Bæjarstjórn Grindavíkur - 534. fundur
- 13.12.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 534
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 10. mál: Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn - 2211073.
Samþykkt samhljóða.
1. Kjarasamningsumboð - Samband íslenskra sveitarfélaga
Kjarasamningsumboð og launaupplýsingar til Sambandsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skjölin.Til máls tók: Ásrún.
Sveitarfélögin veita Sambandi íslenskra sveitarfélaga umboð til kjarasamninga vegna hvers og eins stéttarfélags sem starfsmenn þess eiga aðild að. Endurnýja þarf kjarasamningsumboð til samræmis við núverandi stöðu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningagerðar fyrir sína hönd við tilgreind stéttarfélög. Jafnframt er bæjarstjóra falið að rita undir samkomulag um kjarasamningsumboð.2. Breyting á starfsmannastefnu - Heilsuefling
Formlega samþykkt þarf á breytingu á starfsmannastefnunni er varðar Heilsueflingu - heilsustyrk.
Samþykkt var á vinnufundi bæjarstjórnar að hækka styrkinn úr 30.000 kr. í 40.000 kr. og fella jafnframt út 9. tölulið vegna kaupa á íþróttabúnaði til eigin nota.Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram eftirfarandi tillaga að breytingu á heilsueflingarkafla starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar:
Að árlegur hámarksstyrkur verði 40.000 kr. í stað 30.000 kr. og að 9. töluliður verði felldur á brott.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.3. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjöld
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir byggingar-, skipulags-, og þjónustugjöld Grindavíkurbæjar lögð fram.
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir byggingar-, skipulags-, og þjónustugjöld Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.4. Gjaldskrá og samþykkt fráveitu Grindavíkurbæjar
Drög að breytingum á gjaldskrá og samþykkt fráveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir fráveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.5. Breyting á gjaldskrá um sorpgjöld og sorphirðu í Grindavík - 2022
Drög að breytingum á gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Grindavíkurbæ lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.6. Samþykkt um gatnagerðargjöld - tillaga að breytingu des 2022
Drög að breytingum á samþykkt um gatnagerðargjöld Grindavíkurbæjar lögð fram.
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á samþykkt um gatnagerðargjöld í Grindavík lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.7. Reglur um lóðarúthlutanir - tillaga að breytingu des 2022
Drög að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir Grindavíkurbæjar lögð fram.
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir í Grindavík lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.8. Gjaldskrá vatnsveitu Grindavíkurbæjar
Bæjarráð vísaði breyttri gjaldskrá til samþykktar í bæjarstjórn.
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir vatnsveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.9. Kalka sorpeyðing - Söfnun úrgangs og söfnunarílát
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja erindið.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hjálmar.
Lagt fram erindi frá Kölku, dags. 22.11.2022 þar sem óskað er eftir samþykki bæjarins að Kalka sjái um söfnun úrgagns frá heimilum vegna fjögurra úrgangsflokka og sjái líka um fjármögnun söfnunarílátanna.
Vegna nýrra upplýsinga varðandi mögulegan fjölda af tunnum er lagt til að fresta málinu og taka það upp til umræðu á næsta fundi bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fresta málinu.10. Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn
Reykjanesbær óskar umsagnar við aðalskipulagsbreytingu á svæði i5 á Reykjanesi.
Til máls tók: Ásrún.
Reykjanesbær óskar umsagnar við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar á Reykjanesi. Breytingin varða stækkun á iðnaðarsvæði i5 og aukning á byggingarmagni. Gert er ráð fyrir uppbyggingu fiskeldis á svæðinu.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi sínum þann 5.12.2022 og gerði ekki athugasemd við skipulagstillöguna og vísaði afgreiðslu málsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða bókun skipulagsnefndar.11. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 29. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja þann 10.03.2022 lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hjálmar, Hallfríður og bæjarstjóri.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 29, dags. 10.03.2022 er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 30. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja þann 07.04.2022 lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 30, dags. 07.04.2022 er lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 31. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja þann 06.10.2022 lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hallfríður, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 31, dags. 06.10.2022 er lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 32. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja 10.11.2022. lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 32, dags. 10.11.2022 er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1630
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Skipulagsnefnd - 110
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgittta Rán, Unnar, Birgitta Hrund og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Frístunda- og menningarnefnd - 121
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Birgitta Hrund.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.