Bæjarstjórn Grindavíkur - 437. fundur
- 28.01.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 437
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmforseti
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Dagbjartur Willardssonaðalmaður
- Hilmar E Helgasonaðalmaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. 240.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Guðmundur, Kristín María, Hilmar, Dagbjartur og Marta.
Fundargerðin er lögð fram.2. 668.fundur haldin í stjórn S.S.S. Fundarboð og fundargerð.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Kristín María, Dagbjartur, Marta, bæjarstjóri og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.3. 669.fundur haldinn í stjórn S.S.S.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Kristín María, Dagbjartur, Marta, bæjarstjóri og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.4. 670.fundur haldinn í stjórn S.S.S.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Kristín María, Dagbjartur, Marta, bæjarstjóri og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.5. Aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030. Breytingatillaga varðandi svæði milli reita i4 og i5
sjá gildandi skipulag$line$http://www.grindavik.is/adalskipulag
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Páll Jóhann og Kristín María
Forseti bæjarstjórnar leggur til að skipulags- og umhverfisnefnd verði falið að ræða og undirbúa breytingu á skilgreiningu á svæði milli reita i4 og i5 í Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030. Skipulagi var frestað á þessu svæði þegar aðalskipulagstillagan var afgreidd.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu til umræðu í skipulags- og umhverfisnefnd með 6 atkvæðum, Guðmundur situr hjá.6. Breyting á deiliskipulagi í Mölvík skipulagsnúmer 11458, sameining og stækkun lóða undir gróðurhús.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Kristín María, Marta og Páll Jóhann
Deiliskipulagsbreyting ásamt umhverfisskýrslu fyrir tómataræktun við Mölvík iðnaðarsvæði i9 á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 var auglýst frá 2. desember 2013 til og með 16. janúar 2014. Tillagan er tekin til umræðu samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Svör við umsögnum og greinargerð með endanlegri áætlun er lögð fram skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum áætlana nr. 105/2006.
Bæjarstjórn samþykkir skipulagstillöguna ásamt umhverfisskýrslu og greinargerð með endanlegri áætlun og vísar gögnunum til afgreiðslu Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að ganga frá gögnum og svörum og senda til Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða7. Deiliskipulag fyrir fiskeldi á iðnaðarsvæði merkt i5 í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Kristín María, Hilmar og Páll Jóhann.
Deiliskipulag ásamt umhverfisskýrslu fyrir fiskeldi á iðnaðarsvæði i5 í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 var auglýst frá 30. október 2013, auglýsingatími var endurnýjaður 29. nóvember 2013 til 13. janúar 2014.
Tillagan er tekin til umræðu samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Athugasemdir bárust frá Stofnfiski. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Svör við umsögnum og greinargerð með endanlegri áætlun eru lögð fram skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum áætlana nr. 105/2006.
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna ásamt umhverfisskýrslu og greinargerð með endanlegri áætlun og vísar gögnunum til afgreiðslu Skipulagsstofnun skv. 42. gr. skipulagslaga. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að ganga frá gögnum og svörum og senda til Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða8. Rannsóknaborholur við Eldvörp, mat á umhverfisáhrifum
Tillögur að svörum koma inn á mánudaginn.
Til máls tóku: Bryndís, Marta, Kristín María, Dagbjartur, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Hilmar og Guðmundur.
Vísað er til umsagnar Skipulagsstofnunar, dags. í janúar 2014, þar sem óskað er umsagnar Grindavíkurbæjar um frummatsskýrslu fyrir rannsóknarboranir HS Orku í Eldvörpum. Frummatsskýrslan var kynnt á opnum fundi í Kvikunni þann 16. janúar síðastliðinn.
Tillaga að umsögn er lögð fram þar sem ekki eru gerðar efnislegar athugasemdir við matsskýrsluna, en Grindavíkurbær setur fram áhersluatriði sín og skilyrði fyrir framkvæmdunum. Helstu áhersluatriði og skilyrði eru eftirfarandi:
Leyfilegt er við virkjun háhita í Eldvörpum að staðsetja vinnsluholur innan hverfisverndarsvæðisins skv. samkomulagi við Grindavíkurbæ. Þær staðsetningar rannsóknarhola sem kynntar eru í frummatsskýrslu voru t.a.m. ákveðnar í samráði við fulltrúa bæjarins.
Halda skal mannvirkjum í lágmarki og fella þau að landi eins og kostur er.
Nota skal núverandi vegslóða og staðsetja borholur og lagnir meðfram þeim. Ef lagning nýrra slóða reynist nauðsynleg skal umfangi þeirra haldið í lágmarki.
Við allar framkvæmdir innan hverfisverndarsvæðisins skal hafa það að leiðarljósi að forðast rask á hraunum eins og mögulegt er, vanda frágang og ganga vel um svæðið.
Óheimilt er með öllu að hrófla við gígunum sjálfum.
Grindavíkurbær leggur áherslu á að umfang borhola verði eins lítið og mögulegt er og að gengið verði eins langt og mögulegt er í því að ganga frá borplönum sem ekki teljist nýtileg áfram eftir að rannsóknarborunum lýkur.
Grindavíkurbær styður þá ákvörðun að fallið sé frá borplani B og þannig tekið tillit til niðurstaðna matsvinnunnar.
Í töflu 22.1 er teknar saman mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar. Grindavíkurbær mun setja þessar aðgerðir sem skilyrði við útgáfu framkvæmdaleyfis, auk annarra atriði sem fram kunna að koma í áliti Skipulagsstofnunar. Jafnframt áskilur sveitarfélagið sér rétt til að setja ítarlegari skilyrði í samræmi við ofangreindar athugasemdir, gildandi skipulag fyrir svæðið og auðlindastefnu sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn samþykkir umsögnina, með áorðnum breytingum, og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá umsögninni og senda til Skipulagsstofnunar.9. Áskorun til sveitarfélaga varðandi gjaldskrárhækkanir
Til máls tóku: Bryndís, Kristín María, Marta, Guðmundur, Páll Jóhann, Hilmar, Dagbjartur, bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Áskoranir ASÍ og SA til sveitarfélaga varðandi gjaldskrárhækkanir lagðar fram.
Bæjarráð hefur fjallað um áskoranirnar og vakið athygli á því að Grindavíkurbær hefur lækkað útsvar niður 13,99% sem kemur öllum launþegum vel og eykur kaupmátt. Gjaldskrárhækkunum var stillt í hóf og eru gjaldskrár almennt lágar í Grindavík. Tímagjöld í leikskóla eru til dæmis óbreytt á milli ára og niðurgreiðsla til foreldra vegna dagforeldraþjónustu var aukin um 30%.
Unnið er að breytingum á afsláttarkjörum milli dagvistunarúrræða sem munu koma barnmörgum fjölskyldum vel. Auk þess hafa verið gerðar breytingar á viðmiðum vegna afslátta af fasteignasköttum sem munu koma tekjulágum öryrkjum og eldri borgurum vel.
Tillaga
Lagt er til að falla frá hækkunum á matarkostnaði í leikskólum og að hækka ekki greiðsluþátttöku foreldra í matarkostnaði barna í grunnskólanum, úr 60% í 65%.
Tekjutap Grindavíkurbæjar vegna þessa er 2.400.000 kr. og lagt er til að samþykktur verði viðauki sem tekið er af handbæru fé.
Samþykkt samhljóða10. Framlög til stjórnmálasamtaka
Til máls tók: Bryndís
Samkvæmt 5. gr. laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra skulu sveitarfélög með fleiri en 500 íbúa veita stjórnmálasamtökum, sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í sveitarstjórn eða hlotið a.m.k. 5% atkvæða í næstliðnum sveitarstjórnarkosningum, árleg fjárframlög til starfsemi sinnar.
Forseti leggur til að fyrirkomulagið verði óbreytt frá fyrri árum í samræmi við lög.
Samþykkt samhljóða11. Fundargerð 443. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Til máls tók: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.12. Fundargerð 8. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs
Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.13. Búsetumál eldri borgara í Grindavík
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Hilmar, Marta, bæjarstjóri og Páll Jóhann
Forseti leggur til, í samræmi við umræður á íbúafundi í nóvember s.l., að bæjarstjórn Grindavíkur feli bæjarráði að skipa 5 manna nefnd til að fara yfir búsetumál eldri borgara í Grindavík. Skal nefndin afla gagna til að meta þörf fyrir íbúðir og þjónustu fyrir eldri borgara í bænum til næstu 10 ára, með hliðsjón af íbúaþróun. Nefndin skal framkvæma könnun meðal eldri borgara um búsetuóskir þeirra.
Nefndin skal skila bæjarstjórn þarfagreiningu og tillögum eigi síðar en 1. apríl 2014 Starfsmaður nefndarinnar er sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Samþykkt samhljóða14. Kaup á tölvubúnaði árið 2013, sundurliðun á deildir
Staðfesta þarf samþykkt bæjarráðs
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir því hvernig fjármagni til kaupa á tölvubúnaði árið 2013 er skipt niður á deildir og eignfærða fjárfestingu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 sem felur í sér að alls eru kr. 8.453.000 færðar af lykli tölvudeildar niður á viðkomandi deildir. Viðaukin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu rekstrarins.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann.15. Ósk um styrk á móti gatnagerðargjöldum reiðhallar Brimfaxa
Afgreiða viðauka
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Guðmundur, bæjarstjóri og Hilmar
Bæjarráð hefur samþykkt að veita Brimfaxa styrk að fjárhæð 36.274.005 kr. á móti gatnagerðargjöldum reiðhallar, en áréttar að greiða skuli fasteignagjöld af hesthúsum sem ráðgert er að byggja við reiðhöllina.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.16. Systkinaafsláttur milli dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólasels.
Tillaga um systkinaafslátt lögð fram til samþykktar
Til máls tók: Bryndís
Bæjarráð hefur samþykkt tillögu um afslátt á milli dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólasels og kaup hugbúnaði að fjárhæð 1.400.000 kr. til að halda utanum afsláttarkjörin ásamt fleiru.
Afsláttur vegna annars barns verður 35%.
Afsláttur vegna þriðja barns verður 70%.
Afsláttur vegna fjórða barns verður 100%.
Afsláttur er veittur af lægsta gjaldi.
Í tillögunni er lagt til að komið verði upp rafrænni skráningu umsókna í gegnum Íbúagátt í One kerfinu. Það býður auk þess upp á fleiri möguleika í rafrænni stjórnsýslu.
Áætlað er að nýtt kerfi taki gildi 1. mars næstkomandi.
Bæjarráð hefur samþykkt tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 upp á 1.400.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann.17. Þorrablót UMFG í Íþróttahúsinu
Afgreiða viðauka
Til máls tóku: Bryndís og bæjarstjóri
Í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar hefur bæjarráð samþykkt að bjóða starfsmönnum Grindavíkurbæjar á Þorrablót UMFG þann 1. febrúar næstkomandi.
91 starfsmaður hefur þegið boðið og verður kostnaður vegna þess 536.900 kr.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum, viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 537.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé. Guðmundur situr hjá.18. Bæjarráð Grindavíkur - 1339
Til máls tóku: Bryndís, Marta, bæjarstjóri og Dagbjartur
Fundargerðin er lögð fram.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1340
Til máls tók: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.20. Frístunda- og menningarnefnd - 28
Til máls tóku: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.21. Skipulags- og umhverfisnefnd - 35
Til máls tóku: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.22. Félagsmálanefnd - 29
Til máls tók: Bryndís
Fundargerðin er lögð fram.