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Hjálmar.
Aðgerðaáætlun um innviðaframkvæmdir frá framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ (Grindavíkurnefnd) lögð fram. Heildarkostnaður vegna viðgerða á innviðum innan þéttbýlis í Grindavík er áætlaður um 470 m.kr. og að framkvæmdatími forgangsröðunar 1-4 gæti orðið 6-9 mánuðir. Gert er ráð fyrir að skipting heildarkostnaðar milli ríkisins og sveitarfélagsins verði þannig að ríkið greiði um 440 m.kr. og Grindavíkurbær 30 m.kr.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 30 m.kr. fyrir framlagi Grindavíkurbæjar sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukabeiðnina samhljóða.2. Beiðni um búnaðarkaup
Beiðni frá slökkviliði Grindavíkur um búnaðarkaup lögð fram.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Til máls tóku: Helga Dís, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hjálmar, Gunnar Már, Hallfríður, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Birgitta Rán.
Lögð fram beiðni frá slökkviliðsstjóra um kaup á eftirfarandi búnaði:
Bifreið 8.000.000 kr.
Buggy bíl 7.680.000 kr.
Alls 15.680.000 kr.
Fjármögnun verði með hækkun tekna slökkviliðs að fjárhæð 15.680.000 kr.
Bæjarstjórn frestar ákvörðun málsins og óskar eftir að slökkviliðsstjóri mæti á næasta bæjarstjórnarfund.3. Niðurrif á Hópinu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggur málið fram til umræðu.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Til máls tóku: Helga Dís, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, Birgitta Rán, Birgitta Hrund, Hallfríður, Gunnar Már og Hjálmar.
Framhald frá síðasta fundi. Nú liggur fyrir að engin not geta verið af húsinu þar sem umtalsverðar formbreytingar hafa orðið á stálvirki hússins og annað burðarvirki er altjónað.
Lagt fram tilboð í niðurrif á Hópinu frá HP Gámum og Jóni og Margeir ehf. að fjárhæð 26.797.400 kr.
Bæjarstjórn samþykkir tilboðið samhljóða og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.4. Fálkahlíð 4 og 6, fyrirspurn um skipulagsmál.
Lögð fram fyrirspurn frá Lagnaþjónustu Þorsteins vegna Fálkahlíðar 4 og 6
Til máls tóku: Helga Dís, Guðjón, Hallfríður, Birgitta Hrund og bæjarstjóri.
Lögð fram fyrirspurn frá Lagnaþjónustu Þorsteins vegna Fálkahlíðar 4 og 6.
Starfsmenn Grindavíkurbæjar funduðu með Þorsteini og lögmanni hans 16. júlí sl. og er málið í vinnslu.5. Samþykktir og stjórnsýsla Grindavíkurbæjar - Tillögur vinnuhóps
Fundargerð 3. fundar vinnuhóps um breytingar á samþykktinni, dags. 3. júlí 2024 er lögð fram.
Lögð fram til kynningar auglýsing innviðaráðuneytis nr. Xx/2024, um ákvörðun ráðherra til að tryggja hæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins. Auglýsingin felur í sér framlengingu á auglýsingu um sama efni, nr. 333/2024.
Einnig lögð fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar tillaga vinnuhóps bæjarfulltrúa um tímabundna breytingu á samþykkt um stjórn Grindavíkurbæjar. Í tillögunni er lagt til nýtt bráðabirgðaákvæði, sem m.a. felur í sér fækkun fastanefnda til loka yfirstandandi kjörtímabils. Markmið breytinga er að auka skilvirkni stjórnsýslu Grindavíkurbæjar ásamt því að ná fram hagræðingu í rekstri bæjarins.Til máls tóku: Helga Dís, Guðjón, Hallfríður, bæjarstjóri, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hjálmar, Birgitta Hrund, Birgitta Rán og Gunnar Már.
Fundargerð 3. fundar vinnuhóps um breytingar á samþykktinni, dags. 3. júlí 2024 er lögð fram.
Lögð fram til kynningar auglýsing innviðaráðherra nr. 844/2024, um ákvörðun ráðherra til að tryggja hæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins. Auglýsingin felur í sér framlengingu á auglýsingu um sama efni, nr. 333/2024 og gildir frá 15. júlí 2024 til 15. nóvember 2024.
Einnig lögð fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar tillaga vinnuhóps bæjarfulltrúa um tímabundna breytingu á samþykkt um stjórn Grindavíkurbæjar. Í tillögunni er lagt til nýtt bráðabirgðaákvæði, sem m.a. felur í sér fækkun fastanefnda til loka yfirstandandi kjörtímabils. Markmið breytinga er að auka skilvirkni stjórnsýslu Grindavíkurbæjar ásamt því að ná fram hagræðingu í rekstri bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa breytingum á samþykktinni til síðari umræðu í bæjarstjórn.6. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent minnisblað til sveitarfélaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir ásamt viðauka um framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða ágúst til september 2024.
Til máls tóku: Helga Dís, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Guðjón.
Lagt fram minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til sveitarfélaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir ásamt viðauka um framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða ágúst til september 2024.7. Erindi frá embætti ríkislögreglustjóra
Borist hefur erindi frá verkefnastjóra Almannavarna ríkislögreglustjóra þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við að standsetja sérhæfða bifreið sem getur nýst vel sem færanleg vettvangsstjórnstöð.
Til máls tóku: Helga Dís, bæjarstjóri, Hjálmar, Birgitta Hrund og Hallfríður.
Lagt fram erindi frá verkefnastjóra Almannavarna ríkislögreglustjóra þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við að standsetja sérhæfða bifreið sem getur nýst vel sem færanleg vettvangsstjórnstöð.
Bæjarstjórn tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að afla frekari gagna um málið.8. Fundargerðir 2024 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 948. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 31. maí 2024, er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Helga Dís, Hallfríður og bæjarstjóri.
Fundargerð 948. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 31. maí 2024, er lögð fram til kynningar.9. Fundargerðir 2024 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 949. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 13. júní 2024, er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Helga Dís.
Fundargerð 949. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 13. júní 2024, er lögð fram til kynningar.10. Fundargerðir 2024 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 950. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 21. júní 2024, er lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Helga Dís.
Fundargerð 950. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 21. júní 2024, er lögð fram til kynningar.11. Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2024
Fundargerð 559. fundar stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf., dags. 11. júní sl. er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Helga Dís, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Rán.
Fundargerð 559. fundar stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf., dags. 11. júní sl. er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir 2024 - Samtök orkusveitarfélaga
Fundargerð 73. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 21. júní 2024 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Helga Dís, Hallfríður og bæjarstjóri.
Fundargerð 73. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 21. júní 2024 er lögð fram til kynningar.