Bæjarstjórn Grindavíkur - 512. fundur
- 24.11.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 512
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði forseti heimildar að taka á dagskrá með afbrigðum málefni póstþjónustunnar í Grindavík, sem dagskrárlið nr. 15.
Samþykkt samhljóða.
1. Víkurbraut 60 - umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi vegna stækkunar verslunar við Víkurbraut 60.
Byggingaráformin hafa verið grenndarkynnt. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.Til máls tók: Sigurður Óli.
Sótt er um byggingarleyfi vegna stækkunar verslunar við Víkurbraut 60.
Byggingaráformin hafa verið grenndarkynnt. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Bæjarstjórn samþykkir byggingaleyfið samhljóða með 6 atkvæðum.2. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Birgitta mætir á fundinn kl. 16:10
Þann 12. nóvember 2020 barst tölvupóstur frá Skipulagsstofnun þar sem stofnunin kemur með þrjár ábendingar við uppfærð gögn. Stofnunin óskar eftir lagfæringu áður en stofnunin staðfestir skipulagið.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að láta uppfæra gögnin miðað við athugasemdir Skipulagsstofnunar. Breytingarnar eru minniháttar og kalla ekki á endurauglýsingu. Ráðgjafar hafa átt samtal við Skipulagsstofnun um ábendingarnar og lagfæringar og hefur stofnunin óskað eftir að henni verði send 4 útprentuð eintök til staðfestingar. Áður en það er gert vísar skipulagsnefnd málinu til bæjarstjórnar til að hún sé upplýst um málið og þær lagfæringar sem gerðar hafa verið á gögnunum.Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur og Hallfríður.
Þann 12. nóvember 2020 barst tölvupóstur frá Skipulagsstofnun þar sem stofnunin kemur með þrjár ábendingar við uppfærð gögn. Stofnunin óskar eftir lagfæringu áður en hún staðfestir skipulagið.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að láta uppfæra gögnin miðað við athugasemdir Skipulagsstofnunar. Breytingarnar eru minniháttar og kalla ekki á endurauglýsingu. Greinargerð aðalskipulags 2018-2032, dags. 24. nóvember 2020, sem tekur til athugasemda skipulagsstofnunar, er lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða greinargerð.3. Sjóvinnslusvæði við Reykjanesvirkjun- beiðni um umsögn
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um matsskyldu vegna sjóvinnslusvæðis við Reykjanesvirkjun.
Skipulagsnefnd telur að fyrirhugaðar framkvæmdir þurfi ekki að fara í gegnum mat á umhverfisáhrifum. Vel er gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, mótvægisaðgerðum og vöktun.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.Til máls tók: Sigurður Óli,
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um matsskyldu vegna sjóvinnslusvæðis við Reykjanesvirkjun. Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 79.fundi sínum þann 16.nóvember sl. Þar sem kemur fram í bókun að nefndin telji að fyrirhugaðar framkvæmdir þurfi ekki að fara í gegnum mat á umhverfisáhrifum, vel sé gert grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, mótvægisaðgerðum og vöktun.
Bæjarstjórn samþykkir bókun skipulagsnefndar.4. Húsatóftir eldisstöð MHL05 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir hús fyrir fiskeldi við aðstöðu Matorku við Nesveg (Húsatóftir eldisstöð). Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Samkvæmt 1. mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 segir að þegar sótt er um byggingar- eða framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir getur sveitarstjórn eða sá aðili sem heimild hefur til fullnaðarafgreiðslu mála, sbr. 6. gr., ákveðið að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu.
Sú framkvæmd sem hér er óskað eftir byggingarleyfi fyrir er innan iðnaðarsvæðis I6 samkvæmt gildandi aðalskipulagi Grindavíkurbæjar og er skilgreint fyrir fiskeldi. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að fara með byggingaráformin i grenndarkynningu þar sem þau varða ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Er þetta i samræmi við 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.Til máls tóku: Sigurður Óli og Guðmundur.
Sótt er um byggingarleyfi fyrir fiskeldishús við aðstöðu Matorku við Nesveg (Húsatóftir eldisstöð). Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Samkvæmt 1. mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 segir að þegar sótt er um byggingar- eða framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir getur sveitarstjórn eða sá aðili sem heimild hefur til fullnaðarafgreiðslu mála, sbr. 6. gr., ákveðið að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu.
Sú framkvæmd sem hér er óskað eftir byggingarleyfi fyrir er innan iðnaðarsvæðis I6 samkvæmt gildandi aðalskipulagi Grindavíkurbæjar og er skilgreint fyrir fiskeldi. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að fara með byggingaráformin i grenndarkynningu þar sem þau varða ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Er þetta i samræmi við 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða byggingaleyfið.5. Kynning- breyting aðalskipulags sveitarfélagsins Voga 2008-2028
Sveitarfélagið Vogar kynnir tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins ásamt samhliða breytingu á deiliskipulagi Grænuborgar í Vogum. Breytingarnar varða þéttleika og fjölda íbúða á skipulagssvæðinu og kafla 2.1.1 um íbúðasvæði í greinagerð aðalskipulags. Ekki fæst séð að tillaga snerti hagsmuni Grindavíkurbæjar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna. Sviðsstjóra falið að svara erindinu.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.Til máls tók: Sigurður Óli.
Sveitarfélagið Vogar kynnir tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins ásamt samhliða breytingu á deiliskipulagi Grænuborgar í Vogum. Breytingarnar varða þéttleika og fjölda íbúða á skipulagssvæðinu og kafla 2.1.1 um íbúðasvæði í greinagerð aðalskipulags. Ekki fæst séð að tillaga snerti hagsmuni Grindavíkurbæjar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og vísar erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við tillöguna.6. Frágangur á lóð í kringum íþróttahús-hreystigarður
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram. Óskað er eftir viðauka á eignfærða fjárfestingu ársins 2020 vegna hreystigarðs á lóð íþróttamiðstöðvar að fjárhæð 21.989.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á verkefninu 32-115110 Gatnagerð í Hlíðarhverfi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.Til máls tók: Sigurður Óli.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram. Óskað er eftir viðauka á eignfærða fjárfestingu ársins 2020 vegna hreystigarðs á lóð íþróttamiðstöðvar að fjárhæð 21.989.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á verkefninu 32-115110 Gatnagerð í Hlíðarhverfi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.7. Golfklúbbur Grindavíkur - tengigjald ljósleiðara í golfskála GG
Beiðni um styrk á móti tengigjöldum vegna ljósleiðara.
Bæjarráð samþykkir styrkveitinguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka á árið 2020 að fjárhæð 800.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur og bæjarstjóri.
Beiðni um styrk á móti tengigjöldum vegna ljósleiðara.
Bæjarráð samþykkir styrkveitinguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka á árið 2020 að fjárhæð 800.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann.8. Ósk um viðauka á fjárhagsáætlun 2020
Lögð fram beiðni um viðauka á rekstur Grindavíkurhafnar árið 2020 að fjárhæð 1.495.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.Til máls tók: Sigurður Óli.
Lögð fram beiðni um viðauka á rekstur Grindavíkurhafnar árið 2020 að fjárhæð 1.495.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.9. Liðveisla - Beiðni um viðauka
Lögð fram beiðni um viðauka fyrir árið 2020 á rekstrareininguna 02-521 Liðveisla fatlaðra að fjárhæð 5.217.000 kr. sem skiptist þannig: Á lykil nr. 1110 að fjárhæð kr. 3.950.000 og á lykil nr. 1190 að fjárhæð kr. 1.267.000. Lagt er til að viðaukinn verði með lækkun á liðnum 21611-1119 um kr. 2.000.000 og 3.217.000 kr. með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.Til máls tók: Sigurður Óli.
Lögð fram beiðni um viðauka fyrir árið 2020 á rekstrareininguna 02-521 Liðveisla fatlaðra að fjárhæð 5.217.000 kr. sem skiptist þannig: Á lykil nr. 1110 að fjárhæð kr. 3.950.000 og á lykil nr. 1190 að fjárhæð kr. 1.267.000. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á liðnum 21611-1119 um kr. 2.000.000 og 3.217.000 kr. með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.10. Reglur um úthlutun íbúða í Víðihlíð
Breyttar reglur um úthlutun íbúða við Austurveg nr. 5 í Grindavík. Íbúðaréttur felldur út, nýr leiguverðsgrunnur, heimild forstöðumanns til tilfærslu og forgangur hjóna í stærri í íbúð að jafnaði.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Breyttar reglur um úthlutun íbúða við Austurveg nr. 5 í Grindavík lagðar fram. Helstu breytingar eru að íbúðaréttur er felldur út, nýr leiguverðsgrunnur og heimild forstöðumanns til tilfærslu og forgangur hjóna í stærri í íbúð að jafnaði.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.11. Gjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2021
Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2021 samþykkt á fundi hafnarstjórnar 9. nóvember 2020. Gjaldskráin er lögð fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2021 samþykkt á fundi hafnarstjórnar 9. nóvember 2020. Gjaldskráin er lögð fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá.12. Ákvörðun um útsvarshlutfall á árinu 2021
Staðfesta þarf útsvarshlutfall ársins 2021.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Helga Dís, Hallfríður, Páll Valur, Hjálmar og Birgitta.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að útsvarshlutfall fyrir árið 2021 verði 14,40%.13. Breyting á sveitarstjórnarlögum til að bregðast við neyðarástandi
Vegna neyðarástands af völdum Covid-19 hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tekið ákvörðun um að framlengja heimild sveitarstjórna til að víkja tímabundið frá tilteknum skilyrðum sveitarstjórnarlaga til að tryggja starfhæfi sitt og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélags. Framlengd heimild gildir til 10. mars 2021.
Bæjarstjórn þarf að samþykkja að áframhaldandi heimild verði virkjuð.Til máls tók: Sigurður Óli.
Vegna neyðarástands af völdum Covid-19 hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tekið ákvörðun um að framlengja heimild sveitarstjórna til að víkja tímabundið frá tilteknum skilyrðum sveitarstjórnarlaga til að tryggja starfhæfi sitt og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélags. Framlengd heimild gildir til 10. mars 2021.
Bæjarstjórn að samþykkir samhljóða að áfram verði heimilt að nota fjarfundabúnað á fundum bæjarstjórnar og nefnda í samræmi við auglýsinguna.14. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Kjósa þarf nýjan fulltrúa í almannavarnanefnd Grindavíkur.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hjálmar, Helga Dís, Guðmundur og bæjarstjóri.
Kjósa þarf nýjan fulltrúa í almannavarnanefnd Grindavíkur.
Gerð er tillaga um að fulltrúi Rauða krossins í nefndinni verði Tryggvi Hjörtur Oddsson, neyðarvarnarfulltrúi RKÍ á landsvísu. Kæmi hann í stað Gunnars Baldurssonar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.15. Málefni póstþjónustunnar í Grindavík
Málið er á dagskrá að beiðni forseta bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Helga Dís, Páll Valur, Hallfríður, Birgitta og Hjálmar.
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar mótmælir harðlega tímabundinni lokun pósthússins hér í Grindavík vegna COVID. Á sama tíma og almannavarnir hvetja til netverslunar og ferðast ekki milli landshluta þurfa Grindvíkingar að mæta til Reykjanesbæjar til að senda og sækja pakka. Það er óviðunandi þjónusta fyrir 3.500 manna bæjarfélag. Ef samstarf Póstsins og Landsbankans býður ekki upp á að halda pósthúsinu opnu þarf Pósturinn að skoða aðra samstarfsmöguleika eða finna skapandi lausnir til að þjónusta Grindvíkinga t.d. með aukinni heimsendingarþjónustu bæði til að afhenda pakka sem og að sækja sendingar. Óskar bæjarstjórn eftir svörum frá Póstinum.16. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2020
Fundargerð 890. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 30. október 2020 er lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Páll Valur, Helga Dís og Hallfríður.
Fundargerð 890. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 30. október 2020 er lögð fram til kynningar.17. Bæjarráð Grindavíkur - 1562
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Bæjarráð Grindavíkur - 1563
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hjálmar, Hallfríður og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Skipulagsnefnd - 79
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur, Páll Valur, bæjarstjóri, Hjálmar og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Fræðslunefnd - 103
Til máls tóku: Sigurður Óli, Birgitta, Guðmundur, Páll Valur, Hallfríður, Helga Dís, Hjálmar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Frístunda- og menningarnefnd - 99
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Birgitta, Helga Dís, Hjálmar, Páll Valur og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.22. Hafnarstjórn Grindavíkur - 474
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Páll Valur, bæjarstjóri og Guðmundur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.23. Umhverfis- og ferðamálanefnd - Fundur 68
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, bæjarstjóri, Hjálmar, Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Páll Valur og Birgitta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.