Bæjarstjórn Grindavíkur - 454. fundur
- 25.08.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 454
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttir2. varaforseti
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Ásrún Helga KristinsdóttirBæjarfulltrúi
- Þórunn Svava Róbertsdóttirvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Breyting á deiliskipulagi hesthúsabyggðar, fráveita í rotþró og stækkun byggingarreitar við reiðhöll.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann og Ásrún
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu breyting á deiliskipulagi hesthúsabyggðar. Breytingarnar eru m.a. að byggingarreitur fyrir reiðhöll stækkar um 12m til vesturs og texti um holræsa- og lagnakerfi breytist á þann hátt að í stað þess að byggð á deiliskipulagssvæðinu tengist holræsakerfi bæjarins verður hver og einn að vera með rotþró innan lóðar. Ein athugasemd barst í kynningarferlinu. Í athugasemdinni er gerð athugasemd við lóðaskipan við Hópsheiði 10 og vísað til munnlegs samkomulags við Hópsheiði 8 og 12 og óþinglýstu lóðarblaði dagsett 10.7.2007. Þessu fyrirkomulagi var hins vegar mótmælt við fyrri grenndarkynningu og vísað til þinglýsts lóðarblaðs. Skipulagsnefnd bendir á að þar að auki er stuðst við þinglýst lóðarblöð lóðanna við gerð skipulagsins og hefðum og venjum í skiptingu raðhúsalóða.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúi svari athugasemdinni með þessum rökum og feli skipulagsfulltrúa skipulagið til fullnaðarafgreiðslu og senda skipulagið til skipulagsstofnunar og auglýsa í b-deild stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.2. Brimketill: breyting á aðalskipulagi.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur og Páll Jóhann
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Breytingin tekur til austasta hluta iðnaðarsvæðisins merkt i9 og til staðsetningar deiliskipulags Brimketils, sem er hverfisverndað svæði (HV2). Breytingin fyrir iðnaðarsvæði i9 er gerð á sveitarfélagsuppdrætti og með textabreytingu í kafla 4.12.2. í greinargerð. Breyting á staðsetningu deiliskipulags Brimketils er eingöngu gerð á sveitarfélagsuppdrætti. Breytingin felst í því að mörk iðnaðarsvæðisins i9 sem er 664,6 ha að stærð eru færð um 148 m til vesturs en við það minnkar svæðið um 4,8 ha. Iðnaðarsvæðið verður um 659,8 ha að stærð eftir breytinguna. Svæðið sem liggur utan iðnaðarsvæðis eftir breytinguna verður skilgreint sem óbyggt svæði með hverfisvernd merkt HV 2, sem nú er staðsett nákvæmar en gert er á gildandi aðalskipulagi. Vegna vinnslu deiliskipulags fyrir Brimketil þarf að leiðrétta þessar villur til að samræmis gæti á milli aðal- og deiliskipulags. Gerð verður óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi fyrir Iðnaðarsvæði við Mölvík til að samræma mörkin.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fela skipulagsfulltrúa hana til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.3. Brimketill: deiliskipulag
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Jóna Rut, bæjarstjóri og Páll Jóhann
Tilgangur verkefnisins er að vinna skipulag fyrir hverfisverndarsvæði Brimketils þar sem lögð er áhersla á bætt og öruggara aðgengi og aukið verði gildi svæðisins til útivistar. Í leiðinni er verið að stýra umferð og vernda svæðið fyrir auknum ágangi. Meginmarkmið með deiliskipulagsáætluninni er að skilgreina aðkomu að svæðinu, skilgreina áningastaði og bílastæði og bæta aðstöðu til útivistar á svæðinu í heild. Áninga- og útsýnisstaðir sem og stígagerð verði aðlagað landi eins og kostur er til að minnka sjónræn áhrif.
Svæðið er skilgreint sem hverfisverndarsvæði HV2 í Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skipulagslýsinguna og fela skipulagsfulltrúa hana til auglýsingar skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.4. Mölvík: breyting á deiliskipulagi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis við Mölvík dags. 10.12.2012. Skipulagið var auglýst í b-deild Stjórnartíðinda þann 07.02.2013.
Stærð skipulagssvæðisins er 61,4 ha og er svæðið hluti af iðnaðarsvæði i9 í aðalskipulagi Grindavíkur 2010 - 2030. Svæðið afmarkast af strönd til suðurs og óbyggðu svæði til annarra átta, sem er að mestu lítt gróið og sandorpið hraun. Í aðalskipulagi er um að ræða austasta hluta iðnaðarsvæðis i9 en austan og norðan við svæðið er land skilgreint sem óbyggt svæði. Nesvegur liggur um svæðið og er aðkoma inn á það frá honum.
Tilgangur breytingarinnar er að samræma mörk deiliskipulags fyrir iðnaðarsvæðið við Mölvík og nýs deiliskipulags fyrir hverfisverndarsvæðið við Brimketil. Breytingin felst í því að skipulagsmörk deiliskipulagsins færast til vesturs um 148 m og minnkar svæðið um 4,8 ha. Eftir breytingu verður hið deiliskipulagða svæði 56,6 ha að stærð. Svæðið sem liggur utan þess eftir breytingu á deiliskipulagi verður skilgreint sem óbyggt svæði með hverfisvernd (HV2) í aðalskipulagi og deiliskipulagt sem útsýnis- og útivistarsvæði við Brimketil.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fela skipulagsfulltrúa hana til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.5. Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata.frh.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, bæjarstjóri, Páll Jóhann og Marta
Tekið fyrir eftir auglýsingu deiliskipulag miðbæjar, Hafnargata Ránargata. Auglýstur athugasemdafrestur var frá og með 20. maí sl. til 15. júlí sl. Ein athugasemd barst frá Vísi hf. þar sem óskað er eftir fjölgun bílastæða á svæðinu og bent er á svæði við Seljabótina og Álfhól. Tekið hefur verið tillit til athugasemdarinnar og auka bílastæði sett við Seljabótina og við Álfhól. Umsagnir án athugasemda bárust frá Umhverfisstofnun og Orkustofnun en umsagnir með athugasemdum bárust frá siglingarsviði Vegagerðarinnar og Minjastofnun. Búið er að setja inn minjar á deiliskipulagsuppdrátt sbr. athugasemd Minjastofnunar og tillit verður tekið til athugasemdar Vegagerðarinnar við hönnun vega sbr. athugasemd Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið skipulagið til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.6. Fundargerðir: Reykjanesfólkvangur 2015
Fundargerðir frá 28. janúar og 11. mars til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, bæjarstjóri og Guðmundur
Fundargerðir frá 28. janúar og 11. mars lagðar fram til kynningar.7. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2015
Fundir númer 691 og 692 til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Páll Jóhann, Jóna Rut og bæjarstjóri
Fundargerðir númer 691 og 692 lagðar fram til kynningar.8. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja (Kalka) 2015
Fundargerð 461 lögð fram til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Marta, bæjarstjóri, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerð 461 lögð fram til kynningar.9. Norðurvör 8: umsókn um byggingarleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Erindi frá Þórunni E. Andrésdóttur. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á þaki og nýju fordyri á austurhlið við Norðurvör 8. Erindinu fylgja teikningar unnar af Arkform arkitektastofu dags. júlí 2015. Einnig fylgir erindinu yfirlýsing nágranna við Norðurvör 6,7,9 og 10 og Suðurvör 5 og 7.
Skipulagsnefnd leggur til að byggingaráformin verði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.10. Reiðstígur í girðingastæði: umsókn um framkvæmdaleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Páll Jóhann
Erindi frá hestamannfélaginu Brimfaxa. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir reiðstíg í gamla girðingarstæðinu norðan við Þórkötlustaðahverfi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja veitingu framkvæmdaleyfis.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.11. Tankur í Þórkötlustaðarhverfi: Breyting á aðalskipulagi.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Jóna Rut, Þórunn og Ásrún
Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Breytingin tekur til hluta tengivegar (Eyjasund) norðan megin við hringtorgið við Austurveg, íbúðarsvæðis vestan megin við tengiveginn og búgarðabyggðar austan megin við veginn.
Tilgangur breytingarinnar er að stækka íbúðarsvæðið austan Eyjasunds svo gamall vatnstankur sem fyrirhugað er að nýta sem íbúðarhúsnæði sé innan þess.
Við stækkun svæðisins þarf að hliðra tengiveginum u.þ.b. 14 metra til austurs á um 200 m kafla, til að íbúðarsvæðið sé utan helgunarsvæðis vegarins. Íbúðarsvæðið er stækkað um 0,033 ha og búgarðabyggðin minnkuð um 0,2 ha. Breytingin felur eingöngu í sér breytingu á þéttbýlisuppdrætti aðalskipulagsins en ekki breytingu á greinargerð.
Breytingin er gerð í samráði við Vegagerðina. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fela skipulagsfulltrúa hana til fullnaðarafgreiðslu. Einnig að Skipulagsfulltrúa verði falið að kynna breytinguna fyrir landeigendum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.12. Umsókn um byggingarleyfi: Tankur í Þórkötlustaðahverfi.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta, Jóna Rut og Páll Jóhann
Erindi frá Arnari Frey Jónssyni. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingar á vatnstank í Þórkötlustaðahverfi í íbúðarhúsnæði. Erindinu fylgja teikningar unnar af Róberti Svavarssyni dags. 19.07.2015.
Skipulagsnefnd leggur til að byggingaráformin verði samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og aðalskipulagsbreytingu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.13. Umsókn um byggingarleyfi: Hraunbraut 3
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta, Jóna Rut, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Þórunn og Ásrún
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu. Erindi frá Petru Rós Ólafsdóttur. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Hraunbraut 3. Erindinu fylgja teikningar unnar af Atla Davíð Smárasyni dagsettar 21.04.2015. Á kynningartíma barst ein athugasemd.
Skipulagsfulltrúa falið að leggja drög að svörum fyrir bæjarstjórn og leggur til að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður svo gefið út af byggingarfulltrúa þegar nánari gögnum hefur verið skilað inn.
Samþykkt samhljóða14. Víkurbraut 8: Umsókn um byggingarleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Marta, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Jóna Rut, Ásrún og Guðmundur
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290 í erindinu er óskað eftir leyfi fyrir því að stækka neðri hæð ásamt risi og kvist íbúðarhúss til norðausturs u.þ.b.. 2,4m. og staðsetja tvö smáhýsi norðaustan megin við húsið. Hvert smáhýsi fyrir sig er á lengd 8m x 5m breitt, 40m2. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ dagsettar 27.07.2015.
Tillaga
Skipulagsnefnd leggur til að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um samþykki eigenda Bjargs, og Víkurbrautar 5 og 10. Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskyldum gögnum hefur verði skilað inn til byggingarfulltrúa.
Samþykkt með 4 atkvæðum, Ásrún, Páll Jóhann og Kristín María eru á móti.
Breytingatillaga
Bæjarstjóri leggur til að tillögunni verði vísað til skipulagsnefndar og í vinnslu í þeirri deiliskipulagsvinnu sem verið er að vinna í gamla bænum.
Tillagan fellur á jöfnu.
Bókun B- og G- lista
Í ljósi þess að nú stendur yfir deiliskipulagsvinna fyrir gamla bæinn leggja fulltrúar B- og G-lista til að eingöngu verði samþykkt byggingarleyfi vegna breytinga á núverandi íbúðarhúsi en að ákvörðun um smáhýsin verði frestað og þau kynnt með fyrirhugaðri kynningu nýs deiliskipulags gamla bæjarins. Skipulagsnefnd verði falið að fjalla um væntanleg smáhýsi við gerð deiluskipulags og athuga hvernig uppbygging á smáhýsunum samræmist mannvirkjum á svæðinu í gamla bænum. Það skipulag hefur nú þegar verið forkynnt fyrir bæjarbúum og flestar athugasemdir er bárust snéru að of miklu byggingarmagni á svæðinu sem bitnaði á túnum og grænum svæðum. Í ljósi þess að sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs var falið að vinna skipulagið með það fyrir augum að minnka byggingarmagn á svæðinu þykir eðlilegt að samþykkja ekki neinar nýbyggingar fyrr en deiluskipulagið hefur verið samþykkt.
Fulltrúar B- og G-lista
Bókun
Fulltrúar D-lista treysta faglegum vinnubrögðum skipulagsnefndar þar sem mikill undirbúningur liggur að baki og að útlit verði í samræmi við fyrirlagðar teikningar.
Fulltrúar D-listans15. Pílufélag Grindavíkur: Samningur 2015-2017
Þetta var samþykkt í frístunda- og menningarnefnd í febrúar en misfórst að leggja fyrir bæjarstjórn. Samningurinn byggir á þeim fyrri og er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2015.
Til máls tók: Kristín María
Tillaga að endurnýjun samstarfssamnings við Pílufélag Grindavíkur lögð fram.
Frístunda-og menningarnefnd leggur til að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.16. Miðgarður: Endurnýjun
Til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Guðmundur, bæjarstjóri og Marta
Minnisblað hafnarstjóra lagt fram, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2015 að upphæð 4,5 milljónir til að standa undir kostnaði við hönnun á endurnýjun viðlegukants við Miðgarð.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við framkvæmdaáætlun Grindavíkurhafnar áriði 2015 að fjárhæð 4,5 milljónir sem kemur til lækkunar á handbæru fé.17. Breyting á fulltrúum í nefndum: G-Listi Grindvíkinga gerir breytingar á fulltrúum í nefndum
Félagsmálanefnd:$line$$line$aðalmaður: Laufey Birgisdóttir$line$varamaður: Þórir Sigfússon$line$$line$Frístunda- og menningarnefnd$line$Aðalmaður: Þórunn Alda Gylfadóttir$line$Varamaður: óbreytt$line$$line$HES:$line$aðalmaður: Þórir Sigfússon$line$Varamaður: óbreytt
Til máls tók: Kristín María
G-listi leggur fram tillögu um breytingar á fulltrúum í nefndum vegna flutnings fulltrúa.
Félagsmálanefnd
Aðalmaður: Laufey Birgisdóttir í stað Önnu Sigríðar Jónsdóttur.
varamaður: Þórir Sigfússon í stað Maríu Jóhannesdóttur
Pétur Rúðrik Guðmundsson verður formaður nefndarinnar.
Frístunda- og menningarnefnd
Aðalmaður: Þórunn Alda Gylfadóttir í stað Lovísu H. Larsen
Kristín María Birgisdóttir verður formaður nefndarinnar
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja
aðalmaður: Þórir Sigfússon í stað Lovísu H. Larsen.
Samþykkt samhljóða18. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 7
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Guðmundur, bæjarstjóri og Ásrún
Fundargerðin er lögð fram.19. Skipulagsnefnd - 7
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta, Ásrún, bæjarstjóri, Jóna Rut og Þórunn
Fundargerðin er lögð fram.20. Hafnarstjórn Grindavíkur - 435
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.21. Bæjarráð Grindavíkur - 1383
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Þórunn, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.22. Bæjarráð Grindavíkur - 1384
Til máls tóku: Kristín María, Ásrún og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram.23. Bæjarráð Grindavíkur - 1385
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, bæjarstjóri, Ásrún, Þórunn, Marta, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.24. Bæjarráð Grindavíkur - 1386
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta, bæjarstjóri, Ásrún, Þórunn og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.25. Bæjarráð Grindavíkur - 1387
Til máls tóku: Kristín María og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.26. Bæjarráð Grindavíkur - 1388
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram.