Bæjarstjórn Grindavíkur - 434. fundur
- 29.10.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 434
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmforseti
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Dagbjartur Willardssonaðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Forseti leitar eftir afbrigðum frá dagskrá til að taka fyrir tvö mál
1305030 - Skipulagslýsing fyrir nýtt skotsvæði Skotfélagsins Markmið
1210020 Íþróttamannvirki áfangi 2. Undirritaðir samningar lagðir fram til staðfestingar
Samþykkt samhljóða.
Forseti býður Ármann Halldórsson, sviðsstjóra skip
1. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2014-2017
Fjárhagsáætlun tekin til fyrri umræðu
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir helstu atriðum áætlunarinnar.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís.
Við fyrri umræðu er áætlað að um 115 milljóna króna afgangur verði af rekstri samstæðu. Veltufé frá rekstri verði 325 milljónir og eigið fé samstæðu 7.908 milljónir. Enn er nokkur óvissa um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og einstaka gjaldaliði sem munu skýrast fyrir síðari umræðu, ásamt áætlun um framkvæmdir og fjárfestingar.
Forseti leggur til að boðað verði til íbúafundar þann 11. nóvember næstkomandi þar sem fjárhagsleg staða sveitarfélagsins verði kynnt og helstu atriði fjárhagsáætlunarinnar.
Forseti leggur til að áætluninni verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn 26. nóvember næstkomandi.
Samþykkt samhljóða2. 29.fundur Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.3. 37.aðalfundur S.S.S. Fundargerð og gögn
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.4. 664.fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.5. 665.fundur haldin í stjórn S.S.S.
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.6. 79.fundur Náttúrustofu Suðvesturlands. Fundargerð.
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.7. 87.fundur Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum.
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.8. Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir niðurfellingu fasteignagjalda
Samningur lagður fram til staðfestingar. Samþykkja þarf viðauka að fjárhæð 145.600 kr.
Til máls tók: Bryndís.
Undirritaður samningur er lagður fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða jafnframt viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 145.600 kr. sem kemur til lækkunar á handbæru fé.9. Sérstakt strandveiðigjald til hafna.
Afgreiða viðauka við fjárhagsáætlun hafnarinnar
Til máls tók: Bryndís
Hafnarstjórn leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar fyrir árið 2013 að fjárhæð 1.141.982 sem komi til hækkunar á tekjum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu hafnarstjórnar.10. Deiliskipulag fyrir fiskeldi á iðnaðarsvæði merkt i5 í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Guðmundur, Marta, Kristín María, bæjarstjóri og Dagbjartur.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og gerði hann grein fyrir skipulaginu og þeim kröfum sem þar koma fram.
Deiliskipulagstillaga fyrir fiskeldi á fyrsta hluta iðnaðarsvæðis i5 í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er lagt fyrir bæjarstjórn, unnið af Eflu verkfræðistofu dags. 21. október 2013.
Búið er að bæta við í deiliskipulagstillöguna nánari kröfum varðandi lýsingu og skjólmanir sbr. bókun skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. október sl.
Forseti leggur til að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana.
Samþykkt samhljóða11. Skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir tómataræktun á iðnaðarsvæði i5 í Grindavík
Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Guðmundur, Marta, Kristín María, Dagbjartur og Unnar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og gerði hann grein fyrir skipulagslýsingunni og þeim kröfum sem þar koma fram.
Skipulagslýsing fyrir 2. hluta iðnaðarsvæðisins i5 á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er lögð fyrir bæjarstjórn, unnin af Eflu verkfræðistofu, dagsett október 2013. Skipulagslýsingin er undanfari deiliskipulagstillögu fyrir gróðurhús og aðra aðstöðu fyrir tómatarækt.
Deiliskipulagið mun taka til 27 ha reits innan iðnaðarsvæðis i5. Áformað er að reisa um 15 ha gróðurhús sem ætlað er undir tómataræktun til útflutnings, þjónustubyggingu og aðstöðu.
Bæjarstjórn samþykkir skipulagslýsinguna til kynningar skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða12. Umsókn um byggingarleyfi Hafnargata 14-16
Til máls tók: Bryndís
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Erindi dagsett 28. ágúst 2013 þar sem Gísli Ágúst Guðmundsson, kt. 250860-7499, fyrir hönd Vísis hf. sækir um byggingarleyfi fyrir 409 m2 viðbyggingu við Hafnargötu 16, lnr.128683. skv. teikningum frá GÁG ehf., dags. 28. ágúst 2013.
Bæjarstjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn og að þeir sem hagsmuna eiga að gæta hafa lýst skriflega yfir samþykki með áritun sinni á kynningargögn sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt skal fyrir stjórn Kvikunnar og hafnarstjórn.
Samþykkt samhljóða13. Umsókn um byggingarleyfi og breyttri notkun við Víkurbraut 58, Grindavík
Til máls tók: Bryndís, Kristín María, bæjarstjóri, Dagbjartur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Erindi frá Ágústi Gíslasyni f.h. Víkurbrautar ehf., kt. 480293-2159. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir endurbótum á húsnæði við Víkurbraut 58, Grindavík fnr. 209-2566 og breyttri notkun í 35-36 herbergja gistiheimili. Einnig er óskað eftir því að fyrirhuguð framkvæmd falli undir ákvæði til bráðabirgða byggingarreglugerðar nr.112/2012. Erindinu fylgja teikningar dagsettar 1. október 2013 unnar af T.ark Teiknistofan ehf.
Bæjarstjórn hafnar ósk um notkunar á bráðabirgðaákvæðis byggingarreglugerðar nr. 112/2012 þar sem notkun ákvæðisins féll úr gildi 15. apríl 2013 sbr. nýjustu útgáfu reglugerðarinnar frá því maí 2013. Hins vegar samþykkir bæjarstjórn byggingaráformin með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012. Bæjarstjórn samþykkir að breytt skráning fari fram að lokinni öryggisúttekt skv. 3.8.2. gr. sömu reglugerðar.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Guðmundur situr hjá14. Fundargerð 440. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.15. Fundargerð 441. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1329
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.17. Bæjarráð Grindavíkur - 1330
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.18. Bæjarráð Grindavíkur - 1331
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1332
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.20. Félagsmálanefnd - 26
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.21. Fræðslunefnd - 21
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.22. Fræðslunefnd - 22
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.23. Hafnarstjórn Grindavíkur - 421
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.24. Skipulags- og umhverfisnefnd - 31
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.25. Frístunda- og menningarnefnd - 25
Allir tóku til máls
Fundargerðin lögð fram.26. Skipulagslýsing fyrir nýtt skotsvæði Skotfélagsins Markmið
Tekið fyrir með afbrigðum
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og gerði hann grein fyrir vettvangsferðinni, 9. október sl.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Kristín María, Marta, bæjarstjóri og Páll Jóhann
Skipulagslýsing, unnin af verkfræðistofnunni Eflu dagsett 29.4.2013, fyrir nýtt skotsvæði skotfélagsins Markmið vestan við Lágfell tekin fyrir að nýju eftir auglýsingu.
Umsögn Skipulagsstofnunar liggur fyrir og gerir stofnunin ekki athugasemd við tillöguna. Þrjár athugasemdir komu á auglýsingatíma. Ein frá Bláa Lóninu ehf. og tvær frá einstaklingum.
Í athugasemdum er fyrirhuguðu skotsvæði mótmælt m.a. vegna mögulegs hávaða við fyrirhugað hótel Bláa Lónsins, göngustíga í nágrenni Lágafells, s.s. Reykjaveg og Skipastíg og einnig við fyrirhugaða skógrækt við Lágafell og Þorbjörn.
Í framhaldi af síðasta fundi bæjarstjórnar var farin vettfangsferð þann 9. október sl. Skotið var sjö sinnum úr haglabyssu með 24.gr. leirdúfuskotum og sjö skotum úr riffli með 270 cal. skotum. Skotið var við bestu aðstæður til hljóðburðs. Ljóst er að á u.þ.b. 400 m kafla á Reykjaveg heyrist vel hljóð úr riffli með stórum skotum.
Einnig þarf að færa til Skipastíginn á kafla.
Tillaga
Bæjarstjórn hafnar því að farið verði í deiliskipulagsgerð vestan við Lágafell og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að leggja fyrir skipulags- og umhverfisnefnd tillögur að öðrum staðsetningum að skotsvæði.
Samþykkt samhljóða27. Íþróttamannvirki áfangi 2.
Undirritaðir samningar við Grindina og Verksýn lagðir fram til staðfestingar.
Erindi tekið á dagskrá með afbrigði.
Til máls tóku: Guðmundur, Bryndís, Páll Jóhann og Kristín María
Samningar við Grindina og Verksýn staðfestir með 6 atkvæðum, Guðmundur situr hjá.
Bókun
Blekið á samningi við Grindina er varla þornað þegar meirihlutinn byrjar að breyta hönnuninni á byggingunni.
Fulltrúi D-lista