Bæjarstjórn Grindavíkur - 447. fundur
- 25.11.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 447
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar HallgrímssonBæjarfulltrúi
- Bryndís Gunnlaugsdóttir HolmBæjarfulltrúi
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María BirgisdóttirBæjarfulltrúi
- Marta SigurðardóttirBæjarfulltrúi
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Ásrún Helga KristinsdóttirBæjarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Deiliskipulag, lokahús vegna affallslagnar frá Svartsengi til sjávar.
Til máls tóku: Kristín María og Guðmundur
Deiliskipulagið hefur hlotið afgreiðslu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga nr. 106/2005 um umhverfismat áætlana. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Umhverfisstofnun og Minjastofnun Íslands. Aðilar gerðu ekki athugasemd við deiliskipulagið. Minjastofnun benti á að fornminjar væru ekki merktar inn á deiliskipulagsuppdrátt. Í kjölfarið voru fornleifar merktar inn á uppdrátt. Engar fornleifar eru innan byggingarreits lokahúss, en fallin varða er í vegstæðinu.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið, og það verði sent til afgreiðslu Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar samhljóða.2. Umsókn um byggingarleyfi. Salttankur við Hafnargötu 20-22
Til máls tók: Kristín María
Þorbjörn hf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir salttank og aðkeyrslu við Hafnargötu 22. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu Gunnars Indriðasonar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar samhljóða.3. Umsókn um byggingarleyfi stækkun á Northern Light Inn
Til máls tók: Kristín María
Northern Light Hold Ísl ehf. óska eftir byggingarleyfi fyrir stækkun á eldhúsi og inngangi. Erindinu fylgja byggingarnefndateikningar dagsettar 20.10. 2014 unnar af Luigi Bartolozzi arkitekt.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar samhljóða.4. 93.fundur þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum.
Til máls tóku: Kristín María, Marta, bæjarstjóri, Bryndís, Guðmundur, Ásrún og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.5. Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvar 2015
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars árið 2015 verði 13,99%.
Til máls tók: Kristín María
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.6. Fasteignagjöld: Álagningarreglur 2015
Til máls tók: Kristín María
Með vísan til 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að álagningarreglur fasteignagjalda fyrir árið 2015 verði eftirfarandi:
1. Fasteignaskattur
1.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,36% af fasteignamati húss og lóðar
1.2. Opinberar byggingar (b-liður) 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
1.3. Annað húsnæði (c-liður) 1,65% af fasteignamati húss og lóðar
2. Holræsagjald
2.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,10% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Opinberar byggingar (b-liður) 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Annað húsnæði (c-liður) 0,20% af fasteignamati húss og lóðar
3. Vatnsgjald
3.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,10% af fasteignamati húss og lóðar
3.2. Opinberar byggingar (b-liður) 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.3. Annað húsnæði (c-liður) 0,20% af fasteignamati húss og lóðar
3.4. Aukavatnsgjald 17 kr/m3 vatns
4. Sorphreinsunargjald/Tunnuleiga
4.1. Íbúðarhúsnæði 14.225 kr. tunnu pr. ár
5. Sorpeyðingargjald
5.1. Íbúðarhúsnæði 23.210 kr. tunnu pr. ár
6. Lóðarleiga
6.1. Íbúðahúsalóðir 1,10% af fasteignamati lóðar
6.2. Lóðir v. opinberra bygginga 2,00% af fasteignamati lóðar
6.3. Lóðir v. annað húsnæði 1,60% af fasteignamati lóðar
7. Rotþróargjald
7.1. Rotþróargjald 15.000 kr. pr. rotþró pr. ár
8. Fjöldi gjalddaga 10
1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8, 1/9, 1/10 og 1/11 2015
Heilarfjárhæð á einn gjalddaga 20.000
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.7. Tekjuviðmið 2015 vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi
Til máls tók: Kristín María
Með vísan til 3. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og 5. gr. reglna Grindavíkurbæjar um afslátt á fasteignagjöldum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega, leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að tekjuviðmið ársins 2015 hækki um 5% frá árinu 2014.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.8. Fundargerð 453. fundar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Marta og Bryndís
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.9. Fundargerð samvinnunefndar um Svæðisskipulag Suðurnesja 13. nóvember 2014
Til máls tóku: Kristín María, Marta, Jóna Rut, Guðmundur, bæjarstjóri og Bryndís
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.10. Fundargerðir 13.-16. funda stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Til máls tóku: Kristín María, bæjarstjóri, Bryndís, Hjálmar og Marta
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.11. Gjaldskrá Grindavíkurhafnar árið 2015
Til máls tók: Kristín María
Hafnarstjórn leggur til við bæjarstjórna- að gjaldskrá verði haldið óbreyttri fyrir árið 2015. Verði breytingar á gjöldum frá birgjum hafnarinnar þá geti það leitt til þess að hafnarstjórn taki gjaldskrána upp að nýju og tillögur breytingar á gjaldskrá hafnarinnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu hafnarstjórnar.12. Þjónustugjaldskrár Grindavíkurbæjar 2015
Til máls tóku: Kristín María
Tillaga að þjónustugjaldskrám Grindavíkurbæjar fyrir árið 2015 lögð fram. Almennt hækka gjaldskrárliðir um 3,4% frá árinu 2014. Tímagjald leikskóla verður óbreytt annað árið í röð, en heildarkostnaður vegna leikskóladvalar hækkar um 1% milli ára vegna hækkunar á matarkostnaði.
Gildistaka 1. janúar 2015
Leikskólagjöld
Tímagjald 3.140
Tímagjald, einstæðir foreldrar og námsmenn 2.370
Viðbótar 15 mín, fyrir 1.050
Viðbótar 15 mín, eftir 1.050
9. tíminn, almennt gjald 7.860
9. tíminn, einstæðir foreldrar 7.860
Afsláttarreglur, gilda með skólaseli og vistun hjá dagforeldri
Systkinaafsl. 2. barn
Systkinaafsl. 3. barn
Systkinaafsl. 4. barn og fleiri
Afsláttur er af tímagjaldi greitt er fyrir mat og hressingu
Séu báðir foreldrar í fullu námi greiða þau forgangsgjald
Hressing (morgun/síðdegi) 2.500
Hádegismatur 4.730
Niðurgreiðslur vegna vistunar barna hjá dagmæðrum
8 tíma vistun 41.600
þ.e. 5.200 kr. hver vistunarstund
8 tíma vistun, einstæðir foreldrar 45.600
þ.e. 5.700 kr. hver vistunarstund
Tónlistarskólagjöld
Fullt hljóðfæranám 68.090
Hálft hljóðfæranám 41.000
Fullt söngnám 79.200
Hálft söngnám 52.120
Fullt aukahljóðfæri 45.440
Hálft aukahljóðfæri 26.890
Blásarasveit 18.700
Hljóðfæraleiga 6.360
Hljóðfæranámskeið, hópur 18.070
Söngnámskeið, hópur 52.810
Systkinaafsláttur 2. barn
systkinaafsláttur 3. barn
Sundlaug
Stakt gjald barna 270
Stakt gjald fullorðinna 500
10 miða kort, börn 2.200
10 miða kort, fullorðnir 3.500
30 miða kort fullorðnir 8.700
Árskort, fullorðnir 24.000
Árskort fjölskyldu 46.000
Árskort barna 6 - 18 ára 2.500
Börn 0- 5 frítt 0
Aldraðir og öryrkjar 260
Fríkort send út til þeirra sem hafa lögheimili í Grindavík
Leiga á handklæðum 500
Leiga á sundfatnaði 500
Magnkaup árskorta 0
20-99 árskort (pr. stk árskorts) 17.390
100-199 árskort (pr. stk árskorts) 13.050
200 eða fleiri árskort (pr. stk. árskorts) 9.240
Leikjanámskeið
Tveggja vikna námskeið 1/2 dagur 7.000
Tveggja vikna námskeið allan daginn 10.800
Leiklistarnámskeið, 1/2 dagur 7.000
Pössun milli 8-9 og 16-17, kr. barn 2.000
Systkinaafsláttur 2. barn
systkinaafsláttur 3. barn
Bókasafn
Árgjald, 16-67 ára (ca 150 - 200 aðilar) 1.800
Leiga á DVD 320
Leiga á snældu
Leiga á tungumálanámsk. 320
Leiga á margmiðlunarefni 320
Sekt á bækur, kr. dag 30
Sekt á CD 30
Sekt á DVD og margmiðlunarefni pr. dag. 60
Þak á sektir 3.110
Internet, fyrstu 15. mín 20
Internet 30 mín 260
Internet klst 420
Börn, öryrkjar, ellilífeyrisþegar fá kort sér að kostnaðarlausu.
Frátekt á bók kr/stk 60
Vegna skemmda eða glataðra gagna
Bækur/hljóðbækur 110
Tungumálanámskeið 3.110
Mynddiskur 3.110
Tímarit 520
Nýtt eða nýlegt efni
Ljósrit pr. Síða A4 30
Ljósrit pr. Síða A3 60
Plöstun pr. Síða A5 100
Plöstun pr. Síða A4 175
Plöstun pr. Síða A3 225
Grunnskóli
Skólamáltíðir, hluti foreldra af innkaupsverði 65%
Samkomusalur, hálfur dagur 15.510
Samkomusalur, heill dagur 25.850
Skólastofur, hálfur dagur 7.240
Skólastofur, heill dagur 10.340
Gisting, pr mann 1.040
Skólasel
Gjaldflokkur
Flokkur 1 6.530
Flokkur 1,1 7.820
Flokkur 2 11.750
Flokkur 2,1 11.750
Flokkur 2,2 11.750
Flokkur 2,3 14.330
Flokkur 3 17.200
Flokkur 4 25.800
Síðdegis 190
Hægt er að kaupa 15 mínútur aukalega á tímabilinu frá 14:00 - 16:00 . 110
Tíminn frá kl. 16:00 - 17:00 er á hærra gjaldi. 440
Tjaldsvæði
Gistinótt pr einstakling 1.243
Gistináttagjald pr. gistieining 107
Fjórða hver nótt frí
Yngri en 14 ára frítt
Rafmagn á sólarhring 1.000
Þvottavél 500
Þurrkari 500
Útleiga á þjónustuhúsi
Hálfur dagur 15.000
Heill dagur 25.000
Hljóðkerfi
Sólarhringur 30.000
Kvennó
Leigugjald húsnæðis pr klst 5.250
Íþróttamannvirki
Verð pr klst
Hópið 12.700
Íþróttahús:
Stóri salur, allur 6.100
Stóri salur, hálfur 3.250
50% álag vegna leikja 3.300
Litli salur 3.000
Skemmtanir pr. Klst. 12.000
Við bætast stefgjöld sem miðast við gestafjölda
Vinnuskóli
Sláttur fyrir aldraða og öryrkja 1.000
Aldraðir og öryrkjar sem fá afslátt af fasteignaskatti fá sama afslátt af slætti
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að þjónustugjaldskrá.
Tillaga
Bæjarstjóri leggur til að umfjöllun um gjaldskrá slökkviliðs Grindavíkur verði fresta til næsta fundar
Samþykkt samhljóða13. Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnanna á Suðurnesjum 2015
Til máls tóku: Kristín María og bæjarstjóri
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun SSS og annarra sameiginlega rekinna stofnanna Suðurnesjum fyrir árið 2015. Heildarframlög Grindavíkurbæjar eru 47.441.000 kr. Öll framlög hafa verið færð inn í tillögu að fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2015.14. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Síðari umræða. Gögnin bárust ykkur í t-pósti á miðvikudagskvöld. Jón mun setja inn endanleg skjöl á mánudaginn.
Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015 ásamt 3 ára rammaáætlun er tekin til síðari umræðu.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu fjárhagsstærðir í áætluninni.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Marta, Ásrún, bæjarstjóri, Bryndís, Jóna Rut og Guðmundur
Bókun
Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs 2015, þ.e. A-hluta, fyrir fjármagnsliði, er áætluð 8,2 milljónir króna í rekstarafgang. Hinsvegar er áætlaður rekstrarafgangur 49,6 milljónir króna að teknu tilliti til vaxtatekna af hitaveitusjóði og öðrum fjármagnsliðum. Í samanteknum reikningsskilum (A+B hluta) er gert ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 88,5 milljónum króna árið 2015.
Í meðfylgjandi töflu má sjá áætlaða rekstrarniðurstöðu áranna 2014-2017.
Í þús. króna 2015 2016 2017 2018
A-hluti, rekstrarniðurstaða 49.635 53.307 81.975 124.759
A- og B-hluti, rekstrarniðurstaða 88.499 96.486 128.694 178.088
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum eru áætlaðar í árslok 2015, 8.000 milljónir króna. Þar af er áætlað að innlán standi í um 1.018 milljónum króna. Heildarskuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 1.398,5 milljónir króna. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 472 milljónir króna.
Vaxtaberandi skuldir eru áætlaðar um 711 milljónir króna í árslok 2015. Þar af eru langtímaskuldir við lánastofnanir 257,9 milljónir króna. Skuldahlutfall Grindavíkurbæjar og stofnana sem hlutfall af heildartekjum er 58,9%.
Veltufé frá rekstri í samanteknum reikningsskilum árið 2015 er áætlað um 316 milljónir króna. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum á árinu 2015 er áætluð um 405 milljónir króna og afborganir langtímalána eru áætlaðar 29,5 milljónir króna. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum á tímabilinu 2015-2018 eru áætlaðar 1.393,5 milljónir. Veltufé frá rekstri á sama tímabili er áætlað 1.403,9 milljónir.
Til fjármögnunar framkvæmda og afborgana af langtímalánum, umfram það sem reksturinn stendur undir, á þessu 4 ára tímabili, mun þurfa að taka 112 milljónir króna af bankainnistæðu. Handbært fé í árslok 2015 er áætlað 1.018 milljónir króna. Á tímabilinu 2015-2018 mun markmið um að handbært fé verði aldrei lægra en 1 milljarður nást og í árslok 2018 er handbært fé áætlað 1.033 milljónir króna.
Fjárhagsáætlun ársins 2015 er unnin út frá markmiðum sem rædd voru á 1297. fundi bæjarráðs og leysa af hólmi þau markmið sem bæjarstjórn setti á 401. fundi þann 17. nóvember 2010. Þau eru:
Árin 2014- 2016. Rekstur A-hluta sveitarfélagsins verði í jafnvægi, þ.e. skatttekjur og þjónustutekjur standi undir rekstri málaflokka og sjóða A-hluta. Jákvæð rekstrarniðurstaða samstæðu, þ.e. A- og B-hluta. Engar vaxtatekjur verði nýttar til rekstrar, eingöngu til fjárfestinga eða til að auka við handbært fé Grindavíkurbæjar. Sem þýðir þá að afgangur þarf að vera meiri eða jafnmikill og vaxtatekjur.
Tillaga
Forseti leggur til að haldin verði íbúafundur um fjárhagsáætlun bæjarins þann 3. desember nk. kl. 17:00-18:30
Samþykkt samhljóða
Fundarhlé tekið 17:45-17:55
Bókun
Fulltrúar B- og S- lista fagna því að reynt hafi verið að halda í vinnubrögð síðustu bæjarstjórnar við vinnslu fjárhagsáætlunar, þar sem meðal annars allir bæjarfulltrúar taki þátt í gerð áætlunarinnar. Vonandi verður þó hægt á nýju ári að móta ítarlegri og betri verklagsreglur um fjárhagsáætlunargerð líkt og rætt var um á síðasta bæjarstjórnarfundi m.a. með aukinni aðkomu nefnda bæjarins.
Fulltrúar B- og S- lista munu samþykkja þá fjárhagsáætlun sem hér er lögð fram en ekki ber að líta á það sem samþykki fyrir einstaka verkefnum eða framkvæmdum sem á eftir að útfæra betur í nefndum, bæjarráði og/eða bæjarstjórn.
Fulltrúar B- og S-lista
Fjárhagsáætlun 2015 og rammaáætlun 2016-2018 fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir er samþykkt samhljóða.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1365
Til máls tóku: Kristín María, bæjarstjóri, Bryndís, Marta, Ásrún og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1366
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís, Guðmundur, bæjarstóri, Hjálmar, Marta, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Jóna Rut og Ásrún
Fundarhlé tekið kl. 18:35 - 18:45
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Félagsmálanefnd - 46
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Fræðslunefnd - 32
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut og Bryndís
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Skipulags- og umhverfisnefnd - 47
Til máls tóku: Kristín María, Hjálmar, Bryndís, Marta, Jóna Rut og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.