Bæjarstjórn Grindavíkur - 422. fundur
- 03.10.2012
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 422
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmforseti
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Páll Valur Björnsson2. varaforseti
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Dagbjartur Willardssonaðalmaður
- Hilmar E Helgasonvaramaður
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar nr. 805/2011
Til máls tók: Bryndís og Guðmundur
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar nr. 805/2011.
1. gr.
Orðið miðvikudag í fyrri málslið 7. gr. breytist í þriðjudag og hljóðar greinin svo eftir breytingu. Bæjarstjórn heldur reglulega fund einu sinni í hverjum mánuði, að jafnaði síðasta þriðjudag hvers mánaðar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.
2. gr.
Orðið miðvikudaga í 45. Gr. breytist í þriðjudaga og hljóðar greinin svo eftir breytingu.
Bæjarráð skal að jafnaði funda þá þriðjudaga er bæjarstjórn fundar ekki. Fella má bæjarráðsfund niður séu ekki brýn mál á dagskrá að mati formanns bæjarráðs og bæjarstjóra. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðsins eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.
3. gr.
Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011,öðlast gildi við staðfestingu innanríkisráðherra.
Samþykkt samhljóða að vísa tillögunni til síðari umræðu í bæjarstjórn2. Verksamningur Bakkalág-Plan við smábátahöfn Burðarlag-Jöfnunarlag.
undirritaðir samningar
Til máls tóku: Páll Jóhann, Guðmundur og Bryndís
Verksamningur við GG Sigurðsson samþykktur samhljóða. Samningurinn hljóðar upp á kr. 4.340.950.3. Viðbygging íþróttahús
undirritaður samningur lagður fram á fundinum. Undirritun fer fram á miðvikudag.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Valur, Dagbjartur, Guðmundur og Páll Jóhann
Ráðgjafasamningur um arkitektaráðgjöf og hönnun við Batteríið-arkitekta ehf. að fjárhæð 18.991.000 kr. er samþykktur með 6 atkvæðum. Guðmudur situr hjá.4. Beiðni um gerð deiliskipulags fyrir skotsvæði
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Kristín María, Páll Jóhann og Páll Valur
Samþykkt samhljóða að vísa beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2013.5. Fyrirspurn HS orku hf. um breytingu á deiliskipulagi á Reykjanesi.
Nefndin telur að um óverulega breytingu sé um að ræða og leggur til að tillagan verði grenndarkynnt í samræmi við 3.mgr. 44. gr skipulagslaga
Til máls tóku: Bryndís og Hilmar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að um óverulega breytingu sé að ræða og að tillagan verði grenndarkynnt í samræmi við 3.mgr. 44. gr skipulagslaga6. Nýtt deiliskipulag fyrir íþróttasvæðið í Grindavík
Nefndin samþykkir að auglýsa skipulagið skv. 1.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Valur, Guðmundur, Páll Jóhann og Kristín María.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa skipulagið skv. 1.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/20107. Landfylling og stækkun athafnasvæðis við Suðurgarð
Hafnarstjórn fjallar um málið á morgun og mun þá afstaða hennar liggja fyrir.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Hilmar, Páll Jóhann og Kristín María
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun hafnarinnar að fjárhæð 7.000.000 kr.8. Beiðni um dýpkun innan hafnar.
Hafnarstjórn fjallar um málið á morgun og mun þá afstaða hennar liggja fyrir.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Valur, Dagbjartur, Páll Jóhann og Guðmundur.
Við umræður og afgreiðslu málsins vék Hilmar af fundi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun hafnarinnar að fjárhæð 55.000.000 kr.9. 20.fundur Heklunnar fundargerð
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.10. 644.Fundarboð og fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.11. 643.fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.12. 645.fundur haldin í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundargerð
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.13. Fundagerð 428. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.14. Afgreiðslunefnd byggingamála - 2
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.15. Hafnarstjórn Grindavíkur - 413
sjá fundargerð á grindavik.is
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.16. Fræðslunefnd - 11
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.17. Frístunda- og menningarnefnd - 11
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.18. Frístunda- og menningarnefnd - 12
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.19. Skipulags- og umhverfisnefnd - 16
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.20. Skipulags- og umhverfisnefnd - 17
sjá fundargerð á grindavik.is
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.21. Bæjarráð Grindavíkur - 1296
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.22. Bæjarráð Grindavíkur - 1297
sjá fundargerð á grindavik.is
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.23. Bæjarráð Grindavíkur - 1298
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.24. Bæjarráð Grindavíkur - 1299
Fundargerðin lögð fram.
Allir tóku til máls.