Bæjarstjórn Grindavíkur - 475. fundur
- 29.08.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 475
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonforseti
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Ásrún Helga Kristinsdóttir2. varaforseti
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gatnagerð: Fiskasund
Tekin fyrir útboðsgögn fyrir Fiskasund og lagnir í götu við Hólmasund við Eyjabakka. Áætlaður heildarkostnaður er 68 mkr. Í þessum áfanga er ekki gert ráð fyrir malbiki og gagnstéttum og er áætlaður kostnaður fyrir 1. áfanga árið 2017 er um 49 mkr. Á fjárhagsáætlun 2017 var sett 20 mkr. í gatnagerð fyrir svæðið, gera má ráð fyrir að 4 mkr. fari í hönnun og eru því 16 mrk. ónotaðar.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Guðmundur og Páll Jóhann.
Tekin fyrir útboðsgögn fyrir gatnagerð í Fiskasundi og lagnir í götu við Hólmasund við Eyjabakka.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að bjóða út verkið.2. Gatnagerð: Víkurhóp
Tekið fyrir útboðsgögn fyrir 1. áfanga gatnagerðar við Víkurhóp. Áætlaður heildarkostnaður fyrir verkið er 175 mkr. Ekki er gert ráð fyrir malbiki og gangstéttum í 1. áfanga og er kostnaður því áætlaður um 123 mkr. fyrir 1. áfanga. Á fjárhagsáætlun 2017 er gert ráð fyrir 20 mkr. gera má ráð fyrir að 4 mkr. fari í hönnun og eru því 16 mkr. eftir á til að nýta upp í.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Ásrún, Páll Jóhann og Marta.
Tekin fyrir útboðsgögn gatnagerðar í Víkurhópi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að bjóða út verkið.3. Hafnargata 22: Breyting á deiliskipulagi.
Tekin fyrir óveruleg breyting á deiliskipulagi eftir grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust á kynningartímanum.$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 2 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar.
Tekin fyrir óveruleg breyting á deiliskipulagi eftir grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust á kynningartímanum.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 2 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.4. Hafnargata 4: breyting á skipulagi
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðal- og deiliskipulagi eftir grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillögurnar miðast við að skilgreiningu Hafnargötu 4 verði breytt þannig að hægt sé að reka gistiheimili. Tillögurnar eru unnar af Eflu verkfræðistofu dagsettar 16.6.2017.$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á aðalskipulagi verði samþykkt skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði samþykkt skv. 2 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar.
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðal- og deiliskipulagi eftir grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillögurnar miðast við að skilgreiningu Hafnargötu 4 verði breytt þannig að hægt sé að reka gistiheimili. Tillögurnar eru unnar af Eflu verkfræðistofu dagsettar 16.6.2017.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á aðalskipulagi verði samþykkt skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði samþykkt skv. 2 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.5. Hafnargata 8: Breyting á skipulagi
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðal- og deiliskipulagi eftir grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillögurnar miðast við að skilgreiningu Hafnargötu 8 verði breytt þannig að hægt sé að reka gistiheimili. Tillögurnar eru unnar af Eflu verkfræðistofu dagsettar 18.5.2017.$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á aðalskipulagi verði samþykkt skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði samþykkt skv. 2 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar.
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðal- og deiliskipulagi eftir grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillögurnar miðast við að skilgreiningu Hafnargötu 8 verði breytt þannig að hægt sé að reka gistiheimili. Tillögurnar eru unnar af Eflu verkfræðistofu dagsettar 18.5.2017.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á aðalskipulagi verði samþykkt skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði samþykkt skv. 2 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.6. Víkurbraut 34: Breyting á aðalskipulagi.
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 ásamt greinargerð með endanlegri áætlun. Gerð er breyting á þéttbýlisuppdrætti dagsett 11.7.2017. Breytingin er felur í sér að landnotkun við Víkurbraut 34 breytist úr samfélagsþjónustu í verslun og þjónustu. Í mannvirkinu er rekið gistiheimili. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt skv. 2. Mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur.
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 ásamt greinargerð með endanlegri áætlun. Gerð er breyting á þéttbýlisuppdrætti dagsett 11.7.2017. Breytingin er felur í sér að landnotkun við Víkurbraut 34 breytist úr samfélagsþjónustu í verslun og þjónustu. Í mannvirkinu er rekið gistiheimili.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt skv. 2. mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.7. Gunnuhver: deiliskipulag
Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi fyrir Gunnuhver. Tillagan var auglýst með athugasemdafrest frá og með 5. Júlí 2017 og eigi síðar en 17. ágúst 2017. Óskað var eftir umsögnum frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Umhverfisstofnun, Minjastofnun og Vegagerðinni. Engar athugasemdir bárust frá almenningi eða hagsmunaaðilum. Beðið er umsagna umsagnaraðila fram að bæjarstjórnarfundi vegna sumarleyfa.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falin tillagan til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um að þær umsagnir sem berist fyrir bæjarstjórnarfund verði ekki neikvæðar eða gefi ástæðu til þess breyta þurfi tillögunni að mati bæjarstjórnar
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Kristín María og Guðmundur.
Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi fyrir Gunnuhver. Tillagan var auglýst með athugasemdafrest frá og með 5. Júlí 2017 og eigi síðar en 17. ágúst 2017. Óskað var eftir umsögnum frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Umhverfisstofnun, Minjastofnun og Vegagerðinni. Engar athugasemdir bárust frá almenningi eða hagsmunaaðilum. Beðið er umsagna umsagnaraðila fram að bæjarstjórnarfundi vegna sumarleyfa.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falin tillagan til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um að þær umsagnir sem berist fyrir bæjarstjórnarfund verði ekki neikvæðar eða gefi ástæðu til þess breyta þurfi tillögunni að mati bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.8. Umsókn um framkvæmdaleyfi: Stapafellsnáma 2162222.
Erindi frá Iceland Construction ehf. kt. 5406710959. Erindinu fylgir greinargerð unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett 2.8.2017 ásamt áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.$line$Sótt er um framkvæmdaleyfi til efnistöku, en Ístak hyggst halda áfram núverandi efnisvinnslu í$line$Stapafellsnámu. Staðsetningu námunnar, sem er á miðjum Reykjanesskaga á milli Reykjanesbæjar og Grindavíkur. Tveir rekstraraðilar eru í Stapafellsnámu, Íslenskir aðalverktakar og Ístak. Til umfjöllunar hér er sá hluti námunnar sem varðar Ístak. Gert er ráð fyrir að tekið verði um 1,7 milljónir m3 af óhreyfðu bögglabergi. Efni hefur verið unnið úr Stapafelli í áratugi eða frá því um 1950, þegar uppbygging byrjaði á varnarliðssvæðinu.$line$Tilgangur efnistökunnar er að afla jarðefnis til vega- og mannvirkjagerðar. Efnið sem unnið er í námunni er bögglaberg, perlumöl og sandur. Samkvæmt svæðisskipulagi Suðurnesja er efnisþörf mikil til framtíðar þar sem áætluð er mikil uppbygging á atvinnuhúsnæði og stækkun íbúðabyggða á Suðurnesjum. $line$Svæðið þar sem námuvinnslan fer fram er skilgreint sem námusvæði í aðalskipulagi Grindavíkur ogReykjanesbæjar. Efnistakan er því í samræmi við gildandi aðalskipulagsáætlanir.Í niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar segir m.a. Sú viðbót sem hér er til umfjöllunar mun hafa óveruleg áhrif á náttúruminjar en talsvert neikvæð á jarðmyndanir.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði veitt skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Páll Jóhann.
Erindi frá Iceland Construction ehf. kt. 540671-0959. Erindinu fylgir greinargerð unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett 2.8.2017 ásamt áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.
Sótt er um framkvæmdaleyfi til efnistöku, en Ístak hyggst halda áfram núverandi efnisvinnslu í
Stapafellsnámu. Staðsetningu námunnar er á miðjum Reykjanesskaga á milli Reykjanesbæjar og Grindavíkur. Tveir rekstraraðilar eru í Stapafellsnámu, Íslenskir aðalverktakar og Ístak. Til umfjöllunar hér er sá hluti námunnar sem varðar Ístak. Gert er ráð fyrir að tekið verði um 1,7 milljónir m3 af óhreyfðu bögglabergi. Efni hefur verið unnið úr Stapafelli í áratugi eða frá því um 1950, þegar uppbygging byrjaði á varnarliðssvæðinu.
Tilgangur efnistökunnar er að afla jarðefnis til vega- og mannvirkjagerðar. Efnið sem unnið er í námunni er bögglaberg, perlumöl og sandur. Samkvæmt svæðisskipulagi Suðurnesja er efnisþörf mikil til framtíðar þar sem áætluð er mikil uppbygging á atvinnuhúsnæði og stækkun íbúðabyggða á Suðurnesjum.
Svæðið þar sem námuvinnslan fer fram er skilgreint sem námusvæði í aðalskipulagi Grindavíkur og Reykjanesbæjar. Efnistakan er því í samræmi við gildandi aðalskipulagsáætlanir. Í niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar segir m.a. Sú viðbót sem hér er til umfjöllunar mun hafa óveruleg áhrif á náttúruminjar en talsvert neikvæð á jarðmyndanir.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði veitt skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.9. Hólmasund 2: Umsókn um lóð
Erindi frá Pure energy ehf. kt. 460116-0150. Í erindinu er óskað eftir lóð við Hólmasund 2. Lóðinni var úthlutað 2014 en ekki hefur verið sótt um byggingarleyfi. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Guðmundur, Páll Jóhann og Marta.
Erindi frá Pure energy ehf. kt. 460116-0150. Í erindinu er óskað eftir lóð við Hólmasund 2. Lóðinni var úthlutað 2014 en ekki hefur verið sótt um byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.10. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Á 1448. fundi bæjarráðs var svofelld bókun samþykkt: Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Marta, Páll Jóhann og Kristín María.
Á 1448. fundi bæjarráðs var samþykkt að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Tillaga frá meirihluta
Lagt er til að vísa málinu til skipulagsnefndar til umfjöllunar og málið fái endanlega afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar í september.
Fundarhlé tekið kl. 18:05 - 18:25
Bókun
Fulltrúar minnihluta B og S lista lýsa yfir undrun sinni með að málinu sé enn og aftur vísað tilbaka til skipulagsnefndar. Skipulagsnefnd hefur tekið málið fyrir a.m.k. 7 sinnum síðan í mars 2015 og hefur bæjarráð og bæjarstjórn fjallað um málið í það minnsta 3 sinnum á sama tíma, síðast þann 21. júní sl. þar sem bæjarráð samþykkir að vísa málinu til bæjarstjórnar. Að vísa málinu aftur til nefndarinnar án rökstuðnings um hvað betur mætti fara er ekkert annað en leikur til þess að draga afgreiðslu málsins enn lengur.
Fulltrúar B- og S-lista
Tillaga meirihluta er samþykkt með 4 atkvæðum, gegn 3 atkvæðum minnihluta.11. Skipulagsnefnd: Samþykkt
Á 1448. fundi bæjarráðs var svofelld bókun samþykkt: Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Marta og Kristín María.
Á 1448. fundi bæjarráðs var samþykkt að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Tillaga frá meirihluta
Lagt er til að vísa málinu til skipulagsnefndar til umfjöllunar og málið fái endanlega afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar í september.
Bókun
Fulltrúar minnihluta B og S lista lýsa yfir undrun sinni með að málinu sé enn og aftur vísað tilbaka til skipulagsnefndar. Skipulagsnefnd hefur tekið málið fyrir a.m.k. 7 sinnum síðan í mars 2015 og hefur bæjarráð og bæjarstjórn fjallað um málið í það minnsta 3 sinnum á sama tíma, síðast þann 21. júní sl. þar sem bæjarráð samþykkir að vísa málinu til bæjarstjórnar. Að vísa málinu aftur til nefndarinnar án rökstuðnings um hvað betur mætti fara er ekkert annað en leikur til þess að draga afgreiðslu málsins enn lengur.
Fulltrúar B- og S-lista
Tillaga meirihluta er samþykkt með 4 atkvæðum, gegn 3 atkvæðum minnihluta.12. Framtíðarsýn um aukna húsnæðisþörf leik- og grunnskóla: Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins óska eftir umræðu
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Kristín María, Marta, Guðmundur, Páll Jóhann og Jóna Rut.
Tillaga
Lagt er til að bæjarstjórn feli bæjarstjóra ásamt þeim sviðsstjórum sem málinu tengjast að setja upp tímasetta aðgerðaáætlun, hvernig brugðist verði við aukinni húsnæðisþörf leik- og grunnskóla til næstu fimm ára. Sú áætlun verði lögð fram á næsta fundi bæjarstjórnar.
Fulltrúar B-lista
Fundarhlé tekið kl. 19:40 - 20:00
Breytingartillaga
Lagt er til að bæjarráði verði bætt við fyrri tillögu og þá hljóðar tillagan svona:
Lagt er til að bæjarstjórn feli bæjarráði, ásamt bæjarstjóra og þeim sviðsstjórum sem málinu tengjast, að setja upp tímasetta aðgerðaáætlun, hvernig brugðist verði við aukinni húsnæðisþörf leik- og grunnskóla til næstu fimm ára. Sú áætlun verði lögð fram á næsta fundi bæjarstjórnar.
Fulltrúar meirihluta
Breytingartillagan er samþykkt samhljóða
Fundarhlé er tekið kl. 20:15 - 20:30
Bókun
Fulltrúar B lista gera athugasemd við að tillaga þeirra sem liggur fyrir sé ekki borin upp í heild sinni eftir að breytingatillaga meirihlutans við tillögu Framsóknar var samþykkt.
Fulltrúar B-lista
Bókun
Meirihlutinn bendir á það að þetta fyrirkomulag afgreiðslu tillagna hefur verið viðhaft áður.
Meirihluti D- og G-lista13. Samgönguáætlun: Áherslur í áætlun 2018-2029
Að beiðni SSS voru settir fram áherslupunktar Grindavíkurbæjar
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Kristín María og Páll Jóhann.
14. Bæjarráð Grindavíkur - 1447
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Ásrún, Jóna Rut, bæjarstjóri og Guðmundur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1448
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Kristín María, Páll Jóhann, Guðmundur, Jóna Rut og Marta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1449
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Guðmundur og Jóna Rut.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Bæjarráð Grindavíkur - 1450
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Kristín María, Marta, Ásrún og Guðmundur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Bæjarráð Grindavíkur - 1451
Til máls tóku: Hjálmar, Marta, Ásrún, Kristín María, Jóna Rut og Páll Jóhann.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1452
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Páll Jóhann og Marta.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Bæjarráð Grindavíkur - 1453
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann, Ásrún, Marta, Jóna Rut og Kristín María.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Bæjarráð Grindavíkur - 1454
Til máls tóku: Hjálmar, Marta, Guðmundur, Ásrún og Jóna Rut.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.22. Skipulagsnefnd - 31
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Kristín María, Jóna Rut, Marta, Páll Jóhann og Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.23. Afgreiðslunefnd byggingamála - 19
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann, Jóna Rut, Marta og Kristín María.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.24. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 23
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Páll Jóhann, Guðmundur, Marta, Ásrún og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.25. Félagsmálanefnd - 81
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Marta, Kristín María, Guðmundur, Jóna Rut og Páll Jóhann.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.