Bæjarstjórn Grindavíkur - 472. fundur
- 28.03.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 472
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímsson1. varaforseti
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttirforseti
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttir2. varaforseti
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Ásrún Helga KristinsdóttirBæjarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Beiðni um umsögn: Nýtingarleyfi í Svartsengi/Eldvörpum.
Bókun skipulagsnefndar: Vísað er til erindis Orkustofnunar þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn HS-Orku um nýtingarleyfi á jarðhita á Svartsengis-Eldvarpa svæðinu. Orkustofnun gefur frest til 24. mars til að gefa umsögn. Málið er mikilvægt og varðar jarðhitahagsmuni Grindavíkur, auðlindastefnu og skipulag. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að óska eftir viðbótarfresti til að skila umsögn og jafnframt að leggja drög að umsögn um málið fyrir nefndina.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann og Guðmundur
Skipulagsnefnd vísar til erindis Orkustofnunar þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn HS-Orku um nýtingarleyfi á jarðhita á Svartsengis-Eldvarpa svæðinu. Orkustofnun gefur frest til 24. mars til að gefa umsögn. Málið er mikilvægt og varðar jarðhitahagsmuni Grindavíkur, auðlindastefnu og skipulag. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að óska eftir viðbótarfresti til að skila umsögn og jafnframt að leggja drög að umsögn um málið fyrir nefndina.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að óska eftir viðbótarfresti.2. Hafnagata 8-10: Fyrirspurn um breytta notkun.
Erindi frá Þorbirni hf. 420369-0429. Í erindinu er óskað eftir breyttri notkun á Hafnargötu 8-10 í gistiheimili fyrir 39 stúdíóíbúðir. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að gerð verði breyting á deiliskipulagi þar sem reitnum er breytt í verslun og þjónustu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Marta, Guðmundur, Páll Jóhann og Jóna Rut
Erindi frá Þorbirni hf. 420369-0429. Í erindinu er óskað eftir breyttri notkun á Hafnargötu 8-10 í gistiheimili fyrir 39 stúdíóíbúðir. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að gerð verði breyting á deiliskipulagi þar sem reitnum er breytt í verslun og þjónustu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.3. Stapafellsnáma: Matsáætlun
Bókun skipulagsnefndar: Tekin fyrir matsáætlun vegna Stapafelsnámu dagsett 13.3.2017. Skipulagsnefnd minnir á fyrri athugasemdir.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María og Páll Jóhann
Beiðni Skipulagsstofnunar um umsögn um frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum efnistöku Ístaks í Stapafelli lögð fram.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 23. fundi þann 21.11.2016 og telur að afmarka verði raskað svæði með hnitsettum uppdrætti. Einnig telur nefndin að gera verði grein fyrir Árnastígnum um svæðið og hvaða áhrif náman hefur á gönguleiðina. Einnig verði skilgreint hvernig og hvar efni sem gætu haft áhrif á vatnsgæði eru geymd.
Bæjarstjórn vísar í fyrri umsögn skipulagsnefndar.4. Umsókn um byggingarleyfi: Austurvegur 26b.
Umsókn smáhýsa á tjaldsvæði
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Erindi frá 240 ehf. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 10 smáhýsum við Austurveg 26b. Erindinu fylgja teikningar og greinargerð unnin af Svövu Jóns arkitekt dagsett 16.2.2017.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt og byggingarleyfi verði veitt þegar skilyrði kafla 2.4. byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar5. Umsóknir um lóðir: Norðurhóp 62, 64 og 66
Umsóknir komu frá $line$Rýma arkitektum 711003-2310$line$Byggingastjórinn 610207-1380 110229-3919$line$Hannes Sigurgeirsson 050561-4969$line$$line$Bókurn skipulagsnendar vegna umsóknanna er eftirfarandi: $line$Fyrir fundinum liggja fyrir umsóknir frá þremur aðilum um lóðirnar Norðurhóp 66, 64 og 62. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hver aðili fái úthlutað einni lóð og að skipulagsfulltrúa verði falið að boða umsækjendur á fund og dregið verði um hver fær hvaða lóð.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María og Páll Jóhann
Fyrir liggja umsóknir frá þremur aðilum um lóðirnar Norðurhóp 66, 64 og 62. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hver aðili fái úthlutað einni lóð og að skipulagsfulltrúa verði falið að boða umsækjendur á fund og dregið verði um hver fær hvaða lóð.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar6. Staðarvör 4: Ósk um lokaúttekt.
Staðfesta þarf afgreiðslu skipulagsnefndar frá 25. fundi nefnarinnar þann 16. janúar sl.$line$Erindi frá eigendum Staðarvarar 4. Erindinu fylgir greinargerð ásamt svörum Mannvirkjastofnunar vegna málsins. Í svörum Mannvirkjastofnunar kemur fram að stofnunin mun ekki aðhafast meira í málinu. Í greinargerð kemur fram að mannvirkið er skráð á byggingarstig 7, þrátt fyrir að lokaúttekt hafi ekki farið fram. Í erindinu er óskað eftir að sveitarfélagið uppfylli lagaskyldur sýnar með þvi að láta lokaúttekt fara fram. Skv. svörum frá byggingarfulltrúa var ekki skilað inn fullnægjandi teikningum vegna framkvæmdarinnar. Skipulagsnefnd bendir á að byggingarfulltrúi mun framkvæmda lokaúttekt þegar fullnægjandi teikningum hefur verið skilað inn til byggingarfulltrúa.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Erindi frá eigendum Staðarvarar 4. Erindinu fylgir greinargerð ásamt svörum Mannvirkjastofnunar vegna málsins. Í svörum Mannvirkjastofnunar kemur fram að stofnunin mun ekki aðhafast meira í málinu. Í greinargerð kemur fram að mannvirkið er skráð á byggingarstig 7, þrátt fyrir að lokaúttekt hafi ekki farið fram. Í erindinu er óskað eftir að sveitarfélagið uppfylli lagaskyldur sínar með þvi að láta lokaúttekt fara fram.
Ekki hefur verið skilað inn fullnægjandi teikningum vegna framkvæmdarinnar. Skipulagsnefnd bendir á að byggingarfulltrúi mun framkvæmda lokaúttekt þegar fullnægjandi teikningum hefur verið skilað inn til byggingarfulltrúa.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.7. Breyting á aðalskipulagi: Miðbær
Tekin fyrir tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 og tillaga að nýju deiliskipulag fyrir miðbæjarsvæðið. Aðalskipulagsbreytingin er unnin af EFLU verkfræðistofu dagsett 16.3.2017 og deiliskipulagið af Alta dagsett 15.3.2015$line$Skipulagsnefnd samþykkir að tillögurnar verði kynntar skv. 2. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.$line$Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki tillögurnar skv. 3. mgr. 30.gr. og 1.mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María og Guðmundur
Skipulagsnefnd tók fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 og tillögu að nýju deiliskipulag fyrir miðbæjarsvæðið. Aðalskipulagsbreytingin er unnin af EFLU verkfræðistofu dagsett 16.3.2017 og deiliskipulagið af Alta dagsett 15.3.2015
Skipulagsnefnd samþykkir að tillögurnar verði kynntar skv. 2. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki tillögurnar skv. 3. mgr. 30.gr. og 1.mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar8. Gunnuhver: deiliskipulag
Deiliskipulagslýsing á fyrirhuguðu deiliskipulagi við Gunnuhver.$line$GeoPark hefur fengið 18,5 milljónir til að fara í deiliskipulag og framkvæmdir á svæðinu á árinu 2017.
Máli bætt á dagskrá bæjarstjórnarfundar nr. 472 með afbrigðum.
Til máls tóku: Kristín María
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagslýsingin verði samþykkt og hún kynnt skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar9. Grunnskóli: Starfslok skólastjóra
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 1.000.000 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tók: Kristín María
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs óskar eftir viðauka að fjárhæð 1.000.000 kr. til að standa straum af ráðningarferli á nýjum skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 1.000.000 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann.10. Fjárhagsaðstoð 2017: Grunnur
Félagsmálanefnd leggur til hækkun á framfærslugrunni reglna Grindavíkurbæjar um fjárhagsaðstoð frá og með 1. mars 2017. Lagt er til að fjárhæðin hækki í 135.000 kr. $line$Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar og vísar tillögunni til samþykktar í bæjarstjórn.
Til máls tók: Kristín María
Félagsmálanefnd leggur til hækkun á framfærslugrunni reglna Grindavíkurbæjar um fjárhagsaðstoð frá og með 1. mars 2017. Lagt er til að fjárhæðin hækki í 135.000 kr.
Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar og vísar tillögunni til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða11. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar: breytingatillaga vegna heilsustyrkja
Vinnuverndarnefnd leggur til breytingu á 9. tölulið í heilsueflingarkafla Starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar. Lagt er til að 9. töluliður orðist svo:$line$"Kaupa á íþróttabúnaði til eigin nota".$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillöguna. Guðmundur situr hjá.$line$Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Til máls tóku: Kristín María, Marta, Guðmundur, Hjálmar, Ásrún, Jóna Rut og Páll Jóhann
Vinnuverndarnefnd leggur til breytingu á 9. tölulið í heilsueflingarkafla Starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar. Lagt er til að 9. töluliður orðist svo:
"Kaupa á íþróttabúnaði til eigin nota".
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykktir tillöguna með 5 atkvæðum, Guðmundur og Hjálmar sitja hjá.12. Fundargerðir: Þekkingarsetur Suðurnesja
21. fundur stjórnar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Ásrún og Páll Jóhann
Fundargerð 21. fundar, dags. 8. mars 2017 lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2017
Fundargerð 713. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Jóna Rut, Páll Jóhann, Hjálmar, Ásrún og Marta
Fundargerð 713. fundar, dags. 8. mars 2017 lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2017
Fundargerð 478. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Marta, Páll Jóhann, Guðmundur, Hjálmar og bæjarstjóri
Fundargerð 478. fundar, dags. 9. mars 2017 lögð fram til kynningar.15. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2017
Fundargerð 847. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Ásrún, bæjarstjóri, Hjálmar og Jóna Rut
Fundargerð 847. fundar, dags. 24. febrúar 2017 lögð fram til kynningar.16. Fundargerðir: Heklan 2017
Fundargerðir 53., 54. og 55. fundar til kynningar.
Til máls tóku: Kristín María, bæjarstjóri, Guðmundur og Jóna Rut
Fundargerðir 53. fundar, dags. 25. nóvember 2016, 54. fundar, dags 20. janúar 2017 og 55. fundar, dags. 24. febrúar 2017 lagðar fram til kynningar.17. Fundargerðir: Kvikan 2017
Fundargerð stjórnarfundar Kvikunnar 20. mars 2017 lögð fram.
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Páll Jóhann, Marta, Guðmundur, Ásrún og bæjarstjóri
Fundargerð stjórnar Kvikunnar, dags. 20. mars 2017 lögð fram til kynningar.18. Umferðaröryggi á Grindavíkurvegi: Samráðsfundir
Fundargerðir samráðsfunda 8. febrúar og 22. mars 2017 lagðar fram.
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Guðmundur, Hjálmar, Páll Jóhann, bæjarstjóri, Ásrún og Marta
Fundargerðir samráðshóps um bætt umferðaröryggi á Grindavíkurvegi, dags. 8. febrúar og 22. mars 2017 lagðar fram til kynningar.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1437
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, bæjarstjóri og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Bæjarráð Grindavíkur - 1438
Til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Hjálmar, Ásrún, Marta, Jóna Rut, Guðmundur og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Bæjarráð Grindavíkur - 1439
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Jóna Rut, Hjálmar, Ásrún og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.22. Fræðslunefnd - 62
Til máls tóku: Kristín María og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.23. Skipulagsnefnd - 27
Til máls tók: Kristín María, Guðmundur og Jóna Rut.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.24. Frístunda- og menningarnefnd - 61
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Ásrún, Páll Jóhann, Guðmundur og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.25. Félagsmálanefnd - 76
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.26. Félagsmálanefnd - 77
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.27. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 20
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Hjálmar, Guðmundur, Jóna Rut, Ásrún, Páll Jóhann, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.28. Hafnarstjórn Grindavíkur - 449
Til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Hjálmar, Guðmundur og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.