Bæjarstjórn Grindavíkur - 467. fundur
- 08.11.2016
- Fundargerð
- Kl. 19:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 467
- Ritari: Jón þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímsson1. varaforseti
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttirforseti
- Marta Sigurðardóttir2. varaforseti
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Ásrún Helga KristinsdóttirBæjarfulltrúi
- Guðmundur Grétar Karlssonvaramaður
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Boðað er til aukafundar í bæjarstjórn skv. 3. mgr. 9. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.
Áður en gengið var til dagskrár bauð forseti Guðmund Grétar Karlsson velkominn á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.
1. Miðgarður uppbygging: Útboðsgögn
Sigurður Kristmundsson, hafnarstjóri, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta og Hjálmar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að heimila Siglingasviði Vegagerðarinnar að bjóða verkið út skv. útboðslýsingu.2. Bæjarstjóri: starfslokasamningur
Tillaga um lokun fundar
Forseti leggur til að fundi verði lokað við fyrirtekt á þessum lið, samkvæmt heimild í 16. gr. laga 138 frá 2011.
Lokun fundar er samþykkt með 4 atkvæðum, Guðmundur Grétar, Ásrún og Marta greiða atkvæði á móti.
Til máls tóku: Kristín María, Marta, Ásrún, Hjálmar, Guðmundur, Guðmundur Grétar og Jóna Rut
Bókun
Bæjarfulltrúar B- og S- lista harma mjög þau vinnubrögð meirihluta D - og G - lista sem átt hafa sér stað við vinnslu starfslokasamnings Róberts Ragnarssonar bæjarstjóra. Málið var unnið og samningar undirritaðir, bæði við lögfræðing og bæjarstjóra, án þess að nokkur umræða hafi átt sér stað í bæjarstjórn eða bæjarráði.
Róbert var ráðinn við upphaf síðasta kjörtímabils. Þá strax lagðist þáverandi bæjarstjórn í mikla vinnu við endurskipulagningu á stjórnskipulagi og rekstri bæjarins. Gríðarlegur árangur hefur náðst á grunni þeirrar vinnu. Í dag er Grindavíkurbær eitt best rekna sveitarfélag landsins og í öðru sæti á lista Vísbendingar um fyrirmyndar sveitarfélagið. Þessi árangur hefði ekki náðst nema með góðri samvinnu bæjarfulltrúa og starfsfólks Grindavíkur. Róbert gegndi mikilvægu hlutverki í þeirri vinnu og er því leitt að sjá hann hverfa frá störfum á þessum tímapunkti. Fulltrúar B- og S- lista þakka Róberti innilega fyrir samstarf síðustu ára og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.
Bæjarfulltrúar B- og S- lista
Starfslokasamningur við bæjarstjóra, Róbert Ragnarsson, dags 31. október 2016 er samþykktur með 4 atkvæðum, Guðmundur Grétar, Ásrún og Marta sitja hjá.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarráði að auglýsa starf bæjarstjóra laust frá og með 1. janúar 2017.