Bæjarstjórn Grindavíkur - 471. fundur
- 28.02.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 471
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímsson1. varaforseti
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttirforseti
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttir2. varaforseti
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Ásrún Helga KristinsdóttirBæjarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Félagsleg heimaþjónusta: Gjaldskrá 2017
Lagt er til við bæjarráð að það samþykki ákveðið gjald vegna ársins 2017 og feli svo félagsmálanefnd að finna verðlagsgrundvöll til framtíðar.$line$Lagt er til að gjaldið verði ákvarðað kr. 1.250,- sem er 4,5% hækkun.$line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.
Til máls tóku: Kristín María og Ásrún
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja ákveðið gjald fyrir heimaþjónustu vegna ársins 2017 og feli svo félagsmálanefnd að finna verðlagsgrundvöll til framtíðar. Lagt er til að gjaldið verði ákvarðað 1.250 kr. fyrir hvern unninn tíma, en það er 4,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða2. Fjarskiptamastur við Hópnesvita Umsókn um leyfi til að reisa 30 m stálmastur
Neyðarlínan er að óska eftir að setja upp mastur til að tryggja betur öryggi ferðamanna en ekki síður betri tengingu fyrir alla. $line$$line$Á Hópsnesi er viti sem skv. vitaskrá er 16 m hár. Þetta mastur er því helmingi hærra en vitinn. Hópsnesið er skilgreint sem óbyggt svæði með hverfisvernd til að gæta þess að svæðið sé aðeins nýtt til útvistar vegna sérstöðu þeirrar náttúru sem þar er. Skilmálar hverfisvernda á svæðinu eru: Rannsóknir á búsetuminjum, framkvæmdir við endurgerð bryggju í nothæft ástand og við stíga og merkingar vegna umhverfisfræðslu eru leyfilegar á svæðinu. Starfsemi hafnarinnar og stækkun hafnarsvæðis ef þörf krefur, svo og staðsetning hreinsistöðvar og útdæling fráveitu verði ekki heft með hverfisverndinni.$line$$line$Í aðalskipulagi Grindavíkur er ekki rætt um fjarskipti. Samkvæmt nýju skipulagsreglugerðinni er tekið fram að stefna skal sett um stakar framkvæmdir sem ekki þarf að afmarka sérstaka landnotkun í kringu um t.d. fjarskiptamöstur, hægt er að taka á þessu í endurskoðuninni. Í gildandi aðalskipulagi er ekki sérstaklega verið að gera greina fyrir öðrum möstrum eins og t.d. á Þorbirni. Samkvæmt byggingarreglugerð er gerð grein fyrir fjarskiptamöstrum í gr. 4.3.7.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um að settir verði skilmálar um jarðrask og frágang til að tryggja að umgengni á framkvæmdartíma verði til fyrirmyndar. Einnig að fyrir liggi jákvæð umsögn vegagerðarinnar og samgöngustofu ásamt leyfi landeigenda.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Marta, Páll Jóhann og Hjálmar
Neyðarlínan óskar eftir heimild til að reisa 30 m. stálmastur við hlið Hópsnesvita til að bæta neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi. Auk þess skapast möguleiki fyrir fjarskiptafyrirtæki að bæta farsíma- og netþjónustu.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um að settir verði skilmálar um jarðrask og frágang til að tryggja að umgengni á framkvæmdartíma verði til fyrirmyndar. Einnig að fyrir liggi jákvæð umsögn Vegagerðarinnar og Samgöngustofu ásamt leyfi landeigenda.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar.3. Deiliskipulag miðbæjarkjarna Grindavíkur.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir miðbæ Grindavíkur tekin fyrir að nýju. Skipulagið var auglýst skv. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á árunum 2012 og 2013. Ásamt því voru athugasemdir teknar fyrir og þeim svarað, gerðar voru breytingar á skipulaginu til þess að koma á móts við athugasemdir, m.a. er reit við Víkurbraut 31 látinn halda sér sem verslun og þjónusta. Einnig er aðkoma inn á sömu lóð látin halda sér að mestu. Skipulagssvæðið er um 4,6 ha að stærð, nær frá Gerðavöllum í norðri og niður fyrir lóð Víkurbrautar 56 (Landsbankans) í suðri. Í austri nær svæði yfir lóð kirkjunnar og fylgir svo Stamphólsvegi að Gerðavöllum. Í vestri er markar Víkurbrautin svæðið, lóð Víkurbrautar 31 (AðalBrautar) er hluti af deiliskipulagssvæðinu.$line$$line$Megininntak deiliskipulagstillögunnar er að skapa umgjörð um lifandi miðbæ í Grindavík með blandaðri starfsemi; verlsun, þjónusta og íbúðir. Lögð er áhersla að uppbygging falli vel að því byggðamynstri sem fyrir er. Gert ráð fyrir að ný byggð verði að mestu tveggja hæða hús en í stöku tilfellum verði heimilaðar þrjár hæðir sem og einnar hæðar byggingar. Einnig er lögð áhersla á að auka umferðaröryggi í miðbænum, draga úr umferðarhraða og gera gangandi og hjólandi vegfarendum hærra undir höfði. Gerðar eru breytingar á gatnamótum Víkurbrautar og Ránargötu þannig að umferðinni sé beint niður á höfn. Víkurbraut og Ránargata fá hlutverk aðalgötu og verður hámarkshraði á Ránargötu frá Víkurbraut að Túngötu 30 km/klst. Gert er ráð fyrir yfirbragði þess hluta Ránargötu fái annað yfirbragð með breyttu yfirborði, lýsingu bílastæðum í götu o.fl.$line$$line$Gert er ráð fyrir að heildarbyggingarmagn innan reits geti mest orðið 12.396 m2, þar af eru nýbyggingar 6.645 m2. Alls er gert ráð fyrir að íbúðir geti orðið 25 talsins þar af 2 einbýlishús. Innan deiliskipulagsmarka er gert ráð fyrir allt að 332 bílastæðum sem er í samræmi við þær bílastæðakröfur sem settar eru fram í drögum að skipulagsreglugerð dags. 27. Október 2011.$line$$line$Deiliskipulagstillagan er sett fram á tveimur uppdráttum í mkv. 1:1000; deiliskipulags uppdrætti og skýringaruppdrætti ásamt skýringarmyndum. Deiliskipulaginu fylgir einnig greinargerð með skipulagsskilmálum og umhverfisskýrslu.$line$Deiliskipulagsferlið hófst með því að lýsing deiliskipulagsverkefnisins var auglýst 14. nóvember 2011.$line$Gildandi deiliskipulag$line$$line$Innan skipulagsmarka er í gildi deiliskipulagið miðbær/Festi. Gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir að Festi verði rifið og þess í stað byggt fimm hæða glerbygging 15.300m2 að stærð með fjölbreyttri starfsemi s.s. verslun, veitingarstarfsemi, opinberri stjórnsýslu, hótelrekstur, afþreying og heilsurækt, og félagslega þjónustu. Það deiliskipulagssvæði veður fellt inní nýtt miðbæjarskipulag og fellur deiliskipulag Festis úr gildi þegar nýtt skipulag tekur gildi.$line$Í gildi eru einnig tvær deiliskipulagsáætlanir sem liggja að skipulagsmörkum. Deiliskipulag Íþróttasvæðisins og deiliskipulag milli Víkurbrautar og Stamphólsvegar. Leitast verður eftir að ná sem bestu samspili deiliskipulagstillögu miðbæjar við aðliggjandi áætlanir. $line$skipulagsnefnd vísar málinu til bæjarstjórnar eftir umræður með bæjarstjórn.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Guðmundur, Marta, Hjálmar og Jóna Rut
Tillaga að deiliskipulagi fyrir miðbæ Grindavíkur tekin fyrir að nýju. Skipulagið var auglýst skv. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á árunum 2012 og 2013. Ásamt því voru athugasemdir teknar fyrir og þeim svarað. Gerðar voru breytingar á skipulaginu til þess að koma á móts við athugasemdir, m.a. er reitur við Víkurbraut 31 látinn halda sér sem verslun og þjónusta. Einnig er aðkoma inn á sömu lóð látin halda sér að mestu. Skipulagssvæðið er um 4,6 ha að stærð, nær frá Gerðavöllum í norðri og niður fyrir lóð Víkurbrautar 56 (Landsbankans) í suðri. Í austri nær svæði yfir lóð kirkjunnar og fylgir svo Stamphólsvegi að Gerðavöllum. Í vestri markar Víkurbrautin svæðið, lóð Víkurbrautar 31 (AðalBrautar) er hluti af deiliskipulagssvæðinu.
Lagt er til við bæjarstjórn að auglýsa skipulagið skv. 41. gr. laga nr. 123 frá 2010.
Samþykkt samhljóða4. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Fundargerð í verkefnisnefnd íþróttamannvirkja, dags. 23.01.2017 lögð fram.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Hjálmar, Ásrún, Guðmundur, Páll Jóhann og Marta
Fundarhlé tekið kl. 18:35 - 19:05
Bókun
Fulltrúar minnihluta B- og S- lista taka undir og eru sammála því að nauðsynlegt er að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunnar í Grindavík. Hins vegar teljum við að ekki sé forsvaranlegt að taka ákvörðun um fjárfestingu uppá hálfan milljarð króna þegar ekki er á sama tíma gert ráð fyrir fjármagni í uppbyggingu leik- og grunnskóla í Grindavík.
Bæjarfulltrúar B-lista: Ásrún og Páll Jóhann og S-lista: Marta
Bókun
Það er ljóst að ekki er hægt að framkvæma allt í einu. Þetta verkefni hefur verið unnið í á annað ár og náðst hefur mikil eining og sátt innan nefndarinnar. Nú er komið að framkvæmdum. Í framhaldinu verður að sjálfsögðu farið í undirbúning að framtíðaruppbyggingu leik- og grunnskóla.
Bæjarfulltrúar D-lista: Hjálmar, Guðmundur og Jóna Rut, fulltrúi G-lista: Kristín María
Tillaga
Í vinnslu nefndarinnar hefur komið í ljós að heildarkostnaður verður hærri en upphaflega var áætlað. Bæjarstjórn samþykkir að nefndin haldi áfram vinnu við hönnunina með aðstöðu fyrir bardagaíþróttir í tengibyggingu.
Tillagan er samþykkt með 4 atkvæðum meirihluta, Páll Jóhann, Ásrún og Marta sitja hjá.5. Ósk um viðauka: Tónlistarskóli
Sviðsstjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmda við tónlistarskóla Grindavíkur. Í viðaukanum er óskað eftir 12.000.000 kr. til þess að minnka hljóðleiðni vegna galla í hönnun tónlistarskólans. Framkvæmdin felur í sér að útveggir verði klæddir af.$line$$line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 12.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta, Ásrún og Páll Jóhann
Sviðsstjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmda við Tónlistarskóla Grindavíkur. Í beiðninni er óskað eftir 12.000.000 kr. til þess að minnka hljóðleiðni vegna galla í hönnun tónlistarskólans. Framkvæmdin felur í sér að útveggir verði klæddir af.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 12.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Samþykkt samhljóða6. Staðarsund 2-16: Fyrirspurn um stækkun
Erindi frá eigendum Staðarsunds 2, 4, 6, 8, 10 og 12. Í erindinu er óskað eftir breytingu á áður samþykktum byggingaráformum við Staðarsund 2, 4, 6, 10, 12 og 16b. Breytingin felur í sér að viðbyggingin við Vesturhlið verði slitin frá húsi og þak viðbyggingar á austurhlið verði hækkað og tengt við mæni núverandi byggingar.$line$Skipulagsnefnd telur að breytingin rúmist innan eldri grenndarkynningar þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Erindi frá eigendum Staðarsunds 2, 4, 6, 8, 10 og 12. Í erindinu er óskað eftir breytingu á áður samþykktum byggingaráformum við Staðarsund 2, 4, 6, 10, 12 og 16b. Breytingin felur í sér að viðbyggingin við vesturhlið verði slitin frá húsi og þak viðbyggingar á austurhlið verði hækkað og tengt við mæni núverandi byggingar.
Skipulagsnefnd telur að breytingin rúmist innan eldri grenndarkynningar þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða7. Staðarsund 3: umsókn um lóð
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Helgi V. Sæmundsson fyrir hönd H.H.Smíði ehf. sækir um lóðina Staðarsund 3 til byggingar iðnaðarhúsnæðis.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að úthlutunin verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða8. Steinar: breyting á skipulagi
Erindi frá fasteignafélaginu Steinar ehf. kt. 690715-0820. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi þannig að Steinar landnúmer 129159. Á umræddri lóð hefur verið rekið gistiheimili í þó nokkurn tíma.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og grenndarkynnt fyrir eigendum Akur.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Marta, Guðmundur og Hjálmar
Erindi frá fasteignafélaginu Steinar ehf. kt. 690715-0820 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi þannig að hægt verði að reka gistiheimili á Steinum, landnúmer 129159. Á umræddri lóð hefur verið rekið gistiheimili í þó nokkurn tíma.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og grenndarkynnt fyrir eigendum Akurs.
Samþykkt samhljóða9. Umsókn um lóð: Víkurhóp 30.
Grindin ehf. kt. 610192-2389 sækir um lóðina við Víkurhóp 30 til byggingar fjölbýlishús.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að úthlutunin verði samþykkt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Grindin ehf. kt. 610192-2389 sækir um lóðina við Víkurhóp 30 til byggingar fjölbýlishúss.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að úthlutunin verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða10. Umsókn um lóð: Víkurhóp 32
Grindin ehf. kt.610192-2389 sækir um lóðina við Víkurhóp 32 til byggingar fjölbýlishús.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að úthlutunin verði samþykkt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Grindin ehf. kt.610192-2389 sækir um lóðina við Víkurhóp 32 til byggingar fjölbýlishúss.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að úthlutunin verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða11. Víkurbraut 8: breyting á skipulagi
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi þannig að hægt sé að reka gistiheimil við Víkurbraut 8 landnúmer 129076.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt fyrir Víkurbraut 8 og 10.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi þannig að hægt sé að reka gistiheimil við Víkurbraut 8, landnúmer 129076.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt fyrir Víkurbraut 5 og 10.
Samþykkt samhljóða12. Íslandsbanki: Fjárfestingastefna Grindavíkurbæjar
Samningur um fjárvörslu lagður fram til staðfestingar.
Til máls tók: Kristín María
Samningur um fjárvörslu hjá Íslandsbanka lagður fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.13. Grunnskóli Grindavíkur: Greiðsla samkvæmt kjarasamningi
Til máls tóku: Kristín María, Hjálmar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Kristín María og Ásrún viku af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Varaforseti, Hjálmar Hallgrímsson, tók við fundarstjórn
Tillaga
Að greidd verði eingreiðsla til kennara að fjárhæð 6.000 kr. miðað við 100% stöðuhlutfall og hlutfallslega ef um lægra stöðugildi er að ræða.
Samþykkt með 5 atkvæðum14. Fulltrúaráð EBÍ: Kjör fulltrúa
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarstjóri verði aðalfulltrúi og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs til vara.
Til máls tók: Kristín María
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarstjóri verði aðalfulltrúi og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs til vara.
Samþykkt samhljóða15. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2017
Fundargerð 477. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Páll Jóhann, Marta og Guðmundur
Fundargerð 477. fundar, dags. 9. febrúar 2017 lögð fram. Fundargerðin er í 6 töluliðum.16. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2017
Fundargerð 712. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur og Ásrún
Fundargerð 712. fundar, dags. 8. febrúar 2017 lögð fram. Fundargerðin er í 6 töluliðum.17. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2017
Fundargerð 846. fundar til kynningar
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerð 846. fundar, dags. 27. janúar 2017 lögð fram. Fundargerðin er í 39 töluliðum.18. Fundargerðir: Reykjanes Geopark 2017
Fundargerð 33. fundar stjórnar Reykjanes Geopark til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Hjálmar og bæjarstjóri
Fundargerð 33. fundar, dags. 20. janúar 2017, lögð fram. Fundargerðin er í 10 töluliðum.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1434
Til máls tóku: Kristín María og Hjálmar
Fundargerð 1434. fundar, dags. 7. febrúar 2017, lögð fram. Fundargerðin er í 9 töluliðum.20. Bæjarráð Grindavíkur - 1435
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta, Jóna Rut, Hjálmar, Ásrún, Páll Jóhann og bæjarstjóri
Fundargerð 1435. fundar, dags. 14. febrúar 2017, lögð fram. Fundargerðin er í 4 töluliðum.21. Bæjarráð Grindavíkur - 1436
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta, Páll Jóhann, bæjarstjóri, Hjálmar og Ásrún
Fundargerð 1436. fundar, dags. 21. febrúar 2017, lögð fram. Fundargerðin er í 5 töluliðum.22. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 19
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Hjálmar, Marta, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri.
Fundargerð 19. fundar, dags. 22. febrúar 2017, lögð fram. Fundargerðin er í 2 töluliðum.23. Hafnarstjórn Grindavíkur - 448
Til máls tóku: Kristín María, Hjálmar, Páll Jóhann og Marta
Fundargerð 448. fundar, dags. 13. febrúar 2017, lögð fram. Fundargerðin er í 4 töluliðum.24. Félagsmálanefnd - 73
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Ásrún, Marta og Guðmundur
Fundargerð 73. fundar, dags. 15. desember 2016, lögð fram. Fundargerðin er í 5 töluliðum.25. Félagsmálanefnd - 75
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Hjálmar, Marta og Ásrún
Fundargerð 75. fundar, dags. 16. febrúar 2017, lögð fram. Fundargerðin er í 6 töluliðum.26. Frístunda- og menningarnefnd - 60
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Marta, Guðmundur og Páll Jóhann
Fundargerð 60. fundar, dags. 8. febrúar 2017, lögð fram. Fundargerðin er í 9 töluliðum.