Bæjarstjórn Grindavíkur - 488. fundur
- 25.09.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 488
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Umsókn um byggingarleyfi: Bílskúr við Hólavellir 3
Erindi frá Siggeiri F. Ævarssyni. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 30 m2 bílskúr við Hólavelli 3. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja byggingaráformin með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn og grenndarkynningu fyrir eigendum að Höskuldarvöllum 19-25 og Hólavöllum 1 og 5.
Til máls tók: Sigurður Óli
Erindi frá Siggeiri F. Ævarssyni lagt fram. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 30 m2 bílskúr við Hólavelli 3. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja byggingaráformin með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn og grenndarkynningu fyrir eigendum að Höskuldarvöllum 19-25 og Hólavöllum 1 og 5.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.2. Deiliskipulag á Keflavíkurflugvelli: beiðni um umsögn
Erindi frá Isavia. Í erindinu er óskað eftir umsögn um breytingu á deiliskipulagi Keflavíkurflugvallar - vestursvæði/flugvallasvæði og breytingu á aðalskipulagi.
Breytingarnar lúta að auknu byggingarmagni á svæði FLE2 úr 65.000 m2 í 190.000 m2Til máls tók: Sigurður Óli
Erindi frá Isavia lagt fram. Í erindinu er óskað eftir umsögn um breytingu á deiliskipulagi Keflavíkurflugvallar - vestursvæði/flugvallasvæði og breytingu á aðalskipulagi.
Breytingarnar lúta að auknu byggingarmagni á svæði FLE2 úr 65.000 m2 í 190.000 m2
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við breytingarnar.3. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka 2018
Skólastjóri leikskólans Lautar óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018, að fjárhæð 400.000 kr. vegna samvinnu við Heilsuvernd.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.Til máls tók: Sigurður Óli
Skólastjóri leikskólans Lautar óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018, að fjárhæð 400.000 kr. vegna samvinnu við Heilsuvernd.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.4. Hættumat vegna jarðvár í landi Grindavíkur.
Forseti bæjarstjórnar leggur málið fyrir.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur og Guðmundur
Samkvæmt mati Þorvaldar Þórðarsonar eldfjallasérfræðings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, telur hann verulegar líkur á hraungosi á Reykjanesskaga í framtíðinni og má í raun búast við því hvenær sem er. Því er mikilvægt að meta áhættu á svæðinu og hvernig bregðast skuli við henni.
Forseti leggur til vísa málinu til almannavarnarnefndar Grindavíkur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.5. Íbúðalánasjóður: tilraunaverkefni í húsnæðismálum
Erindi frá íbúðalánasjóði. í erindinu er kynnt tilraunaverkefni um uppbyggingu í húsnæðismálum á landsbyggðinni. Sveitarfélög eru hvött til þess að taka þátt í verkefninu.
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Páll Valur og Hjálmar.
Erindi frá íbúðalánasjóði lagt fram. í erindinu er kynnt tilraunaverkefni um uppbyggingu í húsnæðismálum á landsbyggðinni til að leita leiða til þess að bregðast við þeim mikla húsnæðisvanda sem ríkir víðsvegar á landsbyggðinni. Sveitarfélög eru hvött til þess að taka þátt í verkefninu.
Bæjarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum að taka ekki þátt í verkefninu. Helga Dís og Páll Valur sitja hjá.6. Stofnun öldungaráðs: Erindi frá Félagi eldri borgara í Grindavík
Ný og breytt lög um félagsþjónustu sveitarfélaga taki gildi þann 1. október nk. Meðal nýmæla er að öldungaráð taka við því hlutverki sem þjónustuhópum aldraðra hefur fram til þessa verið falið að sinna. Er ráð fyrir því gert að öldungaráð starfi í hverju sveitarfélagi eða á grundvelli samvinnu milli sveitarfélaga. Bæjarstjórn þarf að kjósa þrjá fulltrúa í öldungaráð.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Hjálmar,Helga Dís og Páll Valur.
Ný og breytt lög um félagsþjónustu sveitarfélaga taka gildi þann 1. október nk. Meðal nýmæla er að öldungaráð taka við því hlutverki sem þjónustuhópum aldraðra hefur fram til þessa verið falið að sinna. Er ráð fyrir því gert að öldungaráð starfi í hverju sveitarfélagi eða á grundvelli samvinnu milli sveitarfélaga.
Forseti leggur til að vísa erindinu til bæjarráðs til úrlausnar.
Samþykkt samhljóða8. KPMG: Fræðslufundir fyrir sveitarstjórnarfólk
Í boði er sérstakur fræðslufundur fyrir Grindavíkurbæ þar sem áhersla verður lögð á stjórnsýslu í tengslum við fjármál sveitarfélaga, fjárhagsáætlanir og ársreikninga.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur og Páll Valur.
Í boði er sérstakur fræðslufundur fyrir Grindavíkurbæ þar sem áhersla verður lögð á stjórnsýslu í tengslum við fjármál sveitarfélaga, fjárhagsáætlanir og ársreikninga.
Bæjarstjórn þakkar boðið og felur bæjarstjóra að finna hentuga tímasetningu í samráði við KPMG.9. Náttúruhamfaratrygging Íslands: breyting á lögum og hlutverki
Erindi frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands þar sem vakin er athygli á breytingalögum nr. 46/2018. Einnig eru sveitarfélög minnt á nýskráningar mannvirkja sem ekki eru tryggð hjá stofnuninni.
Til máls tók: Sigurður Óli.
Erindi frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands lagt fram til kynningar. Í erindinu er vakin athygli á breytingalögum nr. 46/2018. Einnig eru sveitarfélög minnt á nýskráningar mannvirkja sem ekki eru tryggð hjá stofnuninni.10. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð 862. fundar til kynningar
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerð nr. 862, dags. 31. ágúst 2018, er lögð fram til kynningar.11. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2018
Fundargerð 494. fundar til kynningar
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerð nr. 494, dags. 16. ágúst 2018, er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2018
Fundargerð 495. fundar til kynningar
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Helga Dís, Birgitta, Guðmundur, bæjarstjóri og Páll Valur.
Fundargerð nr. 495, dags. 6. september 2018, er lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2018
Fundargerð 40. aðalfundar Kölku til kynningar
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur Birgitta og Hallfríður.
Fundargerð aðalfundar Kölku 2018, nr. 40, dags. 27. ágúst 2018, er lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir: Svæðisskipulag Suðurnesja 2018
Fundargerð 15. fundar til kynningar
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur, Birgitta, Helga Dís, Hallfríður, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerð nr. 15, dags. 13. september 2018, er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1489
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hjálmar, bæjarstjóri og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1490
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, bæjarstjóri, Hjálmar, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Guðmundur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Bókun
Fyrirspurn til meirihlutans vegna fundargerða bæjarráðs nr. 1490 og 1491 Ofangreindar fundargerðir innihalda hvor um sig eitt mál, viðtöl við mögulega sviðstjóra sem sóttu um starf hjá okkur og ákvörðun um ráðningu í framhaldi af því. Þarna erum við að tala um aukafund nr. 1490 á fimmtudegi, svo annar aukafundur nr. 1491 mánudaginn eftir og í kjölfarið er haldinn fundur nr. 1492 þar sem ráðningarmál er 6. mál á dagskrá og samþykktir ráðningarsamningar við sviðsstjóra. Einnig vekur athygli að þessar fundargerðir nr. 1490 og 1491 eru ekki birtar á vef Grindavíkur einhverra hluta vegna. Við viljum vita af hverju það voru auka bæjarráðsfundir um þessi mál í stað þess að bæjarfulltrúar eða bæjarráð hefðu verið boðaðir í viðtöl við umsækjendur svipað og var gert í ráðningu bæjarstjórans? Bæjarfulltrúar eru á mánaðarlaunum og þurfa ekki í hvert skipti að fá greitt fyrir hvert viðvik sem er gert. Þarna voru 2 aukafundir sem við teljum að ekki hafi þurft að boða til sem er aukakostnaður uppá rúmlega 400þús kr.- Ef þið ætlið að vísa í lög eða reglugerðir þá vinsamlegast nefnið hvaða lög eða reglugerð á við.
Hallfríður Hólmgrímsdóttir, Miðflokknum.
Bókun
Bæjarráð mun svara bókuninni á næsta bæjarráðsfundi.17. Bæjarráð Grindavíkur - 1491
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Bæjarráð Grindavíkur - 1492
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Birgitta, Hallfríður, Páll Valur, Hjálmar, Helga Dís og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1493
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hjálmar, Guðmundur, Hallfríður, Helga Dís, Birgitta og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Skipulagsnefnd - 44
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur, Hallfríður, bæjarstjóri, Birgitta og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Fræðslunefnd - 78
Til máls tóku: Sigurður Óli, Birgitta, Guðmundur, Hjálmar, Hallfríður og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.22. Fræðslunefnd - 79
Til máls tók: Sigurður Óli.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.23. Frístunda- og menningarnefnd - 75
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Helga Dís, Hjálmar, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.24. Hafnarstjórn Grindavíkur - 460
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, bæjarstjóri, Birgitta, Hallfríður og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.25. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 30
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hjálmar, Guðmundur, Páll Valur, Hallfríður, Birgitta og Helga Dís, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.