Bæjarstjórn Grindavíkur - 563. fundur
- 10.04.2024
- Fundargerð
- Kl. 10:00 - 11:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 563
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Hátíðarfundur í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.
1. Ávarp forseta Íslands
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, flytur ávarp í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.
Til máls tók: Ásrún.
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, flytur ávarp í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.2. Ávarp forseta bæjarstjórnar
Forseti bæjarstjórnar, Ásrún Kristinsdóttir, flytur ávarp í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.
Til máls tók: Ásrún.
Forseti bæjarstjórnar, Ásrún Kristinsdóttir, flytur ávarp í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.3. Heiðursviðurkenningar í tilefni 50 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar
Lögð fyrir bæjarstjórn tillaga að einstaklingum sem heiðruð verða vegna starfa sinna í þágu samfélagsins í Grindavík.
Til máls tók: Ásrún.
Forseti bæjarstjórnar leggur fram tillögu um að afhenda átta Grindvíkingum heiðursviðurkenningu í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar. Öll hafa þau skilað umfangsmiklu og mikilvægu framlagi til samfélagsins í Grindavík og verið öðrum til fyrirmyndar.
Aðalgeir Georg Daði Johansen fyrir framúrskarandi störf í þágu menningarmála í Grindavík
Birna Bjarnadóttir fyrir framúrskarandi störf í þágu mannúðar- og menningarmála í Grindavík
Björn Birgisson fyrir framúrskarandi störf í þágu menningarmála í Grindavík
Guðfinna Bogadóttir fyrir framúrskarandi störf í þágu mannúðar- og menningarmála í Grindavík
Gunnar Tómasson fyrir framúrskarandi störf í þágu atvinnu-, félags- og menningarmála í Grindavík
Jónas Þórhallsson fyrir framúrskarandi störf í þágu íþróttamála í Grindavík
Kristín Elísabet Pálsdóttir fyrir framúrskarandi störf í þágu barna- og menningarmála í Grindavík
Stefanía Ólafsdóttir fyrir framúrskarandi störf í þágu fræðslu- og uppeldismála í Grindavík
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.4. Þakkir til sjálfboðaliða
Lögð fyrir bæjarstjórn tillaga að þakklætisvotti til þeirra Grindvíkinga sem í gegnum tíðina hafa ráðstafað tíma sínum og orku í þágu samfélagsins í Grindavík.
Til máls tók: Ásrún.
Forseti leggur fram tillögu um að bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykki að kaupa listaverk til áminningar um mikilvægt framlag sjálfboðaliða til uppbyggingar samfélagsins í Grindavík í fortíð, nútíð og framtíð. Listaverkið er þakklætisvottur til þeirra Grindvíkinga sem í gegnum tíðina hafa ráðstafað tíma sínum og orku í þágu heildarinnar en um leið hvatning til að halda áfram á sömu braut. Skal verkið sett upp utandyra og á áberandi stað í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn mun vinna málið áfram í samvinnu við félagasamtök í Grindavík.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.