Bæjarstjórn Grindavíkur - 438. fundur
- 25.02.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 438
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmforseti
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Dagbjartur Willardssonaðalmaður
- Hilmar E Helgasonaðalmaður
- Lovísa H Larsenvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tilraunaborunum á fyrsta áfanga I5
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Guðmundur, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs svaraði fyrirspurnum.
Erindi frá IceAq ehf. kt.500412-0540. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir tilraunaborunum á fyrsta áfanga iðnaðarsvæðis i5. Erindinu fylgir umsókn og uppdrættir af svæðinu og nýtingarleyfi Orkustofnunar dagsett 28. janúar 2014 til nýtingar á 2.000 l/s á sjóblönduðu vatni á svæðinu.
Tilgangur borananna er að afla upplýsinga til mats á framtíðar vatnsnýtingu á svæðinu. Deiliskipulag af svæðinu hefur verið sent til Skipulagsstofnunar með ósk Grindavíkur um leyfi til staðfestingar í b-deild Stjórnartíðinda.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að framkvæmdaleyfi verði veitt með fyrirvara um að deiliskipulag fiskeldis á fyrsta áfanga i5 í aðalskipulagi Grindavíkur verði staðfest með auglýsingu í b-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.2. Samþykkt um fráveitu
Síðari umræða um samþykktina
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Til máls tók: Bryndís, Páll Jóhann og Guðmundur.
Tillaga að nýrri samþykkt um fráveitu Grindavíkur lögð fram til síðari umræðu.
Fyrri umræða fór fram 17. desember og var tillagan í kjölfarið send umhverfisráðuneytinu til umsagnar. Engar athugasemdir hafa borist.
Forseti leggur til að Samþykkt um fráveitu Grindavíkur verði staðfest.
Samþykkt samhljóða3. Beiðni um umsögn frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um hafnalög (ríkisstyrkir o.fl.), 234. mál.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Hilmar, Páll Jóhann, Dagbjartur og bæjarstjóri.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn um frumvarp til laga um hafnalög (ríkisstyrkir o.fl.), 234. mál.
Tillaga að umsögn er lögð fram, en frumvarpið skiptir verulega miklu mál fyrir Grindavíkurhöfn og þar með allt samfélagið í Grindavík.
Í umsögninni er lögð fram breytingatillaga sem felst í því að í b-lið 24. gr. laganna (7. gr. frumvarpsins) verði heimild ríkissjóðs til þátttöku í kostnaði við endurbyggingu og endurbætur á bryggjum og höfnum allt að 90% í stað allt að 60% eins og frumvarpið gerir ráð fyrir.
Breytingartillagan er í samræmi við ályktanir Hafnasambands Íslands um sama efni og einnig í samræmi við álit fulltrúa Hafnarsambandsins í nefndinni sem skipuð var af ráðherra um endurskoðun hafnalaga.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða umsögnina.4. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2014
Tillaga að reglum um bæjarlistamann Grindavíkur lagðar fram til afgreiðslu
Til máls tók: Bryndís og Lovísa.
Tillaga frístunda- og menningarnefndar að reglum um tilnefningu bæjarlistamanns Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð hefur fjallað um tillöguna og vísað henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Jafnframt leggur bæjarráð til að styrkur til bæjarlistamanns verði 300.000 kr. og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Forseti leggur til að reglurnar verði samþykktar og viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 verði samþykktur.
Samþykkt samhljóða.
Forseti leggur til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 300.000 kr sem komi til lækkunar á handbæru fé.5. Beiðni um styrk til klæðningar golfskála
Bæjarráð leggur til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun 2014
Til máls tók: Bryndís
Málið er tekið fyrir að nýju að beiðni GG þar sem styrkurinn var ekki sóttur á árinu 2013.
Bæjarráð hefur samþykkt að veita Golfklúbbi Grindavíkur 1.200.000 kr styrk til að klára klæðningu nýs golfskála félagsins og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014. Fjárhæðin kemur til lækkunar á handbæru fé.
Forseti leggur til að tillaga bæjarráðs verði samþykkt.
Tillagan Samþykkt samhljóða6. Fasteignagjöld 2014
Afgreiða viðauka
Til máls tók: Bryndís
Yfirlit yfir álagningu fasteignagjalda vegna ársins 2014 lagt fram ásamt samanburði við fjárhagsáætlun ársins. Álagningin er einni milljón króna hærri en áætlun.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 til hækkunar á fasteignagjöldum um eina milljón króna sem kemur til hækkunar á handbæru fé.
Forseti leggur til að tillaga bæjarráðs verði samþykkt.
Tillagan er samþykkt samhljóða7. Hugbúnaðarleyfi
Bæjarráð leggur til að samþykktur verði viðauki að fjárhæð 800.000 kr.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann og Guðmundur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 800.000 kr. vegna hugbúnaðarleyfa sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Forseti leggur til að tillaga bæjarráðs verði samþykkt.
Tillagan er samþykkt samhljóða8. Tryggingar Grindavíkurbæjar
Undirritaður samningur lagður fram til staðfestingar.
Dagbjartur vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Til máls tók: Bryndís, Lovísa og bæjarstjóri.
Undirritaður samningur milli Grindavíkurbæjar og Sjóvá um tryggingar Grindavíkurbæjar og stofnana hans lagður fram til staðfestingar.
Forseti leggur til að samningurinn verði staðfestur.
Samningurinn er staðfestur með 6 atkvæðum.9. Beiðni um endurnýjun á samningi vegna umsýslu á eignum Grindavíkurbæjar á íþróttasvæðinu. (Gula húsið, búningsklefar og salerni)
Samningur lagður fram til staðfestingar. Afgreiða þarf viðauka.
Til máls tóku: Bryndís og Páll Jóhann
Undirritaður samningur milli Grindavíkurbæjar og Knattspyrnudeildar UMFG vegna umsýslu á eignum Grindavíkurbæjar á íþróttasvæðinu lagður fram til staðfestingar.
Forseti leggur til að samningurinn verði staðfestur.
Samningurinn er staðfestur samhljóða.10. Bæjarráð Grindavíkur - 1341
Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri, Dagbjartur, Guðmundur, Lovísa og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.11. Bæjarráð Grindavíkur - 1342
Til máls tóku: Bryndís, Dagbjartur og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram.12. Hafnarstjórn Grindavíkur - 424
Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri, Hilmar, Páll Jóhann, Guðmundur og Marta
Fundargerðin er lögð fram.13. Frístunda- og menningarnefnd - 29
Til máls tók: Bryndís.
Fundargerðin er lögð fram.14. Félagsmálanefnd - 30
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, bæjarstjóri, Lovísa og Dagbjartur.
Fundargerðin er lögð fram.15. Félagsmálanefnd - 31
Til máls tók: Bryndís.
Fundargerðin er lögð fram.16. Félagsmálanefnd - 32
Til máls tók: Bryndís.
Fundargerðin er lögð fram.17. Skipulags- og umhverfisnefnd - 36
Til máls tók: Bryndís.
Fundargerðin er lögð fram.18. Fundargerð 444. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Til máls tók: Bryndís.
Fundargerðin er lögð fram.19. Fundargerð 445. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Dagbjartur og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram.20. 33. fundur Heklunnar,atvinnuþróunarfélags Suðurnesja
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, bæjarstjóri, Marta, Páll Jóhann, Hilmar og Lovísa.
Fundargerðin er lögð fram.21. 32.fundur Heklunnar,atvinnuþróunarfélags Suðurnesja
Til máls tók: Bryndís.
Fundargerðin er lögð fram.22. Fundargerð 9. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs
Til máls tók: Bryndís, Guðmundur og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram.23. Ósk um styrk á móti gatnagerðargjöldum reiðhallar Brimfaxa
máli frestað á síðasta fundi. Afgreiða viðauka. Búið er að skrá húsið á Brimfaxa.
Til máls tók: Bryndís, Guðmundur, Páll Jóhann og bæjarstjóri.
Bæjarráð hefur samþykkt að veita Brimfaxa styrk að fjárhæð 36.274.005 kr. á móti gatnagerðargjöldum reiðhallar félagsins að Hópsheiði 34, en áréttar að greiða skuli gatnagerðargjöld af hesthúsum sem ráðgert er að byggja við reiðhöllina.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 36.274.005 kr. sem komi til lækkunar á viðskiptakröfu bæjarins á Brimfaxa.
Forseti leggur til að tillaga bæjarráðs verði samþykkt.
Tillagan er samþykkt samhljóða.24. Afskriftir viðskiptakrafna
Allir tóku til máls.
Bæjarráð hefur samþykkt tillögu um afskrift fyrndra krafna frá árunum 2001-2008 að fjárhæð 12.840.185 kr.
Forseti leggur til að tillaga bæjarráðs verði samþykkt.
Tillagan er samþykkt samhljóða.25. Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Undirritaður samningur lagður fram. Afgreiða viðauka.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, bæjarstjóri, Marta og Páll Jóhann.
Undirritaður kaupsamningur milli annarsvegar Ursus I slhf. og hinsvegar Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs, Sveitarfélagsins Voga og Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á hlutum HS veitum hf. lagður fram til staðfestingar.
Forseti leggur til að samningurinn verði staðfestur. Jafnframt leggur forseti til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 46.488 þús. kr. sem komi til hækkunar á handbæru fé. Af söluhagnaði mun greiðast fjármagnstekjuskattur á árinu 2015.
Samþykkt samhljóða26. Aðalfundur HS veitna hf 6. mars 2014
Til máls tók: Bryndís
Boð á aðalfund HS veitna hf. sem fram fer 6. mars næstkomandi lagt fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.